Morgunblaðið - 27.09.2018, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2018
5
1
7
2
#
Draghálsi 4
110 Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
LT 1400 - Kæling -18/-20°C . Hægt að læsa
með lykli. - Stærð (LxWxH) cm 142x80x205
- Þyngd 210kg
LT 700 - Kæling -10/-20°C .Hægt að
læsa með lykli. - Stærð (LxWxH) cm
72x80x207 - Þyngd 150kg
AF12EKOMBTPV - Kæling -18/-20°C -
Stærð (LxWxH) mm 1460x750x2200 -
Þyngd 189kg
EKO 11 Tveggja hólfa - Kæling -2/+8°C .Hægt að
læsa með lykli. Stærð (LxWxH) cm 142x70x90
Ítölsk gæðavara
Bernhard - Honda á Íslandi
Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
VERÐ KR. 1.690.000
4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT
SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT
TRX420FA6
Á laugardaginn kl. 14.00 verða í Bergi
í Hljómahöll í Reykjanesbæ haldnir
hátíðartónleikar til heiðurs Eiríki
Árna Sigtryggssyni tónskáldi sem á
75 ára afmæli um þessar mundir.
Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, hefur
verið í aðalhlutverki við undirbúning
tónleikanna sem hafa átt sér langan
aðdraganda. Á tónleikunum verður
flutt kammertónlist eftir Eirík en öll
verkin að einu undanteknu eru sam-
leiks- og samsöngsverk.
Eiríkur Árni er fæddur í Keflavík ár-
ið 1943. Hann er tónlistarkennari,
tónskáld og myndlistarmaður og hef-
ur síðari hluta ævi sinnar búið í
Reykjanesbæ. Starfað þar og í
Grindavík, meðal annars við tónlist-
arkennslu. „Markmiðið með tónleik-
unum er að heiðra Eirík Árna og
þakka honum fyrir störf hans í ára-
tugi í þágu tónlistarmenningar á
Suðurnesjum,“ segir Haraldur Árni.
Flytjendur eru nokkrir af fremstu
tónlistarmönnum þjóðarinnar á sviði
klassískrar tónlistar; píanóleikarinn
Helga Bryndís Magnúsdóttir, gítar-
leikarinn Þorvaldur Már Guðmunds-
son, einsöngvararnir Bylgja Dís
Gunnarsdóttir og Dagný Þórunn
Jónsdóttir og strengjakvartett, en
hann skipa Sigrún Eðvaldsdóttir,
Vera Panitch, Þórarinn Már Baldurs-
son og Sigurgeir Agnarsson. Einnig
mun Kvennakór Suðurnesja koma
fram undir stjórn Dagnýjar Þórunnar
Jónsdóttur, en meðleikari kórsins er
Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Tónleikarnir eru styrktir af Upp-
byggingarsjóði Suðurnesja, Menning-
arráði Reykjanesbæjar og Tónlistar-
félagi Reykjanesbæjar.
Hátíðartónleikar í Bergi í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ
Klassík og kammertónlist
Tónlist Eiríkur Árni hefur verið at-
kvæðamikill í tónlistarlífinu.
gjörðinni. Með öðrum orðum sagt á
þar að vera svigrúm fyrir fullorðna
að geta staldrað við í dagsins önn
og sinnt sínum erindum, til dæmis í
fartölvunni, á meðan börnin leika
sér. Nú er leitað að húsnæði fyrir
væntanlegt kaffihús sem hefur
fengið nafnið Smástund; rétt eins
og söfnunarsíðan á Karolina Fund
og Facebook-síða verkefnisins
heita.
Tryggja öryggi barnanna
Segja má að hin væntanlega
Smástund, sem verður væntanlega
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu,
verði ný vídd í annars fjölbreyttri
kaffihúsaflóru landsins. Þetta verð-
ur staður allra aldurshópa, en segja
verður að ekki hefur endilega verið
gert ráð fyrir börnum á þessum
stöðum. Í samfélagi þar sem fjöl-
skyldu- og barnvæn gildi eru æ of-
ar á blaði séu breytingar á kaffi-
húsamenningunni eðlilegar.
„Smástund er kaffihús sem
þjónustar foreldra jafnt sem börn,
með góðum veitingum fyrir alla,
leiksvæðum fyrir börn og hentugri
aðstöðu fyrir foreldra til að gera
helling eða hreinlega ekki neitt,“
sagði Salvör í samtali við Morgun-
blaðið. „Viðskiptalíkanið er byggt á
nýrri nálgun við þjónustu við þessa
tvo hópa. Markmið okkar er að
bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu í
umhverfi sem er afslappað, fallegt
og praktísk og höfðar jafnt til
barna sem og fullorðinna. Við
spáum í stóru smáatriðin eins og
foreldrar gera á sínum heimilum til
að tryggja öryggi barna sinna og
auðvelda þeim sjálfum lífið.“
Safnað fyrir kubbum
Salvör segist greina ríka þörf
fyrir kaffihús líkt því sem Smá-
stund á að vera. Þar eigi að gefa
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
N
æstkomandi mánu-
dag, 1. október,
hleypa vinkonurnar
Salvör Thorlacius og
Kolbrún Tara Frið-
riksdóttir af stokkunum netsöfnun
á Karolina Fund en þær stefna nú
að opnun kaffihúss þar sem leik-
völlur fyrir börn er hluti af um-
fólki með börn tækifæri til þess að
eiga stund fyrir sig. Á afmörkuðu
svæði inni á kaffihúsinu verði leik-
svæði fyrir börn frá tveggja ára
aldri; leikvöllur með hreyfanlegum
kubbum sem gefa börnum tækifæri
til að búa til sinn eigin leikvöll og
skapa sína eigin veröld. Er mark-
miðið með söfnuninni að fjármagna
kaupin á kubbunum og fá þá senda
til landsins sem kostar 1,5 milljónir
króna. „Inni á kaffihúsinu sjálfu
verða svo svæði fyrir yngri börn og
verður tilgangurinn með þeim að
fanga athygli þeirra, bjóða þeim að
skoða, snerta og efla ímyndunarafl
sitt. Við verðum með eitthvað fyrir
alla.“
Margar gæðastundir
Vænst er að hægt verði að
opna kaffihúsið nýja næsta vor.
„Við viljum vera miðsvæðis,
nærri samgönguæðum og helst í
námunda við gott útivistarsvæði.
Allar ábendingar um húsnæði og
góða staðsetningu eru því vel þegn-
ar,“ segir Salvör. Hún var fyrir
nokkrum í námi hjá Nýsköpunar-
miðstöð Íslands, þar sem konur
með góðar viðskiptahugmyndir fá
stuðning við að raungera málin og
koma rekstri á laggirnar. Þar seg-
ist Salvör hafi lært til verka, en að
mörgu sé að hyggja þegar setja á
atvinnustarfsemi af stað. Þær Kol-
brún Tari hafi kynnst þegar þær
voru samtímis í fæðingarorlofi árið
2016 og í rabbi þá hafði þær verið
sammála um að barnvænt kaffihús
væri þarft framtak. Þær hafi því
ákveðið að taka málið lengra og nú
sé allt komið á fleygiferð.
„Í samfélagi nútímans sem ein-
kennist af hraða er mikilvægt að
börn og foreldrar geti átt saman
sem flestar gæðastundir,“ segir
Salvör.
Smástund fyrir alla
Börn fá leikaðstöðu á
kaffihúsi sem stendur til
að opna í Reykjavík. Í af-
slöppuðu umhverfi eiga
foreldrar að geta sinnt
sínum erindum meðan
krakkarnir leika sér með
kubba en nú er safnað
fyrir kaupum á þeim.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Börn Í samfélagi nútímans sem einkennist af hraða er mikilvægt að börn og
foreldrar geti átt saman sem flestar gæðastundir, segir Salvör í viðtalinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinkonur Salvör Thorlacius og Kolbrún Tara Friðriksdóttir eru konur stórra og skemmtilegra hugmynda.