Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 74

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn 74 Það var álitamál hvort hér væru merki um upphaf gossins á sjávar- botni eða hraunið runnið í hraun- göngum undir yfirborði eyjarinnar. Rannsóknir Sveins benda til hins síðartalda.36 Varðskipsmenn sáu að þar sem brimaldan mætti hraunstraumn- um í suðausturhorni Surtseyjar, og hraunelfurin rann í marga mánuði, mynduðust hraunkúlur í fjörunni við hina snöggu kælingu. Þessar hraunkúlur bárust norður fyrir hornið og hlóðust þar upp. Þær voru um 1 m í þvermál og gegn- heilar. Með tímanum náði úthafs- aldan að mylja þær niður og ekk- ert varð eftir af þeim (Ólafur Valur Sigurðsson skipherra, samtal í maí 2015). Voru þetta kannski bólstr- ar? Garðar Pálsson skipherra var áhugaljósmyndari og myndaði log- andi hraunelfina og hraunkúlurnar. Móberg er enn að myndast undir jöklum á Íslandi.37 Lokaorð Ég veit ekki hvernig ykkur líst á þessa samanburðarfræði mína. Mér finnst ýmis rök benda til þess að hér sé um neðansjávarmyndanir að ræða. Að líkja grjóti við brauð hljómar ekki mjög vísindalega en ótal klappir á Hvítanesi standa undir þeim samanburði. Hug- myndin er ekki mín heldur útfær- slan, og sem leikmaður get ég leyft mér smáglettur. Í myndabók Ballards og Moores má sjá flata bólstra á sjávarbotni23 og þannig myndanir má líka sjá á Grundinni á Hvítanesi, sbr. fremst á 1. mynd. Á 4. mynd sker sig úr rúnnaður hnullungur, sem vissulega er ekki hversdagslegur útlits og er einnig með það sem ég ætla að sé þenslu- rauf. Kannski væri hægt að finna fleiri slíka. Á 14. mynd er hann borinn saman við gamlan ferðalang með svipað útlit. Þensluraufar eru í lábörðu klett- unum á 10. mynd og fannst mér þeir líkjast klöppunum á Lopez-eyju. Hið sama gildir um sívalninginn á 1. og 15. mynd. Það varð mér því til mikillar ánægju að finna nýlega grein Gotos og fleiri frá Tasmaníu þar sem höfundar telja þensluraufar einstakt einkenni (e. diagnostic) fyrir bólstra.20 Þensluraufar eru mjög slá- andi á 1., 8., 10. og 21. mynd. Við getum ekki kvatt Hvítanes án þess að geta þess hvaða bergtegund myndar þessar klappir, en það er dílabasalt, eins og sjá má á 19. og 20. myndum sem sýna afsteypur. Þarf ekki nema leikmanns augu til 17. mynd. Kubbaberg rétt undir gróðurþekjunni á tanganum. Penn- inn er 13,5 cm langur. – Cube jointed basalt peaks out high in the bank at the peninsula. The pen 13.5 cm long. Ljósm./Photo: Berg- þóra Sigurðardóttir. 18. mynd. Kubbaberg í Dverghömrum á Síðu. – Cube jointed basalt at Dverghamrar, South-East Iceland. Those formations are made under water. Ljósm./Photo: Bergþóra Sigurðardóttir. 7. júní 2014. 19. og 20. mynd. Afsteypur og hola í klöpp vestan á tanganum. Klappirnar eru úr dílabasalti. Ígulkerið er 6 cm í þvermál. – Two cast and a hole in a clint of porphyric basalt. Ljósm./Photo: Bergþóra Sigurðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.