Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ég sýni meðal annars bókverk sem ég kalla Annað rými, rétt eins og sýninguna,“ segir myndlistarkonan Eygló Harðardóttir þegar spurt er um verkin á sýningunni sem hún opnar í Nýlista- safninu í Mar- shallhúsinu í dag, fimmtudag, klukkan 17. Eygló vinnur gjarnan stað- bundnar innsetn- ingar, tví- og þrí- víða abstrakt- skúlptúra úr pappír, og er líka þekkt fyrir að vinna með fundin efni á sinn per- sónulega hátt. Í vinnuferlinu er hún ekki með fyrir fram ákveðna stefnu eða lokaútkomu í huga en þess í stað dregur hún hið óvænta upp á yfir- borðið. Frá árinu 2015 hefur Eygló unnið talsvert innan ramma bókverksins og dvaldi nýlega í vinnustofu í New York, þar sem hún gerði ýmsar efn- is- og litatilraunir á prentverkstæði. Útkoman varð meðal annars fyrr- nefnt bókverk Annað rými sem hún sýnir nú. Hún segist hafa gert það þar úti fyrir níu mánuðum en lokið því nýverið með lokaprentun í það. Salurinn skel um verkin „Ég hef líka stillt upp ýmsum verkum hér í sal Nýlistasafnsins og forðaðist í raun að mestu að setja eitthvað á veggina,“ segir Eygló. „Ég nota salinn svolítið eins og skel utan um verkin, sem eru létt og brothætt. Gegnumgangandi stef í verkunum eru teikningar sem ég teiknaði í dáleiðslu. Ég var dáleidd sex sinnum og kortlagði þá í hvert sinn ákveðið svæði í líkamanum.“ Hún vann að verkefninu í samstarfi við geðhjúkrunarfræðing sem ann- aðist dáleiðsluna. „Ég vissi ekki fyrir fram hvaða svæði yrði fyrir valinu en hafði hug- myndir um það. Mig langaði að upp- lifa þessi svæði líkamans eins og grunnplan bygginga eða abstrakt- myndir,“ segir hún. Og bætir við að það hafi tekist. Hún var í dáleiðsl- unni í um fjörutíu mínútur í senn og teiknaði svo í um tíu mínútur áður en dáleiðslunni var lokið. „Fyrstu kortlagningu líkamans í dáleiðslu gerði ég árið 2007 en endurtók svo leikinn fimm sinnum fyrir þessa sýningu. Ég gerði myndirnar með tússlit því mig langaði til að silkiþrykkja eftir þeim. Og það hef ég gert, í alls konar útfærslum, og afraksturinn er eitt verk sem er hér í mörgum hlut- um, prentað á sérstakan japanskan pappír, og þær myndir hanga á stöngum hér í salnum. Pappírinn er skúlptúr þar sem ég næ teikning- unum með silkiþrykki yfir á annað plan. Þá er hér stórt verk í sex ein- ingum, unnið á kínverskan pappír, og ég skrifaði á það með grafíthlunki texta sem dávaldurinn skrifaði upp eftir mér um líkamann.“ Eygló nefnir líka stórt gólfverk úr dökkum spjöldum og gleri, en gler kemur nokkuð við sögu í verkunum. „Efniviðurinn er frekar hrár, sumu breyti ég, öðru ekki, en ég byggi upp ýmiss konar einingar hér í Nýló.“ En hvað er svona heillandi við bókverk? „Það er eiginlega andstæða sýn- ingarsalar,“ svarar hún. „Rýmið hér í Marshallhúsinu er stórkostlegt og ég vann öll verkin sérstaklega fyrir þessa sýningu undanfarna níu mán- uði. En bókverkið er svo nálægt áhorfandanum, það má halda á því, geyma það, taka það fram aftur; það þarf ekki að ganga inn í sýningarsal til að upplifa það sem myndlist. Fyrir mér er bókverkið framlenging á salnum og býr yfir mikilli nánd.“ Þetta er fjórða einkasýningin sem Eygló setur upp í Nýlistasafninu. Hún nam við Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og Akademie voor Beeldende Kunst en Industrie í Hol- landi. Á ferli sínum hefur Eygló haldið fjölda sýninga, þar á meðal einkasýningar í Harbinger, Lista- safni Reykjavíkur, Ásmundarsafni og Listasafni ASÍ. Skúlptúr Eitt verka Eyglóar. Bókverk og dá- leiðsluteikningar  Eygló Harðardóttir sýnir í Nýló Eygló Harðardóttir Louvre-listasafnið í Abu Dhabi hef- ur ákveðið að fresta sýningu á mál- verkinu Salvator mundi, Bjargvætti heimsins, eftir Leonardo da Vinci, sem selt var fyrir metfé í nóvember í fyrra. Mikið hefur verið rætt og ritað um verkið og þá m.a. efast um að það sé í raun málað af da Vinci og það sé því langt frá því eins verðmætt og talið er. Menningarmálastofnun Samein- uðu arabísku furstadæmanna keypti verkið. Það sendi frá sér til- kynningu á Twitter um að sýningu á málverkinu hefði verið frestað. Engar ástæður eru gefnar fyrir frestuninni en skrifað að frekari upplýsingar muni berast síðar. Sérfræðinga greinir á um hvort da Vinci sé höfundur verksins, nema þá mögulega að hluta. Matt- hew Landrus, prófessor við Oxford- háskóla, telur sig geta sannað að málverkið sé að stærstum hluta málað af einum aðstoðarmanna da Vinci, Bernardino Luini. Sönnunin felist í því að bera saman Bjargvætt heimsins og önnur verk Luini. Da Vinci hafi aðeins málað 5-20% af verkinu en Luini verið aðalmál- arinn. Martin Kemp, einn helsti sér- fræðingur í verkum da Vinci, kveðst þó sannfærður um að hann sé aðal höfundurinn. Uppboðshúsið Christie’s seldi verkið fyrir um 47 milljarða kr., hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir myndlistarverk. Fresta sýningu á Salvator mundi Kristur Bjargvættur heimsins. Nýjar hendur - Innan seilingar Bíó Paradís 18.00 Kvíðakast Bíó Paradís 22.20 Söngur Kanemu Bíó Paradís 18.00 Masters of the Universe Bíó Paradís 20.00 Whitney Bíó Paradís 20.00, 22.00 Fanny and Alexander Í tilefni af hundrað ára af- mæli Ingmar Bergmans býð- ur Sænska sendiráðið í sam- starfi við Bíó Paradís upp á sérstaka dagskrá til heiðurs leikstjóranum. Frítt er inn á alla viðburði Bergman í Bíó Paradís og allir eru hjart- anlega velkomnir. Bíó Paradís 18.00, 20.00 Lof mér að falla 16 Þegar 15 ára Magnea kynn- ist 18 ára Stellu breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Laugarásbíó 19.50 KIN 12 Sambíóin Álfabakka 17.15, 17.30, 19.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 17.20, 19.40, 22.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Alpha 12 Metacritic 63/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 14.50, 17.20, 19.50, 21.20, 22.10 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.30 Crazy Rich Asians Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 20.00 The Happytime Murders 16 Laugarásbíó 22.40 Smárabíó 19.30, 22.00 Mile 22 16 Laugarásbíó 22.15 Smárabíó 21.50 Háskólabíó 20.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.30 Slender Man 16 Smárabíó 19.40, 22.00 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.40 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.30 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Össi Össi er mjög heppinn hund- ur. Hann býr hjá góðri fjöl- skyldu sem elskar hann af- skaplega mikið og lifið er gott. En einn góðan veð- urdag fer fjölskyldan í ferða- lag og skilur Össa eftir í pössun. Laugarásbíó 17.50 Smárabíó 15.00, 17.10 Borgarbíó Akureyri 17.30 Christopher Robin Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.15 Úlfhundurinn Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 17.20 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.40 Smárabíó 14.40 Draumur Smárabíó 15.00 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð. Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 The Meg 12 Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir um fortíð móður sinnar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.40, 19.50 Smárabíó 17.00, 19.30 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni misheppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30, 21.45 Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.