Náttúrufræðingurinn - 2017, Page 22
Náttúrufræðingurinn
22
á hafsvæðinu við Svalbarða29
og í Barentshafi42 og að áætluð-
um svipuðum vaxtarhraða hjá
ískóði sem veiðist í botnvörpu á
Íslandsmiðum, þá virðist ískóð hér
við land vera að stærstum hluta 2–4
ára. Lengdardreifingar úr seiðaleið-
öngrum benda hins vegar til þess
að mögulega kunni hlutfall smæsta
og þá yngsta hluta stofnsins að vera
vanmetið í botnvörputogunum.
Með hækkandi sjávarhita á
undanförnum árum hafa átt sér
stað miklar breytingar á útbreiðslu
marga fiskistofna á Íslandsmiðum.
Margar suðrænar tegundir,
bæði nytjastofnar,20,23,24 s.s. ýsa
(Melanogrammus aeglefinus), skötu-
selur (Lophius piscatorius) og makríll
(Scomber scombrus), og sjaldgæfari
fiskar,21,25 s.s. fjólumóri (Antimora
rostrata), stóra sænál (Entelurus
aequoreus), og litla brosma (Phycis
blennoides), hafa leitað norður á
bóginn. Þá hefur einnig orðið vart
aukinna heimsókna suðrænna flæk-
inga,25,43 s.s. augnasíldar (Alosa fal-
lax), steinsugu (Petromyzon marinus)
og tunglfisks (Mola mola). Loks hafa
yfir 30 áður óþekktar suðrænar fisk-
tegundir veiðst við landið á undan-
förnum 20 árum.25 Loðna (Mallotus
villosus), sem er eins og ískóð af
hánorrænum uppruna, hefur sam-
fara auknu innflæði Atlantssjávar
norður fyrir land frá því um síðustu
aldamót hörfað frá hefðbundnum
uppeldisslóðum í Íslandshafi til
kaldari hafsvæða á austur-græn-
lenska landgrunninu.44 Þessum
miklu breytingum í útbreiðslu fisk-
tegunda hljóta að fylgja breytingar
á framleiðni tegunda og samkeppni
á mörgum á stigum fæðukeðjunnar
í sjónum, en því miður er lítið vit-
að hvernig þeim málum er háttað.
Átaksverkefni á þessu sviði væri
verðugt viðfangsefni hafrannsókna
næstu árin.
Hér hefur meðal annars verið
fjallað um breytingar á útbreiðslu
ískóðs við Ísland (5. og 6. mynd)
og sýnt hvernig hærri sjávarhiti
leiðir til afmarkaðri útbreiðslu.
Útbreiðsla ískóðs undan austur-
strönd Grænlands virðist nátengd
ísröndinni á þeim slóðum. Líklegt
er að stöðug minnkun hafíss í
Grænlandshafi á undanförnum
árum45 hafi ásamt staðbundinni
hlýnun haft áhrif á útbreiðslu ískóðs
undan austurströnd Grænlands og
dregið bæði úr aðflutningi ungviðis
og göngum fullorðins fisks inn á
íslenska hafsvæðið. Frekari hlýnun,
sem líklegt er talið að eigi sér stað
á komandi árum, kann því að leiða
til þess að ískóð hverfi úr vistkerfi
sjávar við Ísland.
SUMMARY
Life history of polar cod (Boreo
gadus saida) in the waters
around Iceland
Material from groundfish surveys in
March 1985‒2013 and pelagic 0-group
surveys in Iceland-East Greenland wa-
ters in August-September 1974‒2003
was used to study the life history of po-
lar cod in the area. Polar cod was most
often caught in groundfish surveys on
the outer shelf to the northwest and
north of Iceland. In pelagic surveys
0-group polar cod was only caught spo-
radically and mainly confined to the wa-
ters off the northwest shelf of Iceland
and the East Greenland shelf. In ground-
fish surveys, the number of stations
with polar cod decreased with increas-
ing bottom temperature and polar cod
was most widely distributed in the years
1989, 1994 and 1995. Highest numbers of
polar cod per haul in bottom trawl were
caught at temperatures of –0.5 to 2.5°C
and at 200–450 m depth. The length of
polar cod caught in bottom trawl ranged
from 5‒32 cm with a mean length of 15.6
cm. The fish caught in pelagic trawl
ranged in length from 2‒19 cm and with
a prominent peak at 3 cm. The polar cod
in the sub-Arctic waters north of Iceland
most likely originate from the waters off
East Greenland. In the waters around
Iceland polar cod is near the southern
limit of its distribution and therefore
likely to be sensitive to any climatic
changes. Further warming and decline
in sea ice at East Greenland may eventu-
ally lead to the disappearance of polar
cod from Icelandic waters.
Þakkir
Þessi grein byggir á vinnu fjölmarga starfsmanna Hafrannsóknastofnunar
sem um árabil og oft við erfiðar aðstæður hafa tekið þátt í gagnasöfnun í
stofnmælingar- og seiðaleiðöngrum. Þeim er hér öllum þakkað.
Heimildir
1. Leim, A.H. & Scott, W.B. 1966. Fishes of the Atlantic coast of Canada.
Bulletin 155. Fisheries Research Board of Canada, Ottawa. 485 bls.
2. ACIA 2005. Arctic climate impact assessment. Cambridge University
Press, Cambridge. 1042 bls.
3. Bjarni Sæmundsson 1926. Fiskarnir. Pisces Islandiae. Bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar, Reykjavík. 583 bls.
4. Gunnar Jónsson 1992. Íslenskir fiskar. Fjölvaútgáfan, Reykjavík. 568 bls.
5. Gunnar Jónsson & Jónbjörn Pálsson 2013. Íslenskir fiskar. Mál og menn-
ing, Reykjavík. 475 bls.
6. Hop, H. & Gjøsæter, H. 2013. Polar cod (Boreogadus saida) and capelin
(Mallotus villosus) as key species in marine food webs of the Arctic and
Barents Sea. Marine Biology Research 9. 878–894.
7. Ajiad, A.M. & Gjøsæter, H. 1990. Diet of polar cod, Boreogadus saida, in the
Barents Sea related to fish size and geographical distribution. ICES
Document CM 1994/G:48. 9 bls.
8. Lønne, O.J. & Gulliksen, B. 1989. Size, age and diet of polar cod, Boreo-
gadus saida (Lepechin 1773), in ice covered waters. Polar Biology 9. 187–
191.
9. Bradstreet, M.S.W. & Cross, W.E. 1982. Thropic relationships at high
arctic ice edges. Arctic 35. 1–12.
10. Welch, H.E., Crawford, R.E. & Hop, H. 1993. Occurrence of arctic cod
(Boreogadus saida) schools and their vulnerability to predation in the
Canadian high Arctic. Arctic 46. 331–339.
11. Sakshaug, E. & Kovacks, K.M. 2009. Introduction. Bls. 9–32 í: Ecosystem
Barents Sea (ritstj. Sakshaug, E., Johnsen, G. & Kovacs, K.). Tapir Aca-
demic Press, Þrándheimi.
12. Osuga, D.T. & Feeney, R.E. 1978. Antifreeze glycoproteins from arctic
fishes. Journal of Biological Chemistry 253. 5.338–5.343.
13. Harding, M.M., Anderberg, P.I. & Haymet, A.D.J. 2003. Antifreeze glyco-
proteins from polar fish. European Journal of Biochemistry 270. 1.381–
1.392.
14. Gjøsæter, H. 2009. Commercial fisheries (fish, seafood and marine mam-
mals). Bls. 373–414 í: Ecosystem Barents Sea (ritstj. Sakshaug, E., Johnsen,
G. & Kovacs, K.). Tapir Academic Press, Þrándheimi.