Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 30
Náttúrufræðingurinn
30
Sprungur voru sjáanlegar á svæð-
inu áður en umbrotin hófust 2014,
aðallega í hól einum í vesturhluta
sigdalsins (7. mynd).8,38 Holuhraun
eldra var þó ósprungið, en það
hraun er talið hafa runnið í svipuð-
um gliðnunaratburðum árið 1797
og hugsanlega líka á árunum 1862–
1864.39 Líklegt má telja að sprung-
ur hafi einnig hreyfst á þeim tíma
og sigdalur sigið en sprungurnar
lítið hreyfst eftir að eldgos hófst og
Holuhraun eldra lagðist yfir þær.
Þannig má búast við því að hraunið
hafi hulið gamlar sprungur sem svo
hafi hreyfst á ný í atburðunum árið
2014 og því orðið sýnilegar á yfir-
borði Holuhrauns eldra.
Í gliðnunaratburðum verður á
þennan hátt yfirleitt vart virkni bæði
í megineldstöðvunum og sprungu-
sveimum þeirra. Þó getur það gerst,
líkt og í Upptyppingum á árunum
2007–2008, að kvikuinnskot komi
beint undir sprungusveim án þess
að umbrot eigi sér stað í megin-
eldstöð á sama tíma. Þá urðu smá-
vægilegar sprunguhreyfingar á yfir-
borði jarðar innan sprungusveims
Kverkfjalla40 þótt kvikuinnskotið
hafi verið það staðbundið að ekki er
hægt að flokka það sem gliðnunar-
atburð, enda mældist ekki gliðnun.
Mælingar í gliðnunaratburð-
um hafa veitt mikilvægar upplýs-
ingar um myndun sprungusveima.
Sá böggull fylgir skammrifi að
gliðnunaratburðir eru sjaldgæfir. Til
að mynda eru gliðnunaratburðirnir
í Kröflu og Bárðarbungukerfunum
þeir einu sem átt hafa sér stað
á Íslandi síðastliðin 100 ár. Með
nákvæmri kortlagningu á sprung-
um Norðurgosbeltisins og grein-
ingu á þeim má þó lesa ýmislegt um
gliðnunaratburði sem áttu sér stað
áður en land byggðist.
SPRUNGUKORTLAGNING
Undanfarin ár hafa verið teknar loft-
myndir af landinu með sífellt vax-
andi nákvæmni og betri upplausn.
Að þessum myndatökum hafa
staðið fyrirtækin Loftmyndir og
Samsýn, en áður fyrr sáu Landmæl-
ingar Íslands um loftmyndatöku.
7. mynd. a) Upptök skjálfta dagana 11.–26. ágúst 2014 færðust frá Bárðarbungu að Holu-
hrauni, þar sem eldgos hófst 29. ágúst. Jarðskjálftagögnin eru frá Veðurstofu Íslands,
sprungugögnin frá Ástu Rut Hjartardóttur o.fl.9 b) Nýjar og eldri sprungur sem hreyfðust
í gliðnunaratburðinum í Bárðarbungukerfinu í ágúst 2014. Sprungurnar liggja aðallega á
jöðrum sigdalsins sem myndaðist. Einnig eru sýndar gossprungur þar sem gaus á þessum
tíma. Bakgrunnur kortanna er frá Landmælingum Íslands og TanDEM-X-hæðarlíkani
þýsku geimferðastofnunarinnar (DLR), sem sýnir landslag eins og það var fyrir umbrot
áranna 2014–2015. – a) Earthquakes which occurred between 11th and 26th of August
2014 propagated away from the Bárðarbunga central volcano to the Holuhraun area, where
an eruption started on the 29th of August. The earthquake data are from the Icelandic Met-
eorological Office, the fracture data is from Ásta Rut Hjartardóttir et al.9 b) New fractures
and/or reactivated fractures during the 2014 Bárðarbunga rifting event. The fractures are
mainly located at the periphery of the subsiding graben. Erupting fissures are also shown
(red lines). The background of the maps are from the National Land Survey of Iceland and
the TanDEM-X digital elevation model of the German Aerospace Centre (DLR), showing
the landscape before the 2014–2015 unrest.