Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 18

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 18
Náttúrufræðingurinn 18 flated negative binomial regression) var notuð til þess að meta og bera saman meðalfjölda ískóðs á stöð eft- ir árum, en þar er sérstaklega tekið tillit til hins mikla fjölda núll-stöðva í gögnunum.28 Ennfremur var kann- að hlutfall stöðva með ískóði og meðalfjöldi ískóðs á stöð með tilliti til botnhita. Loks voru gögn um fjölda á stöð notuð til að meta líkur á að veiða ískóð sem fall af botnhita og sem fall af dýpi. Greind voru gögn úr seiðaleið- öngrum Hafrannsóknastofnunar umhverfis Ísland og um íslausan hluta austur-grænlenska land- grunnsins, milli u.þ.b. 65–68º N, í ágúst-september á árunum 1974– 2003, og með því aflað upplýsinga um útbreiðslu, fjölda og lengd ískóðs í yfirborðslögum sjávar. Yfirleitt var fylgt föstum leiðarlínum (4. mynd) en staðsetning og fjöldi togstöðva voru breytileg milli ára. Fæstar voru stöðvarnar 55, árið 1974, en flestar 347, árið 1997; að með- altali 217. Stöðvataka var stöðluð þannig að tekið var tveggja sjómílna tog á um 20–50 m dýpi með flot- vörpu sem hafði 18 × 18 m opnun og 0,5 × 0,5 cm möskva í poka.19 Sama veiðarfæri var notað allan rannsóknartímann. Botnhiti á togstöðvum í stofn- mælingu var mældur með síritandi hitamæli sem festur var á höfuðlínu vörpunnar. Gildi fyrir einstök ár voru fengin með því að reikna meðal tal af hitamælingum á öllum stöðvum á meginútbreiðslusvæði ískóðs (3. mynd). Hitamælingar sem birtar eru í tengslum við umfjöll- un um niðurstöður seiðaleiðangra byggjast á sískráningu frá hitanema við inntak á sjó til kælingar á vélbún- aði rannsóknarskips (á 6 m dýpi). NIÐURSTÖÐUR Stofnmælingarleiðangrar Samtals fengust 2.376 ískóð í 823 (5%) af þeim 16.339 togum sem tekin voru með botnvörpu á 29 ára rannsóknartímabili. Af heildarfjölda ískóðs veiddust 2.263 (95,2%) á meginútbreiðslusvæðinu (3. mynd). Mest fengust á einni stöð 83 fiskar, á 342 m dýpi á landgrunninu norð- austur af landinu árið 1995. Á flestum stöðvum (72,8%) þar sem ískóð veiddist á annað borð fengust aðeins 1–2 fiskar. Ískóð var algengast í botnvörpu á ytri hluta landgrunnsins fyrir norðvestan og norðan, á um 67º N og 17–24º V. Undan Vestfjörðum fékkst ískóð sjaldan vestan 24º V. Þau ár sem útbreiðslan var hvað víðáttumest (s.s. 1989, 1994, 1995) teygði hún sig lengra austur á bóg- inn og nær norður- og norðaust- urströndinni, og í einstaka árum (1994, 1995) suður á 65° N undan Austfjörðum (3. mynd). Þegar athugaðar eru langtíma- breytingar á hlutfalli stöðva þar sem ískóð fékkst koma í ljós fjög- ur hámörk (1989–1990, 1994–1995, 2002–2003 og 2007–2009) sem gefa til kynna víðáttumestu útbreiðsl- una (5. mynd). Aðhvarfsgreining hlutfalla sýnir að á ofangreindum árum voru hlutföllin marktækt hærri en heildarmeðaltalið (p<0,05). Í langtímabreytingum á meðalfjölda ískóðs á stöð sjást svipaðar sveiflur 4. mynd. Togstöðvar í seiðaleiðangri á hafsvæðinu umhverfis Ísland og við Austur-Grænland í ágúst-september 1986 og útbreiðsla ískóðs á árunum 1974–2003. Nákvæm staðsetning stöðva var breytileg milli ára en árið 1986 er hér sýnt til að gefa til kynna dæmigerða yfirferð þegar bæði var farið um hafsvæðið við Ísland og Austur-Grænland (ekki var farið um grænlenska hafsvæðið árin 1974, 1975 og 1997–2003. Litaðir punktar sýna fjölda ískóðs á stöð og mjóar svartar línur eru jafndýptarlínur á 500 og 1000 m. – Stations sampled during the pelagic 0-group survey of Icelandic-East Greenland waters in August-September 1986 and distribution of polar cod during 1974–2003. Station locations varied among years while the year 1986 is here shown as a representative year when both Icelandic and East Greenland waters were surveyed (East Greenland waters were not surveyed in 1974, 1975 and 1997–2003). The coloured points show number of polar cod caught per station and thin lines show depth contours at 500 and 1000 m.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.