Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 84
Náttúrufræðingurinn
84
sérfræðinga og fulltrúa ólíkra sviða
innan íslenskra náttúruvísinda
Ósk um fund með
menntamálaráðherra
Margítrekuð ósk HÍN um fund með
menntamálaráðherra um málefni
Náttúruminjasafns hefur legið inni
í ráðuneyti hans allt frá haustinu
2013. Málið hefur orðið að fram-
haldssögu í ársskýrslum HÍN. Í
ár hefur enn verið reynt að ná
fundi með ráðherra og beiðni um
það ítrekuð. Þann 30. mars var að
endingu boðað til þessa langþráða
fundar og mættu fulltrúar HÍN í
mættu í Menntamálaráðuneytið á
tilsettum tíma og tóku embættis-
menn þar vel á móti þeim. Dráttur
varð þó á því að ráðherra birtist
og að lokum var tilkynnt að vegna
óvæntra atvika yrði að aflýsa fundi
með ráðherranum. Hins vegar áttu
fulltrúar HÍN alllangar viðræður
við embættismenn ráðuneytisins.
Þetta hefði ef til vill ekki þótt til-
tökumál nema vegna forsögunnar
og hversu erfiðlega hefur gengið
að koma þessum fundi á. Áfram
var reynt að ná tali af ráðherra en
hann fann ekki tíma fyrir fund það
sem eftir lifði kjörtímabilsins. Nýr
ráðherra er nú tekinn við og hefur
beiðni um fund verið endurnýjuð.
Ekki er ástæða til annars en bjart-
sýni um að skjótt líði að lokum
þessarar framhaldssögu.
Grennslast fyrir um
byggingarsjóð
Bréfaskipti urðu milli HÍN og mennta-
málaráðuneytis þar sem félagið
grennslaðist fyrir um byggingarsjóð-
inn góða sem ráðuneytið tók til varð-
veislu fyrir hönd ríkisins árið 1947,
með fyrirheiti um að hann yrði settur
upp í kostnað við byggingu Nátt-
úrugripasafns sem þá var á áætlun.
Spurt var hver væri staða sjóðsins og
hvernig hann hefði verið ávaxtaður.
Nokkrum mánuðum síðar barst svar
þess efnis að sjóðurinn fyndist ekki
og engin gögn um ráðstöfun hans
í skjalasafni ráðuneytisins. Ráðu-
neytið lagði hins vegar mat á verð-
mæti sjóðsins með því að stinga
upphaflegri fjárhæð hans inn í ein-
falda verðlagsreiknivél Hagstofunnar
sem finna má á netinu. Niðurstaðan
var sú að sjóðurinn stæði í rúmum
6 milljónum króna. Það þýðir að
verðgildi hans hafi minnkað veru-
lega og að vextir hafi verið nei-
kvæðir. Í svari HÍN við þessum tíð-
indum kemur fram að félagið hafnar
alfarið útreikningum ráðuneytisins
og áskilur sér allan rétt í þessu máli.
Komast þarf að samkomulagi um
eðlilegan útreikning á upphæð sjóðs-
ins þar sem byggt sé á sanngjarnri
ávöxtunarkröfu. Meðan ríkisvaldið
stendur ekki við samkomulag sitt
um að koma upp húsnæði fyrir nátt-
úrugripasafn getur það ekki látið fjár-
muni frá HÍN, sem fara áttu í þetta
húsnæði, rýrna og fyrnast.
Það eina sem HÍN er sammála
í svarbréfi menntamálaráðuneytis
er að byggingarsjóðurinn gaml i er
ekki undir 6 milljónum króna. HÍN
óskar þess að fá þessa upphæð í
hendur, og síðar það sem uppá vant-
ar samkvæmt nýjum útreikningum,
til að ávaxta hana á skynsamlegri
hátt en gert hefur verið og láta hana
svo renna til uppbyggingar safnsins
þegar ríkisvaldið stendur við fyrir-
heit sitt til félagsins um húsnæði fyrir
Náttúruminjasafn Íslands.
Erindi á degi íslenskrar
náttúru
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn
16. október ár hvert. Umhverfis- og
auðlindaráðuneytið minnist dags-
ins á ýmsan hátt, meðal annars með
samkomu þar sem afhent eru Nátt-
úruverndarviðurkenning Sigríðar
í Brattholti og fjölmiðlaverðlaun
umhverfisráðuneytisins til þeirra
sem best hafa haldið umhverfis-
málum á lofti í fjölmiðlum. Í ár var
formanni HÍN boðið að halda ávarp
á samkomu ráðuneytisins af þessu
tilefni. Ávarpið var endurflutt í Rík-
isútvarpinu nokkrum dögum síðar.
Lokaorð
Árið 2016–2017 var umbrotaár í
íslenskri pólitík en ekki að sama
skapi frásagnarvert á vettvangi Hins
íslenska náttúrufræðifélags. Engin
umskipti hafa orðið í félagslífinu né
í útgáfu- eða baráttumálum félags-
ins. Reksturinn hefur gengið sam-
kvæmt áætlun. Útgáfa tímaritsins
er í föstum skorðum og greinar í því
hafa vakið athygli. Fjárhagsstaðan
er viðunandi og fræðslufundirnir
hafa verið áhugaverðir en heldur
fámennir. Jákvæð teikn eru á lofti í
málum Náttúruminjasafnsins og ef
þau ná að raungerast verður síðasta
ár að teljast umskiptaár í baráttu og
starfsemi HÍN, en um það verður
ekki dæmt að sinni.
Reykjavík 27. febrúar 2017
Árni Hjartarson, formaður HÍN
Á fundi í menntamálaráðuneytinu 30. mars 2016 um málefni Náttúruminjasafns. Eiríkur
Þorláksson sérfræðingur, Hafdís Hanna Ægisdóttir, varaformaður HÍN, Bryndís Marteins-
dóttir, fræðslustjóri HÍN, Árni Hjartarson formaður HÍN, Gísli Þór Magnússon, skrif-
stofustjóri og Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri.