Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018
Garnaveiki greindist fyrir nokkr-
um dögum í geit á bænum Háhóli í
Hornafirði. Garnaveiki í geit á Ís-
landi greindist síðast árið 2002 og
þá á Vesturlandi. Í jórturdýrum er
garnaveiki ólæknandi smitsjúk-
dómur en með bólusetningu má
verja sauðfé og geitur.
Grunur féll á geitina á Háhóli
þegar hún sýndi greinileg einkenni
garnaveiki. Dýralæknir var kall-
aður til og í kjölfarið var geitin af-
lífuð og svo krufin á Keldum og
grunurinn staðfestur.
Orsök sjúkdómsins er lífseig
baktería af berklaflokki. Helstu
einkenni hennar eru hægfara van-
þrif með skituköstum. Um viðbrögð
gilda ýmsar varúðarráðstafanir,
meðal annars að frá bæ þar sem
garnaveikin greinist má til dæmis
ekki selja sauðfé, geitur eða naut-
gripi í 10 ár frá greiningu.
Garnaveiki
greind í geit
Varúðarregla gildi
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Geit Hafurinn horfir á heiminn.
Skipulagsstofnun hefur fallist á til-
lögu AkvaFuture ehf. að matsáætlun
fyrir allt að 20 þúsund tonna laxeldi í
Eyjafirði með athugasemdum. Fyr-
irtækið þarf að huga að ýmsum atrið-
um í frummatsskýrslu. Meðal annars
þarf að liggja fyrir burðarþolsmat
fyrir Eyjafjörð og fjalla þarf um
varnir gegn fisksjúkdómum og áhrif
eldisins á villtan lax og umhverfið.
AkvaFuture hyggst ala laxinn í
lokuðum sjókvíum innarlega í Eyja-
firði. Beitt verður nýrri eldistækni
sem takmarkar áhrif eldisins á um-
hverfið. Tæknin er nýtt til fram-
leiðslu á eldislaxi í Noregi. AkvaFut-
ure hefur einnig lagt fyrir
Skipulagsstofnun matsáætlun fyrir
eldi á allt að 6 þúsund tonnum í slík-
um kvíum í Ísafjarðardjúpi.
Vegna umsagnar Hafrann-
sóknastofnunar leggur Skipulags-
stofnun áherslu á að fjallað verði um
möguleg áhrif á eldisfisk ef rafmagn
fer af eldissvæði og hver áhrifin
verði við langvarandi straumrof.
Einnig þurfi að fjalla um öryggi eld-
isbúnaðar með tilliti til strauma og
ölduhæðar. AkvaFuture benti á að
búnaðurinn hafi fengið styrkleika-
og öryggisvottun samkvæmt norsk-
um staðli. Þá er á það bent að í
hverri kvíaþyrpingu verði varaafls-
töð. Skipulagsstofnun setur ellefu
önnur skilyrði um atriði sem fjalla
þurfi um í frummati.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu
kemur fram að niðurstaða Skipu-
lagsstofnunar færi fyrirtækið nær
áformum um að hefja fyrsta flokks
laxeldi í lokuðum sjókvíum við Ís-
landsstrendur. helgi@mbl.is
Matsáætlun samþykkt
Ljósmynd/AkvaFuture
Lokaðar kvíar AkvaFuture rekur eldisstöð með lokuðum kvíum í Andals-
vogi í sveitarfélaginu Vevelstad í Nordlandfylki í Noregi.
AkvaFuture heldur áfram að undirbúa eldi í Eyjafirði
569 6900 09:00–16:00www.ils.is
Húsnæðismál á
landsbyggðinni
–Tilraunaverkefni
Markmið verkefnisins er að leita leiða til þess að
bregðast við þeimmikla húsnæðisvanda sem ríkir
víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks
íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi
íbúðarhúsnæði.
Horft er til þess að 2-4 sveitarfélög taki þátt í
tilraunaverkefninu og að verkefnið nái að fanga
mismunandi áskoranir á ólíkum landsvæðum.
Þannig geta þær lausnir sem verkefninu er ætlað
að móta nýst á sem breiðustum grunni.
Verkefnið tekur mið af stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar sem og stefnumótandi byggðaáætlun sem
samþykkt var á Alþingi þann 11. júní 2018. Í byggða-
áætlun er m.a. kveðið á ummarkmið um fjölgun
íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu íbúðar-
húsnæði hamlar uppbyggingu í sveitarfélaginu.
Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins er grundvallar-
forsenda fyrir þátttöku í verkefninu. Hafi sveitar-
félagið ekki þegar unnið slíka áætlun og skilað til
Íbúðalánasjóðs þarf það að hafa til þess vilja og
getu að ljúka við gerð hennar.
Þau sveitarfélög sem óska eftir að taka þátt í verk-
efninu eru beðin um að hafa samband við Sigrúnu
ÁstuMagnúsdóttur, deildarstjóra á húsnæðis-
sviði Íbúðalánasjóðs, á netfangið sigrun@ils.is
fyrir 30. september 2018.
Íbúðalánasjóður óskar eftir þátttöku
sveitarfélaga í tilraunaverkefni um
uppbyggingu húsnæðismála á lands-
byggðinni
Umsóknarfrestur:
30. september 2018
María Heim-
isdóttir hefur
verið skipuð for-
stjóri Sjúkra-
trygginga Ís-
lands til næstu
fimm ára og tek-
ur við starfinu 1.
nóvember. Skip-
unin er í sam-
ræmi við tillögu
stjórnar stofn-
unarinnar en
María var önnur tveggja ellefu um-
sækjenda sem stjórnin taldi hæf-
asta til að gegna embættinu. Ráð-
herra ræddi við þessa tvo og ákvað
í kjölfarið að skipa Maríu.
María lauk embættisprófi í lækn-
isfræði frá HÍ árið 1990. Hún stund-
aði framhaldsnám í Bandaríkj-
unum, aflaði sér MBA-gráðu með
áherslu á stjórnun í heilbrigðisþjón-
ustu, og fór síðan í doktorsnám í
lýðheilsufræðum samhliða vinnu
við kennslu og rannsóknir. Frá
2010 hefur María verið fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Land-
spítala en hafði áður veitt forstöðu
upplýsinga- og hagdeild spítalans
árin 2006-2010. Árin 1999 til 2002
starfaði María hjá Íslenskri erfða-
greiningu við þróunarverkefni. Þá
er hún klínískur lektor við lækna-
deild HÍ og hefur tekið þátt í marg-
víslegu vísindastarfi. sbs@mbl.is
María
Heimisdóttir
María stýrir
Sjúkratryggingum