Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 71
» Jazzhátíð Reykjavík-ur hófst í gær og stendur hún yfir til og með 9. september. Setn- ingarathöfn hátíðar- innar fór fram í Borg- arbókasafni að lokinni skrúðgöngu hljóðfæra- leikara sem léku vita- skuld djass. Gangan hófst við verslunina Lucky Records á Rauð- arárstíg, skammt frá Hlemmi, kl. 17 og var djassað niður Lauga- veginn að Borgarbóka- safni. Hátíðin er nú haldin í 29. sinn og má finna dagskrá hennar á vefsíðunni reykjavik- jazz.is. Jazzhátíð Reykjavíkur hófst í gær með djassaðri skrúðgöngu Stemning Það er alltaf gaman á Jazzhátíðinni sem að þessu sinni er haldin á nokkrum stöðum, meðal annars í og við miðborgina í Reykjavík eftir að hafa verið í Hörpu undanfarin ár. Tónlist Blásið og trumbur barðar við verslunina Lucky Records á Rauðarárstígnum. Hlemmur Lagt af stað niður Laugaveginn í skrúðgöngu. Sunna Gunnlaugs- dóttir, hinn kunni djasspíanisti, er önnur frá hægri á þessari mynd. Sax Laufléttur leikur á Laugaveginum þar sem saxófónleikarar fóru fremstir og náðu heldur betur til áheyrenda. Djassinn og sveiflan eru smitandi og sannarlega gaman að vera til. Morgunblaðið/Valli MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 ICQC 2018-20 Áttu rödd að ljá okkur? Karlakór Reykjavíkur ætlar að bæta við sig söngmönnum í haust og miðvikudag- inn 12. september næstkomandi fara fram raddpróf fyrir áhugasama. Þau verða haldin í safnaðarsal Háteigskirkju og hefjast kl. 18.00. Við prófum raddsvið og tónheyrn og finnst það kostur ef þú býrð yfir kunnáttu í tónlist og nótnalestri. Það er þó alls ekki skilyrði. Ef þú hefur áhuga á að spreyta þig skaltu senda okkur línu á netfangið fsk@kkor.is. Frekari upplýsingar má fá í síma 896 4914. Vetrarstarfið Starfsár Karlakórs Reykjavíkur einkennast af tveimur hápunktum. Annars vegar eru það aðventutónleikar í Hallgrímskirkju sem í ár fara fram dagana 8. og 9. desember. Þeir eru alltaf vel sóttir enda fastur liður í jólaundirbúningi fjölmargra landsmanna. Eftir áramót hefst undirbúningur fyrir vortónleika í Langholtskirkju sem fara fram í lok apríl. Á þeim tónleikum er uppskera vetrarstarfsins lögð fram og að þeim loknum gleðjast kórmenn og makar þeirra yfir liðnum vetri og fagna vorkomu. Til viðbótar við þessa föstu liði er starfið kryddað með með alls kyns viðburðum á vegum ýmissa aðila. Sem dæmi má nefna þátttöku í tónleikum Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í síðasta mánuði. Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan. Kórinn býður upp á krefjandi og skemmtileg viðfangsefni í tónlist og líflegt félagsstarf í góðum félagsskap. Söngferðir til útlanda eru farnar reglulega auk þess sem byggðir landsins eru heimsóttar til tónleikahalds. Kórinn æfir alla þriðjudaga og annan hvern fimmtudag, tvo tíma í senn, og fara æfingar fram í safnaðarheimili Háteigskirkju. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson. Ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins Kosning og nánari upplýsingar á Facebook.com/bilafrettir Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara: • Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is • Frestur til að skila inn myndum í keppni september er til kl. 23:59 þriðjudaginn 11. sept. • Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn • Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu • Keppt verður í fjórum lotum, næstu þrjár mánuði og fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum • Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði • Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember Fyrsti vinningur er ferð fyrir tvo á bílasýning- una í Genf í mars. Í boði Toyota á Íslandi www.mbl.is/bill
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.