Litla tímaritið - 01.06.1929, Síða 65

Litla tímaritið - 01.06.1929, Síða 65
L 1 T L A T í M A R I T I Ð mundi gerast einskonar heilagur Franz frá Assisi vegna þess, hve óvænt fræ- korni þessara rósa var svo kynlega kast- að, sem flöktandi ljósglætu, í undrandi sálu mína. Það vill svo vel til, að í okk- ar fyndna landi eru hugsjónir eitt og þjóðfélagslíf allt annað. Þesskonar eldar brenna ekki, og menning vor heldur áfram“. „En hvað þetta er Ieyndardómsfult og skáldlegt. Munt þú ekki segja okkur frá dagdraumum þínum vegna rósanna, af því að við létum þig bíða drykklanga stund? Fataherbergið var fullt.Fyrirgefðu “. „Við skulum í guðanna bænum byrja að borða", hrópaði önnur ungfrúin. „Eg er orðin ákaflega svöng. Vertu góð- ur Max og komdu með okkur á eftir í miðnæturmessu í St. Péturs kirkju. Sara hin fræga mun syngja þar og mig lang- ar mjög til að-fara. Gætir þú ekki sím- að til þess að fá sæti“. Nokkru seinna biðu þau á gangstétt- inni eftir bifreið. Hávær drenghnokki, með of stóra húfu, var að selja blöð og hrópaði í sífellu: „Síðasta útgáfa! Um- ræður í þinginu! Þingmenn samþykkja launahækkun fyrir sjálfa sig! Síðasta út- 63

x

Litla tímaritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litla tímaritið
https://timarit.is/publication/1313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.