Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 63

Náttúrufræðingurinn - 2017, Síða 63
63 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags grasvíði eins og skugginn. Þar er augljóslega um sambýli (stoðbýli) að ræða, eins konar matarfélag svepps og plöntu, sem reyndar er algengt fyrirbæri í náttúrunni og kallast svepprót (mykorrhiza), því að þræðir (ímur) sveppsins vaxa saman við rætur plöntunnar og mynda oft ljósa þekju utan um þær yngstu. Þetta sambýli er báðum til mikils gagns, því að sveppurinn fær kolvetni til næringar frá plöntunni en miðlar henni ýmsum næringar- efnum í staðinn, aðallega stein- efnum sem hann leysir úr moldinni með efnaskiptum sínum (rotnun). Næstum öll tré og runnar í norð- lægum löndum hafa slíka svepp- rót, og fjöldi annarra plantna, með- al annars kornsúra og rjúpnalauf. Svipað sambýli er einnig í flétt- um, nema þar er þörungur mót- aðili sveppsins í stað plöntunnar, og fléttur vaxa oft við hinar erfið- ustu aðstæður eins og alkunnugt er. Óvenjulegt er hversu margar svepptegundir eru tengdar gras- víðinum. Samkvæmt athugunum í Alpafjöllum skipta þær nokkrum tugum. Yfirleitt eru þær smávaxn- ar og lítið áberandi, tilheyra flestar trafsveppum (Cortinarius) og hæru- sveppum (Inocybe), og eru erfiðar í greiningu, enda fremur lítið þekktar hérlendis (sbr. Sveppabók mína,14 bls. 51 og 64). Sumir geta vaxið með öðrum víðitegundum. Þó koma einnig fyrir stærri sveppir, svo sem snæserkur (Amanita nivalis) sem er alhvítur að lit og talinn ágætis mat- sveppur. Ýmsir sníkjusveppir koma fyrir á grasvíði eins og á öðrum víði- tegundum, m.a. víðiryð (Melampsora epitea) og víðitjörvi (Rhytisma salicin- um) en gera sjaldan teljandi skaða. Íslensk nöfn og erlend Íslensk nöfn á grasvíði eru mörg. Sum þeirra bera endinguna -lauf, sem almennt var notað um lágvax- inn víði, sbr. orðið laufhey, og flest benda þau til að grasvíðir sé mikil gæðaplanta hvað beit snertir og mun það ekki ofætlað. Í Ferðabók Eggerts Ólafssonar (1. útg. 1772)15 er heitið kotúnslauf haft um þessa tegund, sem vísar til fræ- ullar víðisins, sbr. enska orðið cotton = baðmull. Sama heiti er notað í Ferðabók Olaviusar (1. útg. 1780).16 Heitið kotúnsvíðir hefur verið notað um aðrar víðitegundir, svo sem grá- víði (fjallavíði) og loðvíði, og vísar til þess sama (5. mynd). Nafnið grasvíðir kemur fyrst fyrir hjá Birni Halldórssyni í bókinni Grasnytjar (1783)17 og telur Steindór Steindórsson í bókinni Íslensk plöntu- nöfn, 1978,18 líklegt að hann hafi búið það til með hliðsjón af latneska viðurnefninu herbacea eða eldra nafni sem var Salix graminea, eins og áður segir. Síðan hafa flestir höfundar notað þetta íslenska heiti. Nikolai Mohr (1786) notar það, en getur þess að sumir kalli tegundina kotungslauf, sem líklega er skýring hans á kotúns- lauf, en hugsanlega ritvilla.19 Björn bjó lengi í Sauðlauksdal við Patreksfjörð, og hafa sumir viljað skýra það örnefni þannig að sauðlaukur sé heiti á grasvíði, en Björn notar það heiti á allt aðra tegund, nefnilega Triglochin sem enn heitir sauðlaukur í íslenskum flórubókum. Eftir lýsingu hans að dæma vex grasvíðir í stórum stíl í Sauðlauksdal og því er þessi tilgáta ekki fjarri lagi. Ingólfur Davíðsson1 segir grasvíði nefndan sauðlauk á Fljótsdalshéraði og víðar „að því er virðist frá fornu fari. Ef til vill eru „Sauðlauksdalir“ við hann kenndir.“ Steindór Steindórsson minnist einnig á þetta í grein í Heima er bezt 1956: Ég hef alltaf dregið mjög í efa, að bæjarheitið Sauðlauksdalur gæti verið dregið af þeim sauðlauk, sem vér nú köllum, sem að vísu er all- algeng planta, en hvergi svo áber- andi að hann gæti gefið tilefni til nafngiftar. En mér hefur verið tjáð, að á Austurlandi sé grasvíðir nefnd- ur sauðlaukur, og örnefni séu þar til, dregin af því. Getur það vel átt við um Sauðlauksdal vestra.20 Ekki þekkir greinarhöfundur þetta nafn á Héraði, eða örnefni því tengd. Oddur Hjaltalín bjó til nafnið dvergavíðir (1830)21 með hliðsjón af heiti grasvíðis á ýmsum tungumál- um. Hann tilfærir einnig nöfnin gras- víðir og kotungslauf. Heitið geldinga- lauf kemur fyrir í Lýsingu Íslands (2. bindi) eftir Þorvald Thoroddsen, sauðlauf í sóknarlýsingu Holtssóknar í Rangárvallasýslu, og smjörlauf meðal annars í seðlasafni Ólafs Davíðssonar.18 Stefán Stefánsson notar grasvíði sem aðalnafn, en hefur smjörlauf sem aukanafn í 1. útgáfu Flóru Íslands frá 1901,11 og hefur það haldist síð- an. Hann getur einnig um nöfnin sauðkvistur og geldingalauf. Ágúst H. Bjarnason getur um sömu nöfn í flórubók sinni 1983.22 5. mynd. Grasvíðir með þroskuð (opin) aldin. Myndin er tekin uppi á ásnum milli Sandár og Suðurárhrauns á Bárðdælaafrétti. Ljósm. Hörður Kristinsson, 8. ágúst 2007.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.