Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 2017, Blaðsíða 49
49 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags illa eða auki líkur á að kollur sleppi varpi46 sama ár eða ári seinna. Þegar loðnan lætur ekki sjá sig minnka ef til vill líkur á því að næringarforði hjá æðarkollunum sé nægur þegar þær hefja varp. Þessi „loðnuhallæri“ endurspeglast sem snögg fækkun hreiðra eitt sumar en ári síðar er fjöldinn svipaður og á fyrri árum. Æðarfugl er langlíf tegund og því skiptir ævilangur heildarvarpárang- ur (e. lifetime breeding success) meira máli en árangur einstakra varpára.47 Þetta er talin skýringin á því að æðar- kollur sleppa stundum varpi og þá einkum ef næringar ástand þeirra er slakt.46,48 Í lágmarks loðnuárunum fjórum (1991, 1995, 1998 og 2006) virðast margar breiðfirskar koll- ur hafa sleppt varpi eða seinkað því fram yfir dúnleitir og því ekki verið taldar það árið. Báðar þessar mögulegu skýringar/tilgátur fela í sér að ástand varpkollna að vori er í lakara lagi og það tekur fram á sumar að bæta það upp. Svo vill til að þessi lágmarksár æðarfugls í Breiðafirði passa nokkurn veginn við mestu lágmarksár í ráðlögðum loðnuafla. Engin slík lágmarksár urðu milli 1980–1990 (með fyrirvara um árin 1979–1981) en þau birtast fyrst 1990–2000 þegar æðarstofn- inn náði hámarki. Fleiri þættir geta auðvitað líka skýrt ólínuleg tengsl við einstök ár. Má til dæmis benda á árið 2003 þegar æðarhreiðrum fækkaði snögglega, en fjöldi þeirra jafnaði sig strax 2004 án sjáanlegra breytinga í loðnuvísitölu. Tengsl geta líka verið óbein milli lágmarks- ára loðnu og þess að æðarkollur sleppa varpi eða verpa seint, þannig að sami umhverfisþáttur hafi nei- kvæð áhrif á bæði loðnu og æðar- kollur samtímis. Breiðafjörður sker sig úr hinum landshlutunum að þessu leyti og gæti skýrst af því að loðnan nær ekki alltaf að ganga inn í Breiðafjörð síðla vetrar eða snemma vors, og stundum ekki alla leið inn fjörðinn (miðað við Flatey t.d.). Hjá fuglum sem lifa eingöngu á fiski má vænta jákvæðrar fylgni við fiskgengd, til dæmis hjá lunda (Fratercula arctica) sem nær bestum varpárangri þau ár sem mikið er af síld.49 Æðarfugl er hins vegar alæta sem lifir mest á botndýrum, lindýr- um eða skrápdýrum16,17,19 og getur nýtt aðra fæðu þegar lykiltegundir vantar, sérstaklega á svæðum sem hafa mikinn lífmassa, svo sem í Breiðafirði.50 Loðnuafli er ef til vill ekki nægilega nákvæm breyta til að tengja loðnustofninn við stofn- vísitölu æðarfugls því að misjafnt er milli ára hvert loðnan gengur. Þá fer loðnutalningin fram að hausti en fjöldi hreiðra er talinn næsta vor og er ekki ómögulegt að þessar ólíku tímasetningar hafi einhver áhrif á niðurstöðurnar. Ekkert virðist hafa verið ritað um tengsl loðnu við æðarfugl á öðr- um útbreiðslusvæðum tegundanna. Loðnuát æðarfugla gæti verið sér- íslenskt fyrirbæri. Raunar eru kynni 4. mynd. Loðnuráðgjöf Hafrannsóknastofnunar (þúsundir tonna deilt með 10) og prósentubreytingar (%) í fjölda æðarhreiðra í fjórum landshlutum, þ.e. Suðvesturlandi (A), Breiðafirði (B), Vestfjörðum (C) og Norðurlandi (D). Ártöl í myndum gefa til kynna að viðkomandi ár hafi orðið marktækt lágmark í bæði loðnu- og æðarvísitölu sömu eða aðliggjandi ártöl (t.d. 1991–1992). Takið eftir mismunandi skala á y-ás. – The Icelandic Marine Research Institute’s capelin fishing advisory (thousands of tons divided by 10; x-axis) and annual change percentage (%) number of eider nests (y-axis) for four parts of Iceland, i.e. Southwest Iceland (A), Breiðafjörður (B), Westfjords (C) and North Iceland (D). Years in the figure indicate significant impacts on eider nests numbers in relation to years of low capelin abundance. Note differing scales on y-axis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.