Morgunblaðið - 27.09.2018, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2018
Gagnrýndi hann sér í lagi notkun
Woodwards á ónafngreindum heim-
ildamönnum. Woodward segir bók-
ina byggða á yfir hundrað klukku-
tímum af samtölum við beina
þátttakendur í atburðarásinni.
Óvægið ritverk
Fear er óvægnasta bók Woodw-
ards frá því þeir Carl Bernstein
knúðu Nixon úr embætti með tíma-
mótabókinni „All the President’s
Men“ sem byggðist á skrifum þeirra
um Watergate-hneykslið í The
Washington Post.
Nýja bókin er sú 19. í röðinni sem
Woodward sendir frá sér. Í henni er
haft eftir starfsmannastjóra Hvíta
hússins, John Kelly, að Trump for-
seti sé genginn af göflunum. Í sam-
tölum við annað starfsfólk hússins
kallaði Kelly forsetann „hálfvita“. Þá
kvartaði hann yfir því að vera stadd-
ur á „vitleysingahæli“. Fyrrverandi
lögmaður forsetans, John Dowd,
þrýstir á kaunið og lýsir Trump sem
lygara að eðlisfari.
Bókin „Fear“ er ekki sú fyrsta
sem ekki skjallar forsetann og stjórn
hans. Hún er frábrugðin öðrum að
vera með þann gæðastimpil að hinn
75 ára gamli Woodward er höfundur
hennar. Áður en hann lagði blaða-
mennsku fyrir sig var hann í fimm ár
liðsmaður bandaríska flotans. Fyrstu
umsókn hans um starf á Washington
Post var hafnað vegna reynsluskorts
hans í faginu. Starfaði hann á út-
hverfablöðum á Washington-
svæðinu til að afla sér reynslu og var
seinni starfsumsókn hans á Washin-
gon Post um síðir samþykkt. Þar var
fyrsta starfsárið ekki liðið er þeir
Bernstein duttu niður á sína fræg-
ustu frétt, innbrotið í höfuðstöðvar
Demókrataflokksins í Watergate-
byggingunni árið 1972. Njósnir
þeirra af málinu og rannsóknarblaða-
mennska afhjúpuðu hneykslið og af
þeim leiddu allskyns formlegar lög-
reglurannsóknir – og svo afsögn Nix-
ons 1974.
Óvenjulegt aðgengi
„All the President’s Men“ varð
gríðarlega söluhá og á henni var
byggð samnefnd kvikmynd sem vann
til Óskarsverðlauna. Fór Robert
Redford með hlutverk Woodwards í
henni. Allt frá þessum tíma hefur
hann átt greiðan aðgang að áhrifa-
mönnum í Washington sem svarað
hafa símhringinum hans fljótt og vel.
Hann hefur sent frá sér bók að jafn-
aði á tveggja ára fresti, meðal þeirra
eru umfangsmikil rauntímabókverk
um þrjá fyrrverandi forseta, Bill
Clinton, George W. Bush og Barack
Obama. Af öðrum verkum hans má
nefna djúptæka innsýn í starfsemi
Hæstaréttar Bandaríkjanna og
leyniþjónustunnar CIA. Allan tím-
ann hefur hann starfað á Washington
Post og er sem stendur ritstjórn-
arfulltrúi. Hefur hið stöðuga bóka-
streymi frá Woodward gert honum
kleift að viðhalda og rækta samband
sitt við æðstu áhrifa- og valdamenn í
Washingon og opna dyr fyrir nýliða í
valdakerfinu.
Vörumerki hans sem áreiðanlegur
skrásetjari frásagna af því hvernig
kaupin gerast í valdakerfinu þykir
ekki eiga sér viðjöfnuð. Með þraut-
seigju sinni við að fylgja eftir því sem
innherjar lauma að honum og draga
það fram í dagsljósið hefur hann
áunnið sér tregablandna virðingu í
bandarísku höfuðborginni.
„Okkur fannst það alltaf mikilvægt
fyrir forsetann og aðra að fara í við-
töl hjá honum,“ segir Scott McClell-
an, talsmaður George W. Bush for-
seta, í byrjun aldarinnar, við
AFP-fréttastofuna. „Við vildum
tryggja að hann hefði aðgang að for-
setanum og fleiri til að frásagnir af
því sem gerðist að tjaldabaki og
þankagangi þar væru ítarlegar og
réttar.“
„Ekki mitt að dæma“
Í öllum bókum sínum hefur Wo-
odward rakið af vandvirkni fundi,
umræður og stefnumál á þunglama-
legan og ódramatískan hátt og forð-
ast að setja skrif sín í víðara sam-
hengi. „Þetta eru bækur þar sem
mælanlega heilastarfsemi er tæpast
að finna,“ sagði rithöfundurinn Joan
Didion í ritgerð þar sem hann gagn-
rýndi sex bækur Woodwards árið
1996. Stuðningsmenn rannsóknar-
blaðamannsins segja aftur á móti að
staðreyndaupptalningarstíll hans sé
hin bjargfasta undirstaða trúverðug-
leika hans.
„Á tímum „annars staðreynda-
vals“ og tæringartísts um „fals-
fréttir“ er Woodward gulls ígildi
sannleikans,“ sagði hin reynda blaða-
kona Jill Abramson í grein sem hún
ritaði um bókina „Fear“ í Washing-
ton Post. „Hlutskipti mitt er ekki að
bera dóm á borð,“ sagði Woodward
við vefsíðuna Vox fyrr á árinu, heldur
væri hlutverk hans „að rekja ná-
kvæmlega það sem fólk hefur gert,
hvað það gæti táknað, hvað drífur
það áfram og hvert það er.“
Kipptu skjölum undan
Rauði þráðurinn í aðferðafræði
Woodwards segir til sín í „Fear“,
sem lýsir meiri óhæfu en fyrri opin-
ská ritverk hans. Hún hefst á stuldi
efnahagsráðgjafans Gary Cohns á
skjali af skrifborði forsetans til að
koma í veg fyrir að hann undirritaði
það, en með því vildi hann koma í veg
fyrir að þjóðaröryggi Bandaríkjanna
yrði skaðað. Greinir Woodward frá
fundum með Trump þar sem honum
virtist forsetinn ekki bera skynbragð
á þýðingarmikil viðfangsefni. Auð-
mýktir aðstoðarmenn forsetans
lögðu á ráðin sín á milli til að koma í
veg fyrir að forsetinn framkvæmdi
einhverja vitleysu og til að koma í
veg fyrir að hættulegustu fyrirmæli
hans næðu fram. Aukinheldur
reyndu þeir að sefa æðisköstin þegar
skapofsi forsetans blossaði upp.
Woodward hefur sérlega skaðleg
ummæli eftir Jim Mattis varnar-
málaráðherra þess efnis að Trump sé
svo illa að sér í alþjóðamálum að
hann hafi ekki meiri skilning á þeim
en 11 ára piltur. Dæmi er tekið í bók-
inni um það þegar sýrlenski stjórnar-
herinn beitti efnavopnum í Sýrlandi í
fyrra, 2017. Þá hefði forsetinn sagt
að Bandaríkin ættu að drepa Bashar
al-Assad, forseta Sýrlands. „Drepum
hann, fjandinn hafi það. Förum inn.
Drepum heilan helling af þeim,“ á
Trump að hafa sagt. Mattis mun hafa
lofað að brugðist yrði strax við en
hann hafi látið hugmyndina um af-
tökuna hverfa mjög laumulega.
Hef gert það sem þurfti
Vegna þess hversu mikilsvirtur
blaðamaður Woodward er og vægi
hans mikið munu uppljóstranir í bók
hans koma sér enn verr fyrir forset-
ann en fyrrnefndar bækur aðrar sem
fjalla um forsetatíð Trumps. Í bók-
inni kemur fram að Trump geri
ítrekað lítið úr rágjöfum sínum þegar
þeir heyri ekki til. Til að mynda hafi
hann hæðst að þjóðaröryggis-
ráðgjafa sínum. Þá hafi hann kallað
Reince Priebus, forvera Kellys í
starfi starfsmannastjóra, „litla rottu
sem þeyttist út um allt“. Jeff Sess-
ions, dómsmálaráðherra landsins,
mun hann hafa kallað „andlega
skertan“. Hann væri bara heimskur
suðurríkjamaður sem hafi ekki getað
starfað sem lögmaður í Alabama.
Eins og við var að búast brást
Trump harkalega við bókinni. Sagði
hann „Fear“ vera „uppspuna“ og
kallaði Woodward „fífl“. Ýmsir af
ráðgjöfunum, þar á meðal Mattis og
Kelly, vísuðu á bug ummælum sem
eftir þeim eru höfð í bókinni og sögð-
ust engar upplýsingar hafa látið Wo-
odward í té. Sjálfur segir hann að
margir heimildarmenn hans hafi tek-
ið fram við sig að þeir myndu neita
öllu sem vísaði til þeirra eftir að bók-
in kæmi út.
„Ég lýg engu,“ sagði Woodward í
sjónvarpsþætti í síðustu viku. „Hver
er víglínan í Bandaríkjunum önnur
en stjórnmálin?“ spurði hann og
svaraði samstundis: „Það er tekist á
um sannleikann.“ Bætti hann svo við:
„Ég hef gert það sem þurfti, það er
það besta sem ég get.“
agas@mbl.is
Frá Watergate til óttans við Trump
„Fear“ er nýjasta bókin í hópi ritverka þar sem aðilar sem jafnvel eru nánir – eða hafa
verið nánir – samverkamenn Donalds Trumps forseta, eru helstu heimildarmenn
AFP
Ótti Nýja bókin eftir Woodward í stöflum í Costco verslun í Alhambra í Kaliforníu. Bókin hefur selst í bílförmum.
AFP
Afkastamikill Bob Woodward hef-
ur skrifað bækur um átta forseta.
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Hin æsilega bók bandaríska rann-
sóknarblaðamannsins Bobs Woodw-
ards, „Fear: Trump in the White
House“, seldist í 1,1 milljón eintaka á
fyrstu viku eftir að hún kom í versl-
anir um miðjan mánuðinn. Engin bók
hefur selst hraðar í 94 ára sögu for-
lagsins Simon and Schuster. Hún
fjallar um Donald Trump Banda-
ríkjaforseta og starfslið hans. Þar er
sagt að starfsfólk Hvíta hússins sé á
barmi taugaáfalls og að Trump sé
haldinn ofsóknaræði á háu stigi.
Hið opinskáa 357 blaðsíðna yfirlit
um innra gangverk í starfsliði
Trumps frá valdatöku hans seldist í
900.000 eintökum útkomudaginn, 11.
september, þar með talin prentuð
eintök, hljóðbækur og stafræn ein-
tök. Engin bók hefur selst jafnhratt í
heiminum í hálfa öld að minnsta
kosti. Stráféllu eldri sölumet höfunda
á borð við Dan Brown og JK Rowl-
ing.
„Það er aðeins hægt að lýsa söl-
unni á Fear með einu orði og það orð
er „gríðarleg“,“ sagði Jonathan
Karp, forstjóri forlagsins. Viku eftir
útkomuna varð að hefja tíundu
prentun og útgáfuréttur á bókinni
hafði þá verið seldur til 24 landa. Að
hluta til getur Woodward þakkað
Trump söluna með harðskeyttum
viðbrögðum sínum við bókinni.
„Fear“ er nýjasta bókin í hópi rit-
verka þar sem aðilar sem jafnvel eru
nánir – eða hafa verið nánir – sam-
verkamenn forsetans eru helstu
heimildarmenn. Hún þykir jafnvel
taka fram bókinni „Fire and Fury“
eftir Michael Wolff sem seldist í rúm-
lega milljón eintaka í fyrstu viku eftir
útkomu hennar í janúar síðast-
liðnum. Í kjölfar bókar Wolffs sigldu
bækur eftir James Comey, fyrrver-
andi yfirmann bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, „A Higher Loyalty“
og „Unhinged“ eftir Omarosa Mani-
gault Newman, fyrrverandi ráðgjafa
forsetans.
Hröktu Nixon úr starfi
Trump hefur freistað þess að grafa
undan bók Woodwards og hefur sagt
að fjöldi staðhæfinga blaðamannsins
sé rangur. Woodward gat sér fyrst
frægðar er hann ásamt Carl Bern-
stein, starfsfélaga sínum á blaðinu
Washington Post, fletti ofan af Wa-
tergate-hneykslinu svonefnda. Um-
fjöllun þeirra átti sinn þátt í að Rich-
ard Nixon hrökklaðist úr starfi
forseta árið 1974. Trump hefur sagt
bókina vera „brandara“, „þvætting“
og eitt verk í viðbót í „árásum“ á sig.
Sundaborg 1
104Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SÓLARFILMUR!
Lausnir
fyrir
heimili
og fyrirtæki
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937