Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 34

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 34
Náttúrufræðingurinn 34 og því er lengd hans í raun óþekkt. Norðurhluti sprungusveimsins nær alla leið á Melrakkasléttu (1. mynd). Hrúthálsar, sem hafa einnig verið skilgreindir sem megineldstöð, virð- ast deila sprungusveimi með Öskju. Sprungusveimur Öskju er öfl- ugur og með mikinn sprungu- þéttleika.9 Eldvirkni er algeng innan hans, og til dæmis urðu eldgos í Sveinagjá árið 1875 í gliðnunarat- burðum í tengslum við eldsumbrot í Öskju sjálfri.22 Við þá atburði mynd- aðist ný askja í Öskju. Í þeirri öskju, sem nú er um 250 metra djúp, er nú Öskjuvatn. Nýlega kom í ljós að Sveina- og Randarhólagígaröðin (4. mynd) myndaðist á sama tíma og ljósa gjóskulagið Askja-S (Skolli), sem á uppruna sinn í Öskju. Skolli fannst milli gjalllaga við Randarhóla og er því algerlega samtíða gígaröð- inni. Því má ætla að bæði Skolli og Sveina- og Randarhólagígaröðin hafi myndast í sama gliðnunarat- burðinum, sem átti sér stað fyrir tæpum 11 þúsund árum, og tilheyri því sama eldstöðvakerfi.43 Þetta gefur til kynna að sprungusveimur Öskju nái alla leið á Melrakkasléttu, líkt og áður hefur verið bent á,18,44 þar sem sá sprungusveimur sem Sveina- og Randarhólagígaröðin fylgir nær alla leið þangað.43 Sprungusveimur Bárðarbungu Eins og kunnugt er liggur Bárðar- bunga undir jökli sem hylur megin- eldstöðina og öskju hennar sem er um 7–10 km í þvermál. Sprungu- sveimur Bárðarbungu liggur bæði til suðurs, og er þar hluti af Aust- urgosbeltinu, en einnig til norðurs og verður þar hluti af Norðurgos- beltinu. Norðurhluti sprungusveims Bárðarbungu er tvískiptur, líkt og sprungusveimur Kverkfjalla, og tengist vestari greinin sprungu- sveimi Fremrináma, en sú eystri liggur nærri sprungusveimi Öskju. Hugsanlegt er að Bárðarbunga deili þessum sprungusveimum með Fremrinámum og Öskju, og að kvika geti þannig ýmist skot- ist inn í sprungusveiminn frá þeim eða Bárðarbungu. Slík samnýting sprungusveima sást til að mynda í gliðnunaratburði í Eþíópíu árið 2005, þar sem tvær megineldstöðvar virtust veita kviku inn í sama sveim- inn.45 Í öllu falli er óljóst hvar vest- ari sprungusveimur Bárðarbungu endar og hvar sprungusveimur Fremrináma byrjar, en hugsan- legt er að eystri sprungusveimur Bárðarbungu liggi örlítið austan sprungusveims Öskju. Suðurhluti sprungusveims Bárðar bungu er allt að 100 km langur og nær að megineldstöð Torfajökuls þar sem sprungusveimarnir virðast ná saman. Sprungusveimur Fremrináma Sprungusveimur Fremrináma nær nokkuð langt til norðurs, um 120 km. Eins og fyrr segir tengist hann sprungusveimi Bárðarbungu til suðurs, og er nokkuð erfitt að greina hvar sprungusveimur Fremri- náma endar og hvar sprungu- sveimur Bárðarbungu byrjar. Á 1. mynd eru skilin á milli þessara tveggja sprungusveima sett þar sem stefnubreyting verður á sprungu- sveimunum; sprungusveimur Bárðar bungu stefnir í norð-norð- austur en sprungusveimur Fremri- náma stefnir meira til norðurs. Þó getur allt eins verið að skilin séu í raun alls ekki til staðar, og að þessar eldstöðvar samnýti sprungu- sveimana eins og fyrr hefur verið nefnt. Nyrst liggur sprungusveimur Fremrináma með vesturströnd Mel- rakkasléttu og er þar einungis fáeinir kílómetrar að breidd (1. mynd). Sprungusveimur Kröflu Í sprungusveimi Kröflu liggja ýmsar náttúruperlur sem til hafa orðið vegna eldvirkni sveimsins. Innan hans liggja til að mynda Dimmuborgir, Hverfjall (Hverfell), Hvannstóð og Gjástykki ásamt Kröflu sjálfri. Sprungusveimurinn nær um 45 km til suðurs og um 50 km til norðurs þar sem hann mætir Grímseyjarbrotabeltinu í Öxarfirði. Sprunguþéttleiki er mikill innan sveimsins, og er Gjástykki til að mynda einn besti staður sem hægt er að finna á jörðinni til að sjá sprungusveima. Eins og fyrr er greint frá urðu gliðnunaratburðir í sprungusveimi Kröflu á árunum 1975 til 1984. Á meðan á þeim stóð urðu miklar sprunguhreyf- ingar í sveimnum þegar kviku- gangar fóru eftir honum. Þegar kvikugangur náði hvað lengst til norðurs, áramótin 1975–76 og árið 1978 fór þjóðvegur 85 í Kelduhverfi ítrekað í sundur þegar sprungur sem liggja undir honum gliðnuðu og sigu. Gliðnunarhrinan sem gekk yfir Kröflukerfið í Mývatnseldum 1724–1729 virðist hins vegar fyrst og fremst hafa tengst gliðnun í suðurhluta sprungusveimsins, í Bjarnarflagi og milli Bláfjalls og Sellandafjalls. Sprungusveimur Þeistareykja Sprungusveimur Þeistareykja liggur í vesturhluta Norðurgos- beltisins. Sprungusveimurinn nær að minnsta kosti 40 km til norð- urs frá megineldstöðinni Þeista- reykjum, en um 30 km til suðurs og endar í Mývatnssveit.14 Nyrst tengist sprungusveimurinn Mánár- eyjum, en þar gæti verið sér- stakt goskerfi. Hugsanlega á eld- stöðvakerfi Mánáreyja sinn eigin sprungusveim og deilir honum með Þeistareykjum. Í vesturhluta hans má finna stór misgengi, í Lamba- fjöllum og í austurhluta Tjörness (1. mynd). Austurhluti hans sker ýmis hraun frá nútíma, en syðsti hluti sprungusveimsins liggur í sandi. Þetta veldur því að ásýnd sprungna innan sprungusveims Þeistareykja er mismunandi. Athyglisvert er að engar gossprungur frá nútíma finn- ast innan sprungusveimsins.9 Á þessu tímabili hafa einungis orðið þar dyngjugos. Sprungusveimur Þeistareykja tengist við Húsavíkurmisgengin (1. og 9. mynd).9,14 Á því svæði má finna sprungur af ýmsum gerðum. Þannig má bæði finna sniðgengi, þar sem sprunguveggirnir hafa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.