Morgunblaðið - 27.09.2018, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
nema þá Jóhann. Vel má vera að Jó-
hann hafi einfaldlega tekið það upp
hjá sjálfum sér án sérstakrar ástæðu
að láta sér vaxa þessi mikli makki en
kannski vildi hann líkjast frægum
listamönnum og skáldum í útlöndum
sem margir söfnuðu hári til að skera
sig úr fjöldanum.
Jóhann var úr fátækri fjölskyldu í
Ólafsvík en sýndi snemma skáldleg
tilþrif og menntahneigð og það varð
til þess að hann var studdur til að
leggja fyrir sig skólanám. Hann kom
suður haustið 1913, 17 ára gamall, til
að hefja nám í Flensborgarskólanum
í Hafnarfirði. Veikindi hans um vet-
urinn urðu þess valdandi að honum
var boðið til hvíldardvalar á bænum
Galtafelli í Ölfusi. Þar bjuggu for-
eldrar Einars Jónssonar sem var
orðinn frægur myndhöggvari. Einar
og Helgi Þorkelsson voru gamlir vin-
ir, höfðu kynnst í Guðspekifélaginu,
og milli Jóhanns og Einars tókst líka
góður kunningskapur. Ekki er
ósennilegt að rekja megi upphaf
kunningsskapar Helga og Jóhanns
Jónssonar til dvalarinnar á Galta-
felli.
Jóhann kemur til Reykjavíkur
sumarið 1915 í von um að geta tekið
inntökupróf í Menntaskólann og haf-
ið nám um haustið. Þeir Helgi kynnt-
ust þá og sórust í fóstbræðralag að
fornum sið með því að láta blóð
drjúpa. Jóhann var húsnæðislaus og
bauð Helgi honum að flytja í hýbýli
sín á Kárastíg 11. Helgi var ein-
hleypur á þessum tíma og í öruggu
starfi á umsvifamikilli klæðskera-
stofu í Bankastræti, Árna og Bjarna.
Hann tók að auki þátt í íþróttastarfi.
Hjá Helga fékk Jóhann fæði og
klæði og það sem var enn dýrmæt-
ara, ósvikna vináttu heilsteypts
manns.
Jóhann kynntist um þetta leyti
fráskilinni konu, fimmtán árum eldri,
Elínu Thorarensen, sem rak matsölu
í Þingholtsstræti, og tóku þau upp
samband sem varði í eitt ár, en mætti
andófi og fordómum. Um samband
þeirra skrifaði Elín löngu seinna
bókina Angantýr sem óhætt er að
segja að hafi hlotið þöggun í meira
en hálfa öld (þar til hún var endur-
útgefin með skýringum haustið
2011). Jóhann „þoldi margar skap-
raunir mín vegna,“ segir Elín í bók-
inni. Þjóðfélagið gat fellt sig við að
eldri karlar ættu ungar konur, en
óviðeigandi þótti að ástarsamband
væri á milli eldri konu og ungs
manns.
„Þú getur ekki hugsað þjer hvern-
ig alt mitt hugarlíf ólgar nú í hvirfil-
stormum milli skelfinga og gleði. Þú
verður að vera mjer það sem ég
vænti: að skilja líf mitt nú. Þess
vænti eg altaf af þjer vinur og fóst-
bróðir,“ segir Jóhann í sendibréfi til
Helga einhvern tíma veturinn 1915
til 1916, þegar hann dvelur nætur-
langt hjá Elínu í stað þess að koma
heim til Helga. Vel má vera að Helgi
hafi eins og fleiri vinir Jóhanns í
Reykjavík haft áhyggjur af sam-
bandi hans og Elínar, en það er ekki
víst. Samtök virðast hafa verið meðal
vina hans um að slíta því þegar Elín
varð barnshafandi; Jóhann var
studdur til ferðar norður til Akur-
eyrar haustið 1916 til að ljúka þar
gagnfræðaprófi og koma síðan til
náms í Menntaskólanum. Elínu ligg-
ur mjög vel orð til Helga sem hún
segir í bókinni að hafi verið „skjól
hans og skjöldur, bæði fyrr og síðar“.
Hún heimsótti Jóhann oft á Kára-
stíginn haustið 1916 og um veturinn.
„Þetta sama haust fékk Angantýr
(en svo nefndi Elín Jóhann) ný, fal-
leg, föt, dökkblá. Helgi Þorkels gaf
honum þau. Helgi gaf honum líka
vetrarfrakka skömmu síðar. Hann
kölluðum við Kuldabola,“ skrifar El-
ín. Hún segir líka frá ferðalagi Helga
og Jóhanns austur í sveitir til fólks-
ins á Galtafelli; drjúgan hluta ferðar-
innar fóru þeir fótgangandi og hlýtur
það að hafa verið mikið álag á Jó-
hann sem var með staurfót eftir
berklasmit.
Varðveist hafa nokkur bréf Jó-
hanns til Helga og kveðskapur sem
hann sendi honum. „Þú átt meiri ítök
í hjarta mínu en aðrir vinir mínir,“
segir hann í bréfi frá Akureyri í des-
ember 1916 og bætir við: „Í raun og
veru finnur maður aldrei að fullu
hverjir vinirnir eru fyr en þeir eru
fjarlægir. Og þannig er það með alt
þetta líf, – fjarlægðin er sjón vorri
nauðsynleg.“
Eftir að Jóhann Jónsson hélt til
bókmenntanáms í Þýskalandi sum-
arið 1921 átti hann ekki afturkvæmt
til Íslands. Hann lést úr berklum í
Leipzig 1932. Vinir hans úr mennta-
skóla héldu minningu hans á lofti,
ekki síst Halldór Laxness. Úrval
kvæða hans og ritgerða hefur tvíveg-
is komið út á bók.
Helgi kvæntist Guðríði Sigur-
björnsdóttur, og eignuðust þau tvo
syni, Einar sem varð læknir og
Kjartan sem varð þekktur ferða-
málafrömuður. Helgi var um langt
árabil formaður Klæðskerasveina-
félagsins Skjaldborgar og svo harður
bolseviki að það hvarflaði aldrei að
honum að verða meistari í sinni grein
og komast þannig í stétt betri borg-
ara.
Af vináttu
skáldsins og
klæðskerans
Jóhann Jónsson og Helgi Þorkelsson
sórust í fóstbræðralag að fornum sið
Ljósmynd/Úr myndasafni afkomenda Helga Þorkelssonar
Fóstbræður Jóhann Jónsson (stand-
andi) og Helgi Þorkelsson. Myndin,
sem ekki hefur birst áður, er líklega
tekin á árunum 1915 til 1917.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Áður óþekkt ljósmynd af Jóhanni
Jónssyni og Helga Þorkelssyni, sem
rak á fjörur blaðsins, vekur þá
skemmtilegu spurningu hvort „bítla-
hár“ hafi verið komið í tísku meðal
ungra manna í Reykjavík hálfri öld
fyrr en ensku Bítlarnir komu til
sögu. Myndin gefur þó ekki síður til-
efni til að rifja upp vináttu þessara
tveggja manna á þeim dögum þegar
fátækt var slík hér á landi að það var
ekki sjálfsagt að hafa þak yfir höfuð-
ið eða eiga fyrir fæði og klæðum.
Jóhann Jónsson (1896-1932),
skáldið sem orti ljóðið fræga, Söknuð
(„Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum
glatað ...“), og Helgi Þorkelsson
(1886-1970), klæðskeri og síðar
verkalýðsforingi, kynntust líklega
sumarið 1915, Jóhann var þá á 19. ári
og Helgi tíu árum eldri. Á milli
þeirra tókst náin vinátta sem átti
stóran þátt í því að Jóhann gat hafið
nám í Menntaskólanum í Reykjavík
haustið 1917 og lokið stúdentsprófi
1920. Helgi, sem var í fastri vinnu,
skaut skjólshúsi yfir hann vega-
lausan og snauðan og varð fjárhalds-
maður hans og fóstbróðir.
Ljósmyndin mun tekin einhvern
tíma á árunum 1915 til 1917. Ef skoð-
aðar eru myndir af ungum mönnum í
Reykjavík, til dæmis skólapiltum, frá
þessum árum eru þeir yfirleitt
snyrtilega klipptir. Ekki hafa í fljót-
heitum fundist dæmi um að nokkur
hafi verið jafn hárprúður og Jóhann
Jónsson er þarna. Það voru því engir
„bítlar“ í bænum á þessum tíma