Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 31

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 31
31 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags eru þeir breiðastir þar sem þeir liggja í gegnum megineldstöðvar.9 Í heild sinni er Norðurgosbeltið um 200 km langt mælt frá norðri til suðurs og um 50 km breitt mælt frá austri til vesturs.9 Hér á eftir verður fjallað nánar um einstaka sprungusveima sem finna má innan Norðurgosbeltisins eða í jaðri þess. Sprungusveimur Kverkfjalla Suðurhluti sprungusveims Kverk- fjalla er undir Vatnajökli og því að mestu óþekktur, en norðurhlutinn er um 70 km langur, mældur frá Kverkfjöllum að Álftadalsdyngju og Arnardalsöldu. Á því svæði sjást merki um að sprungur hafi hreyfst eftir að jöklar hörfuðu af svæðinu. Norðan Arnardalsöldu má þó finna móbergshryggi í beinu framhaldi 8. mynd. Dæmi um nýjar sprungur og gossprungur sem mynduðust árið 2014 í Holuhrauni á meðan gliðnunaratburður í Bárðarbungu- kerfinu stóð yfir. Á loftmyndinni frá 1987 (frá Landmælingum Íslands) sjást engar sprungur. Myndin frá því eftir atburðina (frá Loft- myndum ehf.) var tekin árið 2015. Þar sjást nýjar sprungur sem afmarka sigdalinn sem myndaðist í gliðnunaratburðinum. – Examples of new fractures and eruptive fissures which were formed in the Holuhraun area in 2014 during the rifting event in the Bárðarbunga volcanic system (Nýtt hraun = new lava). The image before (Fyrir) the events is from the National Land Survey of Iceland, it was taken in 1987 and in that image, no fractures are visible. The image after (Eftir) the events is from Loftmyndir Corp, taken in 2015. There, fractures are seen which delineate the boundary of the graben that formed during the rifting event. af sprungusveimi Kverkfjalla. Móbergshryggirnir myndast við sprungugos undir jökli og benda því til þess að sprungusveimurinn nái enn lengra en Arnardalsalda. Móbergshryggirnir mynda boga- laga belti sem nær allt að Öxarfirði. Hugmyndir hafa komið fram um að þessi framlenging af sprungu- sveimi Kverkfjalla sé aðallega virk á tímabilum í lok jökulskeiða. Þá sé spenna vegna flekahreyfinga há og framboð á kviku úr möttlinum mikið.3 Lítið sprungubelti liggur til aust- urs út frá Kverkfjöllum (1. mynd). Þetta belti er um 40 km langt og nær allt að Hálslóni. Engin ummerki finnast um eldvirkni á nútíma í þessu sprungubelti. Vísbendingar eru þó um að þar hafi sprungur hreyfst eftir að jökla leysti.41 Hægt hefur verið að kortleggja eftir loftmyndum sprungur í all- miklum smáatriðum. Auk þeirra voru gervitunglamyndir notaðar til að fá heildarmynd yfir svæðið og farið í könnunarleiðangra til að skera úr um óvissuþætti. Úr þessari vinnu hafa orðið til sprungukort af Norðurgosbeltinu (1., 4., 7., 9. og 10. mynd) sem nota má til að aðgreina sprungusveima og skilgreina stærð þeirra og lögun betur en áður var hægt. Sprungusveimar Norðurgos- beltisins eru mismunandi langir og breiðir. Til að mynda er sprungu- sveimur Fremrináma í heild sinni um 125 km að lengd, en sprungu- sveimur Tungnafellsjökuls einungis um 40–50 km að lengd.9,13 Breidd sprungusveima í Norðurgosbeltinu er á milli 0,5 og 15 km. Yfirleitt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.