Morgunblaðið - 06.09.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 06.09.2018, Síða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Það mun ekki líða á löngu áð-ur en öll venjuleg heim-ilistæki verða búin gervi-greind og hægt verður að skipa þeim fyrir með því að kalla til þeirra. Þetta er að minnsta kosti skoð- un markaðsfræðinga og raftækja- framleiðenda. „Raddstýring og gervigreind eru ráðandi í framleiðslu raftækja þetta árið,“ sagði Hans-Joachim Kamp, stjórnarformaður IFA- raftækjasýningarinnar sem nú stendur yfir í Berlín í Þýskalandi. Raddstýrð raftæki hafa verið áberandi á tæknisýningum undan- farin misseri og nú veðja framleið- endur á að neytendur séu tilbúnir að opna budduna og kaupa slík tæki. Rannsóknarfyrirtækið Gartner spá- ir því m.a. að árið 2020 verði radd- stýrð tæki af einhverju tagi á 75% heimila í Bandaríkjunum. Það er hægt að tala við ljós, sjónvörp, ísskápa og eldavélar og auðvitað tölvur þar sem ýmsir gervi- greindir stafrænir aðstoðarmenn reyna að uppfylla óskir eigenda sinna. Á IFA-sýningunni kennir margra grasa og þar má sjá allt frá nýjum útgáfum af hefðbundnum heimilistækjum til tækja sem mörg- um kann að þykja furðuleg og jafn- vel hættuleg. Undir síðasta flokkinn falla sennilega loftpúðaskautar frá Segway, sem minna nokkuð á svif- brettið sem Marty McFly notaði í Back to the Future-kvikmyndunum. Keppt í háskerpu Það stendur einnig greinilega yfir hörð samkeppni sjónvarps- framleiðenda um stærstu skjáina með mestu myndgæðin. Kóresku fyrirtækin LG og Samsung, sem eru helstu sjónvarpsframleiðendur heims, sýna bæði ofurháskerpu- sjónvörp sem eru með fjórfalt meiri upplausn en stærstu tæki sem nú eru á markaðnum. Þótt þessi sjón- vörp séu væntanleg fljótlega á markaðinn er sá galli á gjöf Njarðar að ekki er enn til sjónvarpsefni sem nýtir þessa skerpu til fullnustu; ekki er von á því fyrr en eftir 1-2 ár. Neytendur eru hins vegar stöð- ugt að kaupa stærri og stærri sjón- vörp. Í Evrópu var meðalstærð sjón- varpa sem keypt voru á síðasta ári 50 tommur. Nánast öll ný sjónvörp eru með innbyggðu neti og mörg þeirra eru raddstýrð. Samkeppni um eyrun Þá er mikil samkeppni um eyru neytenda um þessar mundir. Hátal- arar verða stöðugt fullkomnari, minni og greindari og hægt er að stjórna hljóðkerfi heimilisins alls með röddinni einni. Þróunin er einnig hröð í spjald- tölvum og verða tölvur sem hægt er að nota bæði sem spjaldtölvur og fartölvur með lyklaborði stöðugt eft- irsóttari. Á sama tíma hefur sala á hefðbundnum borð- og fartölvum dregist umtalsvert saman á síðustu misserum, þar af um 18% á síðasta ári. AFP Skautar Það þarf væntanlega að æfa sig vel á hjólaskautunum Drift W1 frá fyrirtækinu Segway áður en haldið er af stað. AFP Sjálfvirkt kaffi Sjálfvirka kaffivélin La Specialista, frá fyrir- tækinu De’Longhi, vakti talsverða athygli á sýningunni. AFP Þjónar CLOi-vélmenni frá LG, sem eiga að aðstoða fjölskyld- una við að hafa stjórn á heimilistækjunum. Heimilistækjunum skipað fyrir Tölvutækninni fleygir fram og framleiðendur heimilistækja veðja nú helst á gervigreind og raddstýringar. Það stefnir í að hægt verði að spjalla við heimilistækin eins og hvern annan heimilis- mann. AFP Ofurskerpa Gestir á IFA-sýningunni horfa á ofurháskerpusjónvarpsskjá á sýningarsvæði Samsung. Flest fór úrskeiðis sem farið gat við endurkomu bandarísku gamanleik- konunnar Roseanne Barr. Hún var vinsæl og dáð á 9. og 10. áratug síð- ustu aldar, þáttur hennar Roseanne sem var sýndur víða um heim, m.a. hér á landi, árin 1988-’97 sló í gegn, en þar var fjallað um Conner- fjölskylduna og hún var í aðal- hlutverki sem húsmóðirin Roseanne Conner. Undanfarin ár hefur fremur lítið farið fyrir henni á sviði leiklistarinnar og hún hefur helst komist í fréttir fyrir ýmis uppátæki eins og að bjóða sig fram til forseta. Eftir að hún lýsti yfir stuðningi við Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hún óspart tekið undir málflutning hans um fals- fréttir og samsæriskenningar. Hún birtist síðan aftur á skjánum fyrr á þessu ári. Það var í þáttum bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC sem hétu Roseanne, en rétt eins og í þeim fyrri var Barr í aðalhlutverki og urðu þættirnir strax geysivinsælir. En skjótt skipast veður í lofti því ABC tók þættina af dagskrá í maí eft- ir að hún birti umdeilda færslu á samskiptavefnum Twitter sem þótti lýsa kynþáttahatri. Í færslunni kallaði hún Valerie Jarrett, sem er af blönd- uðum kynþáttum og einn helsti ráð- gjafi Obama fyrrverandi Bandaríkja- forseta, afkvæmi múslímska bræðralagsins og apaplánetunnar. Hún baðst síðar afsökunar og sagði að þetta hefði verið ósmekklegt grín. Sjónvarpsstöðin ABC var ekki tilbúin að afskrifa endurkomu Conn- er-fjölskyldunnar og ákvað því að framleiða þættina The Conners sem fara fljótlega í sýningu. Þeir fjalla um alla í fyrrverandi sjónvarpsfjölskyldu Roseanne; eiginmanninn Dan, börnin Becky, Darlene, D.J. og Jerry og syst- ur Roseanne, Jackie. Þar verða allir nema Roseanne sjálf. Í viðtali við bandarísku sjónvarps- stöðina CNN fyrr í vikunni sagði Roseanne að hún væri afar ósátt við að þátturinn yrði gerður og að hún hygðist flytja til Ísrael í mótmæla- skyni. Stormasamur ferill Roseanne Barr AFP Roseanne Ásamt John Goodman sem lék eiginmann hennar. Klúðraði endurkomunni, móðg- aði fólk og flytur nú til Ísraels

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.