Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 6
Náttúrufræðingurinn
6
sem heillar ferðamenn sérstaklega
er fegurð hennar og óbyggðir, auk
þess sem hún er óröskuð, að þeirra
mati.32 Í ljósi þess að landslag er
mjög opið víða hér á landi, ekki síst
á hálendinu,33 má búast við að raf-
línur hafi töluverð áhrif á upplifun
fólks sem þar fer um. Í ljósi vax-
andi mikilvægis ferðaþjónustunnar
og aukinnar þarfar fyrir að styrkja
raforkuflutningskerfið með frekari
uppbyggingu raflína er brýnt að
vita hvert viðhorf ferðamanna er til
raflína í náttúrunni.
Í þessari grein er unnið úr niður-
stöðum þeirra kannana sem voru
gerðar fyrir faghóp 2 í þriðja áfanga
rammaáætlunar (Áætlunar um
vernd og orkunýtingu landsvæða).
Niðurstöður þeirra hafa nú þegar
verið birtar í rannsóknar skýrslum,
einni fyrir hvert þeirra svæða sem
til skoðunar voru34–40 og einni þar
sem allar niðurstöður eru teknar
saman,41 og leiddu þær í ljós að
raflínur eru þau virkjanamannvirki
sem ferðamönnum þykja óæskileg-
ust. Hér er kafað dýpra í niðurstöð-
urnar en unnt var í fyrri greinum og
svör ferðamannanna sem þar voru
spurðir greind ýtarlegar.
Rannsóknarspurningar sem leit-
að er svara við eru þessar:
1. Draga raflínur úr áhuga ferða-
manna á að ferðast um viðkom-
andi svæði?
2. Mega raflínur vera á svæðum
án þess að ferðamenn hætti að
upplifa þau sem víðerni?
3. Hvert er viðhorf ferðamanna til
raflína og er munur á því eftir
því hvort þær eru á láglendi eða
hálendi?
4. Hversu æskilegar eða óæski-
legar þykja ferðamönnum raf-
línur á þeim svæðum sem þeir
ferðast um?
5. Hvaða hópar eru viðkvæmastir
fyrir raflínum í náttúru Íslands?
Til þess að styrkja samkeppn-
ishæfni Íslands sem áfangastaðar
ferðamanna er mikilvægt að vita
viðhorf hinna mismunandi hópa og
átta sig á hvort einhverjir hópar séu
viðkvæmari fyrir raflínum í náttúru
landsins en aðrir.
Gögn og aðferðir
Rannsóknin er megindleg og byggist
á pósitífískri rannsóknarnálgun42
þar sem gagna var aflað með spurn-
ingakönnun. Könnunin var lögð
fyrir ferðamenn á sjö stöðum, þ.e.
við Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti,
2. mynd. Gagnasöfnunarstaðir og hluti þeirra virkjunarkosta sem fjallað var um í 3. áfanga rammaáætlunar. – Sites of data collection and
some of the proposed power plants evaluated in the 3rd phase of the Master plan for Nature Protection and Energy Utilization.