Morgunblaðið - 06.09.2018, Page 49

Morgunblaðið - 06.09.2018, Page 49
UMRÆÐAN 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 Flestum er kunnugt hvernig ástandið á Landspítalalóðinni hefur verið undanfarin misseri. Þar hefur gengið á með höggum frá fallhömrum, sprengingum, hamarshöggum og öðrum há- vaða frá framkvæmdum sem NB eru ekki á áætlun, hvorki hvað varðar tíma eða fé sem er ekki uppörvandi vegna fram- haldsins. Misilla haldnir sjúk- lingar, aðstandendur í erfiðri stöðu á sál og líkama að ógleymdu starfsfólkinu sem vinnur við ömurlegar ástæður þora ekki að koma fram og segja skoðun sína á ástandinu. Ég öfunda ekki skurðlækna sem vinna við að- stæður þar sem hús leika á reiðiskjálfi líkt og stríð hafi brotist út. Það fréttist líka nýlega að meðan mest hefur gengið á hafa ljós- mæður ekki getað hlustað vel eftir hjartslætti ófæddra barna í móðurkviði. En heilbrigðisráðherrann er stoltur og glaður yfir því hve vel gengur að hrista sam- an sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk með sprengingum og fallhömrum. Vegna mistaka á Alþingi í vor verður ekki staldrað við, og fljótgerð vönduð óháð staðarvalsathugun unnin til að hægt sé að fá heim sanninn um galskap uppbyggingar við Hringbraut. Nú skal hafin jarðvegsvinna með umferð þús- unda trukka sem væntanlega fara niður Snorrabraut í löngum bílalestum næstu miss- erin og bæta svifryki við taktföst slög fall- hamranna og stöku sprengingu. Þannig munu sjúklingar og starfsfólk búa við þetta ófremd- arástand næstu áratugi. Hvers vegna? Jú, þegar Meðferðarkjarninn verður klár bíða byggingar rannsóknarkjarna, útibú HÍ og nokkur bílastæðahús. Og að því loknu upp- gerð og viðgerð mygluhúsanna gömlu sem ýmist verða rifin eða viðgerð. Ekki þýðir að spyrja starfsmenn Oháeffsins um það því þeir eru bara að reisa nýtt sjúkrahús og kemur ekkert við endurnýjun eða rif gamalla húsa. Þeim kemur heldur ekki við hvað gerist við lokun gömlu Hringbrautar ef ekkert verður bætt við þá nýju. Þar er ekki hægt að hafa uppi mikla bjart- sýni því ráðherra samgöngumála er leiðitamasti stjórnmálamaður á Íslandi. Hann og flokkur hans hlupu einmitt frá enn einu kosningaloforði sínu þegar greidd voru atkvæði um stað- arvalið. Framsóknarmenn héldu blaðamanna- fund við Hringbraut fyrir tæpu ári til að leggja áherslu á stuðning sinn við nýjan spít- ala á betri stað. Entist í nokkra mánuði og var selt fyrir þrjá ráðherrastóla. Nú verður að spyrja leiðitama samgönguráðherrann: Ætlar hann að gera eitthvað vegna lokunar gömlu Hringbrautar? Kannski að laga Hring- braut II með vegtollum sem hann afneitaði fyrir rúmu ári en seldi fyrir þrjá ráðherra- stóla. Svar óskast. Sjúklingar við hamarshögg Eftir Þorstein Sæmundsson »Heilbrigðisráðherrann er stoltur og glaður yfir því hve vel gengur að hrista saman sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk með sprengingum og fallhömrum. Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins. thorsteinns@althingi.is Ég var staddur á vörumarkaði fyrir skömmu. Þar tók ferða- maður upp úr hálsmáli sínu Dav- íðsstjörnuna sem fest var á háls- festi hans. Viðmælandi umrædds manns ávítaði hann og bað hann um að hylja hálsmenið sitt hið snarasta og sagði honum að gyð- ingar væru vanir að hafa Davíðs- stjörnuna sína innanklæða þegar þeir væru á ferðalögum. Auk þess styddu Íslendingar Palestínu- menn en væri í nöp við Ísraelsríki. Ég hrökk við að heyra þetta og varð hugsað til ofsókna á hendur gyðingum í seinni heims- styrjöldinni sem leiddu til hinnar skelfilegu hel- farar, þegar milljónum þeirra var skipulega út- rýmt vegna hugmyndafræði sem vissir stjórn- málamenn notuðu til að réttlæta dráp á heilli þjóð. Það er hörmulegt að vita til þess að gyð- ingaofsóknir eigi sér stað enn í dag á okkar tím- um og færist í aukana. Gengdarlaus haturs- ummæli gegn gyðingum eru látin óátalin. Fjölmiðlar eiga hér stóra sök þar sem mjög einhliða er fjallað um Ísraelsríki og hallað máli þess í hvívetna. Pólitískur rétttrúnaður er alls- ráðandi og ráðist er með offorsi á gyðinga og Ísraelsríki, sem umkringt er óvinum þess úr öll- um áttum og er undir stöðugum skærum araba- þjóða. Ég hef komið til Ísraels og upplifað baráttu tæplega sjö milljóna gyðinga í Ísrael undir linnulausum mannskæðum árásum, umkringdir af yfir þrjú hundruð milljónum araba í ná- grannaríkjum Ísraels sem unna þeim ekki frið- ar og margir hafa strengt þess heit að drepa þá alla. Arabaríkin hafa hótað útrýmingu Ísraels síðan Ísraelsríki var stofnað 14. maí 1948. Slíkt er hatrið í garð gyðinga. Síðan Ísraelsríki var stofnað hafa arabaþjóðirnar prédikað heil- agt stríð og tortímingarstríð gegn Ísrael. Uppreisn palestínumanna á Gaza hefur átt hugi og athygli fjölmiðlamanna en barátta Ísraels fyrir tilverurétti sínum verið köll- uð glæpir gegn mannkyninu. Ömurlegt er að fylgjast með fréttum sem úthrópa Ísraelsmenn sem níðinga þegar þeir verja landamæri sín gegn ágangi araba sem stefna að útrýmingu gyðinga. Þykir mér rétt að benda fólki á fréttaveitur Ísraela, til dæmis Israel News Agency. Þar eru fréttir sem virðast ekki ná til fjölmiðla á Vesturlöndum vegna pólitískrar rétttrúnaðarstefnu. Þó allur heimurinn hafi snúist á móti Ísrael er það blessað af Guði vegna þess að það er á landi því sem Guð gaf gyðingum fyrir þús- undum ára og því fá engin pólitísk veraldaröfl breytt (1. Mósebók 13:15). Þetta óstjórnlega og djöfullega hatur gegn gyðingum og Ísrael staf- ar einfaldlega af því að gyðingar eru Guðs út- valda þjóð og elskaðir af Guði (5. Mósebók 7:6). Þess vegna er hatur heimsins í þeirra garð svo gríðarlegt. Það segir sína sögu. Við skulum hafa það í huga að æðri máttarvöld styðja þetta litla ríki gyðinga í Mið-Austurlöndum. Væri ekki svo væru óvinir þeirra löngu búnir að afmá það af landakortinu. Gyðingaofsóknir vorra tíma Eftir Einar Ingva Magnússon Einar Ingvi Magnússon » Gengdarlaus hatursum- mæli gegn gyðingum eru látin óátalin. Höfundur er áhugamaður um Ísraelsríki. einar_ingvi@hotmail.com Einstök barnagleraugu frá Lindberg. Þau hafa hlotið fjölda viður- kenninga um heim allan. 94 international design awards

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.