Morgunblaðið - 27.09.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.09.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2018 VÖNDUÐ JEPPADEKK Á FRÁBÆRU VERÐI STÆRÐ 315/70R17 49.600,- kr. STÆRÐ 285/70R17 46.900,- kr. ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900 WWW.ARCTICTRUCKS.IS ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR! nema þá Jóhann. Vel má vera að Jó- hann hafi einfaldlega tekið það upp hjá sjálfum sér án sérstakrar ástæðu að láta sér vaxa þessi mikli makki en kannski vildi hann líkjast frægum listamönnum og skáldum í útlöndum sem margir söfnuðu hári til að skera sig úr fjöldanum. Jóhann var úr fátækri fjölskyldu í Ólafsvík en sýndi snemma skáldleg tilþrif og menntahneigð og það varð til þess að hann var studdur til að leggja fyrir sig skólanám. Hann kom suður haustið 1913, 17 ára gamall, til að hefja nám í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Veikindi hans um vet- urinn urðu þess valdandi að honum var boðið til hvíldardvalar á bænum Galtafelli í Ölfusi. Þar bjuggu for- eldrar Einars Jónssonar sem var orðinn frægur myndhöggvari. Einar og Helgi Þorkelsson voru gamlir vin- ir, höfðu kynnst í Guðspekifélaginu, og milli Jóhanns og Einars tókst líka góður kunningskapur. Ekki er ósennilegt að rekja megi upphaf kunningsskapar Helga og Jóhanns Jónssonar til dvalarinnar á Galta- felli. Jóhann kemur til Reykjavíkur sumarið 1915 í von um að geta tekið inntökupróf í Menntaskólann og haf- ið nám um haustið. Þeir Helgi kynnt- ust þá og sórust í fóstbræðralag að fornum sið með því að láta blóð drjúpa. Jóhann var húsnæðislaus og bauð Helgi honum að flytja í hýbýli sín á Kárastíg 11. Helgi var ein- hleypur á þessum tíma og í öruggu starfi á umsvifamikilli klæðskera- stofu í Bankastræti, Árna og Bjarna. Hann tók að auki þátt í íþróttastarfi. Hjá Helga fékk Jóhann fæði og klæði og það sem var enn dýrmæt- ara, ósvikna vináttu heilsteypts manns. Jóhann kynntist um þetta leyti fráskilinni konu, fimmtán árum eldri, Elínu Thorarensen, sem rak matsölu í Þingholtsstræti, og tóku þau upp samband sem varði í eitt ár, en mætti andófi og fordómum. Um samband þeirra skrifaði Elín löngu seinna bókina Angantýr sem óhætt er að segja að hafi hlotið þöggun í meira en hálfa öld (þar til hún var endur- útgefin með skýringum haustið 2011). Jóhann „þoldi margar skap- raunir mín vegna,“ segir Elín í bók- inni. Þjóðfélagið gat fellt sig við að eldri karlar ættu ungar konur, en óviðeigandi þótti að ástarsamband væri á milli eldri konu og ungs manns. „Þú getur ekki hugsað þjer hvern- ig alt mitt hugarlíf ólgar nú í hvirfil- stormum milli skelfinga og gleði. Þú verður að vera mjer það sem ég vænti: að skilja líf mitt nú. Þess vænti eg altaf af þjer vinur og fóst- bróðir,“ segir Jóhann í sendibréfi til Helga einhvern tíma veturinn 1915 til 1916, þegar hann dvelur nætur- langt hjá Elínu í stað þess að koma heim til Helga. Vel má vera að Helgi hafi eins og fleiri vinir Jóhanns í Reykjavík haft áhyggjur af sam- bandi hans og Elínar, en það er ekki víst. Samtök virðast hafa verið meðal vina hans um að slíta því þegar Elín varð barnshafandi; Jóhann var studdur til ferðar norður til Akur- eyrar haustið 1916 til að ljúka þar gagnfræðaprófi og koma síðan til náms í Menntaskólanum. Elínu ligg- ur mjög vel orð til Helga sem hún segir í bókinni að hafi verið „skjól hans og skjöldur, bæði fyrr og síðar“. Hún heimsótti Jóhann oft á Kára- stíginn haustið 1916 og um veturinn. „Þetta sama haust fékk Angantýr (en svo nefndi Elín Jóhann) ný, fal- leg, föt, dökkblá. Helgi Þorkels gaf honum þau. Helgi gaf honum líka vetrarfrakka skömmu síðar. Hann kölluðum við Kuldabola,“ skrifar El- ín. Hún segir líka frá ferðalagi Helga og Jóhanns austur í sveitir til fólks- ins á Galtafelli; drjúgan hluta ferðar- innar fóru þeir fótgangandi og hlýtur það að hafa verið mikið álag á Jó- hann sem var með staurfót eftir berklasmit. Varðveist hafa nokkur bréf Jó- hanns til Helga og kveðskapur sem hann sendi honum. „Þú átt meiri ítök í hjarta mínu en aðrir vinir mínir,“ segir hann í bréfi frá Akureyri í des- ember 1916 og bætir við: „Í raun og veru finnur maður aldrei að fullu hverjir vinirnir eru fyr en þeir eru fjarlægir. Og þannig er það með alt þetta líf, – fjarlægðin er sjón vorri nauðsynleg.“ Eftir að Jóhann Jónsson hélt til bókmenntanáms í Þýskalandi sum- arið 1921 átti hann ekki afturkvæmt til Íslands. Hann lést úr berklum í Leipzig 1932. Vinir hans úr mennta- skóla héldu minningu hans á lofti, ekki síst Halldór Laxness. Úrval kvæða hans og ritgerða hefur tvíveg- is komið út á bók. Helgi kvæntist Guðríði Sigur- björnsdóttur, og eignuðust þau tvo syni, Einar sem varð læknir og Kjartan sem varð þekktur ferða- málafrömuður. Helgi var um langt árabil formaður Klæðskerasveina- félagsins Skjaldborgar og svo harður bolseviki að það hvarflaði aldrei að honum að verða meistari í sinni grein og komast þannig í stétt betri borg- ara. Af vináttu skáldsins og klæðskerans  Jóhann Jónsson og Helgi Þorkelsson sórust í fóstbræðralag að fornum sið Ljósmynd/Úr myndasafni afkomenda Helga Þorkelssonar Fóstbræður Jóhann Jónsson (stand- andi) og Helgi Þorkelsson. Myndin, sem ekki hefur birst áður, er líklega tekin á árunum 1915 til 1917. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Áður óþekkt ljósmynd af Jóhanni Jónssyni og Helga Þorkelssyni, sem rak á fjörur blaðsins, vekur þá skemmtilegu spurningu hvort „bítla- hár“ hafi verið komið í tísku meðal ungra manna í Reykjavík hálfri öld fyrr en ensku Bítlarnir komu til sögu. Myndin gefur þó ekki síður til- efni til að rifja upp vináttu þessara tveggja manna á þeim dögum þegar fátækt var slík hér á landi að það var ekki sjálfsagt að hafa þak yfir höfuð- ið eða eiga fyrir fæði og klæðum. Jóhann Jónsson (1896-1932), skáldið sem orti ljóðið fræga, Söknuð („Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað ...“), og Helgi Þorkelsson (1886-1970), klæðskeri og síðar verkalýðsforingi, kynntust líklega sumarið 1915, Jóhann var þá á 19. ári og Helgi tíu árum eldri. Á milli þeirra tókst náin vinátta sem átti stóran þátt í því að Jóhann gat hafið nám í Menntaskólanum í Reykjavík haustið 1917 og lokið stúdentsprófi 1920. Helgi, sem var í fastri vinnu, skaut skjólshúsi yfir hann vega- lausan og snauðan og varð fjárhalds- maður hans og fóstbróðir. Ljósmyndin mun tekin einhvern tíma á árunum 1915 til 1917. Ef skoð- aðar eru myndir af ungum mönnum í Reykjavík, til dæmis skólapiltum, frá þessum árum eru þeir yfirleitt snyrtilega klipptir. Ekki hafa í fljót- heitum fundist dæmi um að nokkur hafi verið jafn hárprúður og Jóhann Jónsson er þarna. Það voru því engir „bítlar“ í bænum á þessum tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.