Náttúrufræðingurinn - 2017, Side 16
Náttúrufræðingurinn
16
INNGANGUR
Ískóð (1. mynd) er útbreitt
umhverfis norðurheimskautið og
jafnframt sú fisktegund sem hefur
veiðst hvað nyrst í Norður-Íshafinu.
Sunnan Íshafsins Atlantshafsmegin
nær meginútbreiðslusvæði ískóðs
suður til Noregs, inn í Hvítahaf og
í Barentshaf, umhverfis Svalbarða,
að norðurströnd Íslands og fyrir
suðurodda Grænlands (2. mynd).1,2
Í bókinni um Fiskana lýsir Bjarni
Sæmundsson ískóði ýtarlega í fyrsta
sinn á íslensku og er sú lýsing sem
hér segir (1. mynd):
Þetta er lítill fiskur, sem er tíðast
20–30 cm, en getur (við Grænland)
orðið 36 cm langur; hann er svip-
aður þyrsklingi í vexti, nema hvað
stirtlan er miklu mjórri, einkum
spyrðustæðið, og nærri sívalur;
hann er gildur að framan (h =
1/6 l) og höfuðstór, greinilega yfir-
myntur og munnurinn miðlungsstór,
með smáar tennur í tveimur röðum
og örlítill skeggþráður á hökunni.
Augun eru í stærra lagi. Bolurinn
er styttri en höfuðið, en stirtlan all-
löng og mjög afturmjó. Uggarnir eru
svipaðir og á þorski, en verulegt bil
milli stöku ugganna og sporðurinn
djúpsýldur. Hreistrið er mjög smátt
og ekki skarað (nær aðeins saman
á röndunum). Rákin er hátt uppi á
bolnum, en beygir svo niður á miðja
hlið stirtlunnar. Liturinn er móleitur
að ofan, silfurgljáandi að neðan,
uggar allir blásvartir.3
Höfundar síðari yfirlitsrita um
íslenska fiska hafa tekið mið af
þessari lýsingu.4,5
Fullorðið ískóð heldur sig aðal-
lega við botn og er þá oft í þétt-
um torfum en stundum finnst það
einnig við yfirborð. Lirfur og seiði
halda sig aðallega við hafísjaðarinn
í efri lögum sjávar.6 Ískóðið lifir á
dýrasvifi en þar sem það er ekki
með tálknatinda er aðalfæðan oftast
hinar stærri tegundir dýrasvifs.7,8
Sjálft er ískóðið mikilvæg fæða
annarra sjávardýra í Norðurhöfum,
svo sem stærri fiska, sela, hvala
og sjófugla, og er því mikilvægur
hlekkur í fæðutengslum.9,10,11
Ískóð er harðgert og getur þolað
sjávarkulda allt niður að frostmarki
sjávar (–1,8°C) og er það vegna
„frostvarnarpróteina“ sem er að
finna í blóði þess. Þar er um að ræða
flokk fjölpeptíða sem geta bund-
ist við ískristalla í blóði þegar þeir
taka að myndast og hindra þannig
frekari kristallamyndun sem myndi
leiða til dauða.12,13
Meginhrygningarsvæði ískóðs í
Norðurhöfum eru talin vera í suð-
austanverðu Barentshafi og austur
af Svalbarða.14,15 Hrygningin á sér
stað undir hafísnum að vetri til.
Það tekur eggin um 45–90 daga
að klekjast en þegar komið er
fram á sumar og haust eru lirf-
ur aðallega dreifðar um austur- og
norðurhluta Barentshafs og einnig
svæðið umhverfis Svalbarða.
Kynþroskahluti stofnsins sæk-
ir einkum á fæðuslóðir norðan og
austan við straumaskil hlý- og kald-
sjávar (þ.e. svokallaðan pólfront) í
Barentshafinu.14,15
Frá því um 1985 hafa verið gerð-
ar bergmálsmælingar á stofnstærð
ískóðs í Barentshafi. Seinustu 20
ár hefur stofninn oftast mælst um
1 milljón tonna en stærstur var
hann tæpar 2 milljónir tonna árin
2001, 2005 og 2006. Ársafli ískóðs í
Barentshafi hefur mestur verið 250–
350 þúsund tonn um 1970 en féll ört
eftir það. Seinustu 20 ár hefur aflinn
verið um 30 þúsund tonn á ári og
hafa Rússar aðallega stundað þær
veiðar.14,15
Lítið er vitað um lífshætti
ískóðs við Ísland umfram einstaka
fundarstaði. Fullorðið ískóð hef-
ur veiðst undan Bjargtöngum og
síðan réttsælis umhverfis landið
að Ingólfshöfða.3,4,5 Danski fiski-
fræðingurinn Johannes Schmidt
greindi frá ískóðsseiðum á einni
stöð í Húnaflóa þegar hann rann-
sakaði fiskseiði við Ísland í upphafi
20. aldar.16
Í þessari grein hafa tiltæk gögn úr
stofnmælingum17,18 og frá seiðarann-
sóknum19 Hafrannsóknastofnunar
verið nýtt til þess að afla aukinnar
þekkingar um ískóð í hafinu við
Ísland. Ískóð er ein af örfáum hánor-
rænum fisktegundum við Ísland.
Norðan við landið eru suðurmörk
útbreiðslusvæðis þess í norðaust-
anverðu Norður-Atlantshafi. Í ljósi
hlýnunar sjávar hér við land á
undanförunum árum og breytinga
tengdra þeim – svo sem að suð-
rænar fisktegundir hafa leitað norð-
ur á bóginn og aukið útbreiðslu
sína20–25 – er sérstaklega áhugavert
að rannsaka viðbrögð hánorrænnar
tegundar eins og ískóðs við hlýn-
andi umhverfi.
GÖGN OG AÐFERÐIR
Gögn frá árlegum stofnmælingum
Hafrannsóknastofnunar í mars á
2. mynd. Meginútbreiðslusvæði
ískóðs. Endurteiknað eftir
ACIA4 og birt í Fiskifréttum 19.
nóvember 2015. – The main
distribution area of polar cod.
Redrawn from ACIA4 and publ-
ished in Fiskifréttir 19 Novem-
ber 2015.