Náttúrufræðingurinn - 2017, Qupperneq 82
Náttúrufræðingurinn
82
Gunnarsson, dýravistfræðingur
og Þóroddur F. Þóroddsson,
jarðfræðingur.
Mörður Árnason er prófarkales-
ari og málfarsráðunautur tímaritsins.
Rannveig Magnúsdóttir líf-
fræðingur hætti í ritnefndinni á
árinu eftir alllanga setu þar og er
henni þakkað óeigingjarnt starf í
þágu náttúrufræðinga. Jafnframt er
Óskar Sindri Gíslason boðinn vel-
kominn í nefndina.
Nefndir
Samstarfshópur frjálsra félagasam-
taka á sviði umhverfismála á vegum
umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Þessi félög eru í hópnum:
Félag um verndun hálendis,
Fuglaverndarfélag Íslands,
Hið íslenska náttúrufræðifélag,
Landvernd
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands,
Náttúruverndarsamtök Austur-
lands – NAUST,
Náttúruverndarsamtök Íslands,
Náttúruverndarsamtök Vesturlands,
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi – SUNN,
Samtök útivistarfélaga – SAMÚT,
Skógræktarfélag Íslands,
Sól í Hvalfirði,
Umhverfisverndarsamtök Íslands.
Árni Hjartarson er fulltrúi HÍN
en Hólmfríður Sigurðardóttir
hjá Fuglavernd er talsmaður og
tengiliður hópsins við ráðuneytið.
Hópurinn hefur verið beðinn um til-
nefningar í nefndir og ráð og fleira
smálegt.
Hópurinn á fulltrúa í nokkrum
nefndum á vegum umhverf-
is- og auðlindaráðuneytis. Þetta
eru Ráðgjafarnefnd hagsmunað-
ila um stjórn vatnamála, Stjórn og
svæðisráð Vatnajökuls þjóðgarðs,
Ráðgjafarnefnd um stefnumark-
andi landsáætlun til 12 ára um
uppbyggingu innviða til verndar
náttúru og menningarsöguleg-
um minjum, úthlutunarnefnd
Kuðungsins, umhverfisviðurkenn-
ingar umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins, Samráðsnefnd um sjálf-
bærar veiðar, svo eitthvað sé talið.
Nýr umhverfis- og auðlindaráð-
herra, Björt Ólafsdóttir, hefur þegar
kallað hópinn saman til skrafs og
ráðagerða. Fundað var í umhverfis-
ráðuneytinu. Þar kom saman all-
fjölmennur hópur frá umhverfis-
samtökunum og úr ráðuneytinu.
Ráðherra fór yfir stefnumið sín,
viðhorf og áherslur. Fulltrúar sam-
takanna sögðu frá sínum baráttu-
málum og komu ýmsum málum á
framfæri. Fulltrúi HÍN greindi frá
starfsemi félagsins og lagði áherslu
á málefni Náttúrufræðistofnunar,
og ekki síður Náttúruminjasafnsins.
Almenn ánægja ríkti með þennan
fund og það virtist samdóma álit
manna að hann væri til vitnis um
góða byrjun á ráðherraferli Bjartar
Ólafsdóttur.
Málefni Náttúru-
minjasafns
Barátta HÍN fyrir hagsmunum
Náttúruminjasafns Íslands hefur
haldið áfram en lítið hefur þokast
á undanförnum árum. Stuðningur
menntamálaráðuneytisins við þessa
stofnun sína hefur verið tilfinn-
anlega lítill. Þrátt fyrir það hefur
ýmislegt gerst á árinu sem kann að
marka ákveðin tímamót.
Skömmu fyrir þingkosningarnar
í október samþykkti Alþingi þings-
ályktun vegna 100 ára fullveldis-
afmælis Íslands árið 2018. Í álykt-
uninni er að finna málsgrein um
Náttúruminjasafnið þar sem segir
að Alþingi feli ríkisstjórninni „að sjá
til þess að í fjármálaáætlun til næstu
fimm ára, sem lögð verður fyrir
Alþingi vorið 2017, verði gert ráð fyr-
ir uppbyggingu Náttúruminjasafns“.
Í greinargerð með ályktuninni segir
að auki: „Mikilvægt er að koma á fót
hér á landi slíkri byggingu er hýsi
merkar náttúruminjar og tryggja
Náttúruminjasafni með því aðstöðu
til frambúðar.“
Að ályktuninni stóðu forsvars-
menn allra flokkanna fimm sem sæti
áttu á Alþingi síðasta kjörtímabil og
var ályktunin samþykkt samhljóða.
Standi Alþingi við orð sín og gerðir
næsta vor verður Náttúruminjasafni
Íslands loksins gert kleift að hefja
uppbyggingu til frambúðar og rækja
það fræðslu- og menntunarhlutverk
sem því er ætlað í samræmi við lög.
Í nýsamþykktu fjárlagafrumvarpi
er einnig jákvæð teikn að sjá því fjár-
heimildir safnsins hækka um nær
50% miðað við fyrri ár. Þær fara
úr um 25 m.kr. á ári eins og verið
hefur að jafnaði sl. tíu ár og upp í
tæpar 39 m.kr. Þetta er að vísu lág
upphæð miðað við fjárveitingar til
hinna höfuðsafnanna tveggja, sem
fá á næsta ári 10–20 sinnum meira
fé en Náttúruminjasafnið.
Auk þessa ber að nefna tilboð
sem Perla norðursins hefur kynnt
menntamálaráðherra þar sem
Náttúruminjasafninu er boðið form-
legt samstarf. Í því felst að safnið
fái eina hæð í Perlunni endurgjalds-
laust undir sýningu á eigin veg-
um. Perla Norðursins hyggst standa
straum af rekstrarkostnaði sem
Náttúruminjasafnið hefði af sýn-
ingarhaldinu, þ.e. húsaleigu, laun-
um starfsfólks, hita og rafmagni.
Kostnaður ríkisins vegna verkefn-
isins væri bundinn við uppsetningu
á sýningu Náttúruminjasafnsins og
viðhald hennar. HÍN sendi af þessu
tilefni frá sér ályktun þar sem fram
kemur að félagið telji þetta gott til-
boð og öllum í hag, ríki og borg, Perlu
norðursins, Náttúruminjasafninu
og ekki síst almenningi og gest-
um í landinu. Þótt þetta fyrirkomu-
lag sé ekki í samræmi við samn-
ing menntamálaráðuneytis og HÍN
frá 16. júní 1947, þar sem ráðu-
neytið tók fyrir hönd ríkisins við
safnmunum Náttúrugripasafnsins
gamla, með fyrirheitum um sýn-
ingaraðstöðu og fleira, telur félag-
ið að þetta sé skref í rétta átt.
Mikilvægi Náttúruminjasafnsins
sem fræðslu- og menntastofnun-
ar er það mikið að ekki má láta
þetta tækifæri sér úr greipum ganga.
HÍN hvetur því menntamálaráð-
herra eindregið til að ganga að
þessu góða tilboði og greiða þannig
leið Náttúruminjasafnsins til sýn-
ingarhalds og þeirra umsvifa sem
lög gera ráð fyrir.