Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 54

Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 „Pólland var skítugt og fátækt land, allt í kolareyk en þrjóskan í Húsvíkingnum dreif mig áfram,“ segir Jónína Ben líkamsræktarfrömuður, sem hefur farið með fjölda Íslendinga í detox-meðferð til Póllands á undanförnum 15 árum. „Þetta er meiriháttar land en hitt er svo annað að það má segja að það sé nýkomið til byggða. Viðskiptalífið þar er flókið fyrir okkur hér sem erum vön viðskiptum með millistjórnendum. Pól- verjar eru ekkert fyrir millistjórnendur, þeir líta þannig á að þeir sem eiga fyrirtækið stjórni og hinir séu nánast eins konar þrælar. Það hefur verið meira en að segja það að vinna í þessu andrúmslofti.“ Minni sykur og meira grænmeti Jónína hópaði fljótlega í kringum sig færum lækn- um sem voru sérfræðingar í bólgusjúkdómum. Með henni þróuðu þeir þá meðferð sem boðið er upp á í dag. „Bólgusjúkdómar eru í rauninni undirstaða flestra lífsstílstengdra sjúkdóma, bæði krabbameina, gigtar og streitu,“ segir hún og bætir við að 80% ónæmiskerfisins okkar séu framleidd í þörmunum. „Þessar bakteríur sem þarmarnir taka til sín eða framleiða sjálfir geta verið þrenns konar, þær geta verið rotnandi eins og þegar fólk borðar mikið kjöt, þær geta verið Candida sem gerist þegar fólk borðar of mikinn sykur eða drekkur of mikið áfengi og svo góðu bakteríurnar sem koma þegar við borðum grænmeti.“ Mikilvægt að huga að öndun Jónína hvetur fólk til að huga að því hvað það set- ur ofan í líkamann fyrst á morgnana og segir mik- ilvægt að halda streituhormóninu kortisól í jafn- vægi. „Framleiðsla kortisóls fellur niður þegar við sofum og til þess að koma því aftur í gang á morgn- ana er mikilvægt að fá vatn og súrefni. Við þurfum ekki kaffi eða sígarettur heldur bara H2O og O2. Ef fólk drekkur stórt vatnsglas á morgnana og helst með sítrónu, til þess að balansera þarmaflóruna, og fer síðan út og bara andar djúpt tíu sinnum, er það komið með það streitustig sem það þarf fyrir dag- inn,“ segir Jónína Ben, sem heldur til Póllands um helgina til að taka á móti nýjum hópi af Íslend- ingum í leit að betri heilsu. íslandvaknar@k100.is Hefur miklar áhyggjur af næringu landans Jónína Ben er frumkvöðull í detox-meðferðum og hefur hjálpað fjölda fólks að ná betri heilsu bæði hér heima og í Póllandi. Hún hefur miklar áhyggjur af næringu land- ans og segir að Íslendingar þurfi að skoða alvarlega mataræði og lífsstíl. K100/Rikka Jónína Ben Hún er frumkvöðull í detoxmeðferðum og hefur farið með fjölda Íslendinga til Póllands í meðferðir. Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu, er að gefa út sólóplötu og fylgir henni eftir með útgáfutónleikum á Akureyri um helgina. Hann er með raddsterkari mönnum eins og flest- ir vita sem hafa heyrt í honum. „Mamma segir að ég hafi þagað þar til ég varð fimm ára þannig að ég held að ég sé bara að taka það út sem ég átti inni. Svo er ég úr Mý- vatnssveit og útaf dottlu þá þarf maður að geta talað svolítið hátt,“ sagði Stefán í spjalli í morgunþætt- inum Ísland vaknar. Reyndar er Stefán sennilega minnst í Mývatnssveitinni, enda mikið á ferðinni og hefur sungið með mörgum hljómsveitum og sýn- ingum. Hann segir það þó ekkert merkilegt. „Það er fullt af fólki sem vinnur svona. Vörubílstjórar og svona. En það er alltaf lengra úr Reykjavík.“ Daginn sem við ræddum við hann voru 72 ár frá fæðingu Freddie Mercury og hafin er framleiðsla á kvikmynd um ævi hans. Stefán tek- ur ekki líklega í að hann gæti verið íslenska útgáfan af Freddie. „Það eru tvennir skór sem mér er illa við að fara í og ég held að enginn ætti að fara þangað. Það er annars veg- ar Freddie Mercury og hins vegar Michael Jackson. Þangað fer eng- inn með fullu viti. Það er alveg sama hver reynir það.“ Annars segist Stefán hlusta á næstum því allt en uppáhalds- hljómsveit hans er Primus. Þekkt- asta lag hennar er upphafslag South Park-þáttanna. Sjálfur ólst hann upp við Queen, Metallicu, Guns ’n Roses og Nirvana en segist hlusta á allt. Hægt er að sjá Stefán á útgáfu- tónleikunum á Græna hattinum á laugardagskvöld. islandvaknar@k100.is Morgunblaðið/Eggert Stefán Jakobsson er með eina kraftmestu söngrödd landsins. Er að vinna upp fimm ára þögn Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu, er að gefa út sóló- plötu og fylgir henni eftir með útgáfutónleikum á Akureyri um helgina. Hann er með raddsterkari mönnum eins og flestir vita sem hafa heyrt í honum. LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937 99% afsláttur fyrir börnin Bókaðu 6. eða 7. september fyrir börnin og þau fá 99% afslátt. Notaðu kóðann KRONA og njóttu ferðagleðinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.