Morgunblaðið - 06.09.2018, Síða 60

Morgunblaðið - 06.09.2018, Síða 60
60 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 Margrét Arna Hlöðversdóttir, lögfræðingur og MBA, fram-kvæmdastjóri og annar eigenda As We Grow, á 50 ára af-mæli í dag. As We Grow er fyrirtæki sem hannar og selur hágæðafatnað sem vinnur gegn sóun („slow fashion“) og hefur já- kvæð áhrif á umhverfið. „Barnafatnaður okkar er hannaður til að endast lengur. Hann „vex með barninu“ og hefur engin neikvæð áhrif á umhverfið, inniheldur einungis náttúruleg efni og hver einasta flík er pökkuð í niðurbrjótan- lega poka en ekki plastpoka. Megininntak í sjálfbærni fyrirtækisins liggur í heildbærri stefnu, allt frá hönnun og framleiðslu til sam- félagslegrar ábyrgðar og virðingu fyrir umhverfinu.“ Áhugamál Grétu, eins og hún er ávallt kölluð, eru ferðalög, tíska og hönnun og almenn útivera, s.s. fjallgöngur og golf. „Fjölskyldan fer oft saman í golffrí, þetta er okkar sport og nú í haust erum við einmitt á leiðinni til Bandaríkjanna að sveifla kylfum.“ En hvað á að gera í tilefni dagsins? „Hugmyndin er að halda upp á þennan áfanga allt árið, en við hjónin urðum bæði fimmtug á árinu. Nú erum við í Barcelona, en hér bjuggum við í sex ár, synir mínir fæddust hér og borgin er því eins og okkar annað heimili. Við tölum spænsku og elskum spænska list, mat og menningu. Það er fátt betra en að týna sér í litlum þorpum þessa fallega lands.“ Eiginmaður Grétu er Jón Garðar Guðmundsson, viðskiptafræð- ingur og MBA og framkvæmdastjóri Nordic Mar ehf., en synirnir eru Dagur Logi Jónsson, 20 ára, og Orri Snær Jónsson, 17 ára. Fjölskyldan Gréta, Jón Garðar og synir stödd í Portúgal í fyrra. Gegn sóun í fatnaði Margrét Arna Hlöðversdóttir er fimmtug A nna Guðný Guðmunds- dóttir fæddist í Reykja- vík 6.9. 1958 og ólst þar upp við Háaleitisbraut- ina. Hún gekk í Álfta- mýrarskóla, lauk stúdentsprófi frá MH 1977 og var í sveit á sumrin að Fagurhólsmýri í Öræfum: „Þarna var ég í fimm sumur en brýrnar og Hringvegurinn komu ekki fyrr en síðasta sumarið mitt. Öræfasveitin bar því enn nafn með rentu. Þarna var flugvöllur, veðurathugunarstöð, pósthús og verslun með matvörur og sælgæti. Maður fór með flugi í sveit- ina, oftast með þessum frægu, há- væru en traustu Douglas DC-3 vél- um. Ég afgreiddi bensín og í versluninni en kom einnig að bú- störfum, sótti kýrnar og vann í hey- skap. Í frístundum spilaði ég svo Bach á forláta, fótstigið orgel. Þarna leið mér vel hjá góðu fólki.“ Anna Guðný stundaði tónlistar- nám við Barnamúsíkskólann, nú Tónmenntaskólann, en kennari hennar þar var Stefán Edelstein. Hún stundaði síðar nám við Tón- listarskólann í Reykjavík og braut- skráðist þaðan 1979 en helstu kenn- arar hennar þar voru Hermína S. Kristjánsson, Jón Nordal og Mar- grét Eiríksdóttir. Hún stundaði síð- an framhaldsnám við Guildhall School of Music í Lundúnum og lauk Post Graduate Diploma-gráðu. Anna Guðný hefur komið fram sem píanóleikari um árabil, leikið kammertónlist, verið meðleikari og einleikari, kemur reglulega fram á Listahátíð í Reykjavík, hefur m.a. leikið á tónlistarhátíðunum Reykja- vík Midsummer Music og Reyk- holtshátíð, hefur leikið við Tónlistar- skólann í Reykjavík, nú Mennta- skóla í tónlist, er píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur, hefur leikið með henni víða um heim og hefur leikið inn á um 30 geisladiska með ýmsum listamönnum. Hún hef- ur leikið með Karlakór Reykjavíkur á vortónleikum hans í yfir 20 ár, leik- Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari – 60 ára Stolt amma Hér er Anna Guðný með Eið Loga Daníelsson í tilefni skírnar hans en hann fæddist árið 2017. Nýtur ferðalaga og matreiðslu makans Göngukona Anna Guðný við Langasjó með Fögrufjöll í baksýn. Júlía Rós Kristinsdóttir hélt tom- bólu fyrir utan Spöngina í Graf- arvogi og safnaði 1.892 kr. Hún færði Rauða krossinum á Íslandi söfnunarféð. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.