Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 2
2 TMM 2013 · 2
Frá ritstjóra
Jóhann Páll Árnason heimspekingur hefur mestallan sinn aldur starfað við
erlenda háskóla í Ástralíu og Evrópu og nánast engan þátt tekið í íslenskri
þjóðfélagsumræðu áratugum saman. Á sínum tíma hafði bók hans Þættir
úr sögu sósíalismans mikil áhrif á ungt fólk sem vildi hugsa á nýjan hátt
um sósíalismann en bókin, sem kom úr árið 1970, hafði að geyma óvægna
gagnrýni á sovétkommúnismann – frá vinstri. Í fjörlegu og skemmtilegu
viðtali talar Kristrún Heimisdóttir hér við Jóhann Pál um 20 ára gamla bók
hans um hrun Sovétríkjanna, Brostin framtíð; kommúnismann og alræðið,
sögu íslenskra sósíalista og Einar Olgeirsson sérstaklega, þann svipmikla
leiðtoga, auk þess sem hrunið hér á landi ber á góma og eftirleik þess sem
enn stendur.
Af nokkuð öðrum toga er grein Árna Snævarr sem hann gefur undir titil-
inn „innanstéttarkróníka“. Greinin er skrifuð í léttum dúr og er kald hæðnis-
leg á köflum en ekki fer á milli mála að hún fjallar um alvarlegt málefni sem
varðar allt samfélagið. Árni var um árabil fréttamaður á Stöð tvö en hefur
starfað erlendis um hríð og nú segir hann söguna af sjónvarpsmennskunni
og endalokum hennar, eins og hún horfir við honum. Þar koma ýmsir við
sögu og ýmislegt látið flakka – og ekki hlífir Árni sjálfum sér heldur – en
fyrst og fremst hefur grein Árna að geyma áleitin umhugsunarefni um hlut-
verk fjölmiðla í samfélaginu, sjálfstæði þeirra, umgengni þeirra við valdið,
peningalegt og pólitískt, og ábyrgð eigenda þeirra og hvað getur gerst þegar
hagsmunir rekast á.
Loks má benda sérstaklega á fróðlega úttekt dr. Magnúsar Bjarnasonar á
þeim áhrifum sem hugsanleg aðild að ESB kann að hafa á íslensk heimili.
Magnús hefur ritað doktorsritgerð um efnið og áður fjallað um það
opinberlega en í þessari nýju úttekt kemst hann að svipuðum niðurstöðum
og áður: að áhrif fullrar aðildar geti orðið umtalsverð.
Og er þá fátt eitt talið af fjölbreyttu efni heftisins. Sögur og ljóð, greinar
og ritdómar …
Guðmundur Andri Thorsson