Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Extreme Chill
Festival hefst í dag, 6. september, og
stendur yfir í fjóra daga, lýkur þann
níunda. Hátíðin
er nú haldin öðru
sinni í Reykjavík
og tónleikastað-
irnir fjórir:
Kaldalón í Hörpu,
Gamla bíó, Húrra
og Fríkirkjan.
Hátíðin hefur
verið haldin víða
um landið en
einnig í Berlín og
koma fjölmargir listamenn fram á
henni í ár. Sérstök áhersla var lögð á
að jafna kynjahlutföllin og eru konur
nú margar í hópi flytjenda, m.a.
Bára Gísladóttir, Dj flugvél og geim-
skip, aYia, Ragnhild May og Astrid
Sonne og af körlum má nefna þá Jan
Jelinek, Banco De Gaia, Studnitzky
og Andrew Heath.
Hátíðin hefur átt í samstarfi við
ýmsar hátíðir bæði hér á landi sem
og í öðrum löndum og er nú orðin
hluti af Up Node, norrænu samstarfi
helstu raftónlistarhátíða Norður-
landa og mun Up Node halda fundi
og bjóða upp á vinnustofur á hátíð-
inni.
Raftónlistarhátíð í grunninn
Markmið Extreme Chill er að
kynna íslenska og erlenda raftónlist-
armenn og tengja saman ólík list-
form, hljóðheim raftónlistarinnar og
lifandi myndheim, að sögn Pans
Thorarensen, eins skipuleggjenda
hátíðarinnar.
Hann segir Extreme Chill langlíf-
ustu raftónlistarhátíð Íslandssög-
unnar. „Þetta er níunda árið sem há-
tíðin er haldin og það hefur alltaf
verið áhersla á raftónlist en í ár er
þetta svolítið öðruvísi, meira bland-
að, alveg út í meira tilraunakennda
tónlist og djass. En í grunninn er
þetta raftónlistarhátíð,“ segir Pan.
„Ég man að þegar við vorum að
byrja fannst fólki þetta rosalega
skrítið, raftónlistarhátíð,“ segir hann
og hlær við. Pan segir hátíðina hafa
verið smáa í sniðum í upphafi, en hún
hóf göngu sína á Hellissandi.
–Eru fleiri að koma fram á hátíð-
inni en í fyrra?
„Nei, þetta er svipað, 20-30 lista-
menn og koma allir fram einu sinni.
Núna er þetta dreifðara, nýir tón-
leikastaðir að bætast við og gaman
líka að þetta er ekki að gerast á sama
tíma, það er bara einn tónleikastaður
á dag. Svo erum við með Fríkirkjuna
á sunnudaginn, 9. september, þar
verða lokatónleikarnir haldnir,“
svarar Pan.
Hann segir skemmtilega breidd í
hópi flytjenda og nefnir sem dæmi
um áhugaverðan raftónlistarmann
hinn kanadíska John Daniel, sem
kallar sig Forest Management og
býr og starfar í Chicago. Pan er líka
hæstánægður með Up Node, fyrr-
nefnt norrænt samstarf helstu raf-
tónlistarhátíða Norðurlanda. „Þetta
er rosalega flott samstarf sem við
höfum verið að vinna í síðastliðin
fimm ár að koma á laggirnar. Við
fengum núna stærsta norræna
styrkinn frá Nordic Culture Point, til
fimm ára, til að vinna saman, allar
þessar hátíðir. Þetta eru sjö hátíðir
og þetta er svona skiptiprógramm,
við erum að senda tónlistarmenn
milli hátíða. Ég er t.d. að fá núna tvo
listamenn frá Phono festival í Dan-
mörku, Astrid Sonne og Ragnhild
May, rosalega flottar, danskar stelp-
ur, experimental og ungar að gera
svakalega flotta hluti í senunni úti.
Þær spila saman á Húrra á laug-
ardaginn.“
Spenna fyrir Jelinek
Pan segir Þjóðverjann Jan Jelinek
einn af aðallistamönnum hátíðar-
innar. „Hann er algjör goðsögn. Ég
er náttúrlega búinn að vera búsettur
í Berlín og hann er ein mesta stjarn-
an hérna í þessari senu. Hann gaf
náttúrlega út þessa plötu, Loop
Finding Jazz Records, í kringum ár-
ið 2000 sem er verið að velja núna
sem eina af tíu bestu plötum allra
tíma í tilraunakenndri raftónlist.
Það er mikil spenna fyrir tónleik-
unum hans sem verða í Gamla bíói,“
segir Pan.
–Banco de Gaia er líka forvitnilegt
nafn?
„Banco de Gaia er ótrúlega magn-
aður gaur. Hann var fyrst svolítið í
svona transtónlist, spilaði á öllum
helstu teknótranshátíðunum í Evr-
ópu snemma á tíunda áratugnum og
upp úr. Hann er búinn að vinna nán-
ast með hverjum sem er í brans-
anum og hefur verið mikið að endur-
hljóðblanda. Hann er mjög stórt
nafn í senunni,“ svarar Pan.
Hvað sjónræna þáttinn varðar
segir Pan að sérstakir listamenn hafi
verið fengnir til að vinna í grafík og
hreyfimyndum. „Við erum með tvo
vídeólistamenn sem sjá um að
skreyta allt. Það verður rosalega
gaman t.d. að sjá hvernig þetta kem-
ur út í Gamla bíói, við ætlum að
breyta staðnum algjörlega, verðum
með mikla sýningu og vídeó og það
sama má segja um hina tónleika-
staðina, það verður mikið lagt upp
úr hljóði og mynd.“
Hægt verður að kaupa miða á
hvert kvöld fyrir sig og líka hátíðina
í heild og fer miðasala fram á midi.is.
Tengja saman ólík listform
Mörg þekkt nöfn í heimi raftónlistarinnar koma fram á tónlistarhátíðinni Extreme Chill sem hefst í
Reykjavík í dag Konur fjölmennar í flokki flytjenda Samstarf við norrænar raftónlistarhátíðir
Heimasíða hátíðarinnar:
extremechill.org
Śjóaður Þýski raftónlistarmaðurinn Jan Jelinek er líklega þekktasti listamaður Extreme Chill að þessu sinni.
Pan Thorarensen
Fjölhæfar Tónlistarkonurnar Bára Gísladóttir, Ragnhild May og Astrid Sonne koma fram á Extreme Chill.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Tilnefningar til Barna-
og unglingabókaverð-
launa Vestnorræna
ráðsins 2018 voru
kynntar í gær. Fyrir Ís-
lands hönd er tilnefnd
Kristín Ragna Gunn-
arsdóttir fyrir Úlf og
Eddu: Dýrgripinn, frá
Færeyjum er það
Bárður Oskarsson fyrir
Træið og frá Græn-
landi er það Maja-Lisa
Kehlet fyrir Kammagi-
itta! Vil du være min
ven?
Tilkynnt verður um
vinningshafa 12. októ-
ber og nemur verð-
launaféð um einni millj-
ón íslenskra króna.
Kristín Ragna tilnefnd
fyrir Úlf og Eddu
Morgunblaðið/Eggert
Tilnefnd Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Mikilvæg(t) mál: litli prinsinn og
vísindamaðurinn nefnist sýning
sem Jóhanna Ásgeirsdóttir og
Susan Moon opna í Listastofunni í
JL-húsinu í kvöld kl. 18. Sýningin
er innblásin af Litla prinsinum eftir
Antoine de Saint-Exupéry. Boðið
verður upp á gjörninga í dag og á
morgun kl. 18 og um helgina kl. 16,
en áhugasamir þurfa að bóka miða
fyrir fram enda rýmið takmarkað.
Litli prinsinn og
vísindamaðurinn
Mikilvæg Verk innblásin af prinsinum.