Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 20
Á r n i S n æ va r r
20 TMM 2013 · 2
tók Jón því vel og að þessu myrkraverki loknu reyndi hann aldrei að hafa
áhrif á minn fréttaflutning.
Jón náði undirtökunum á Stöð 2 með harðfylgi og ósvífni. Hann vildi
byggja upp fjölmiðlaveldi og hala inn fé úr skemmtigeiranum, en hann hafði
hvorki áhuga né skilning á pólitík. Það var til dæmis óviturlegt hjá honum
að amast við því að Stöð 2 keypti sjónvarpsþætti af prófessor Hannesi H.
Gissurarsyni og þegar hann stuggaði við Elínu Hirst var hann kominn í stríð
við Sjálfstæðisflokkinn.
Svo sjálfsörugg var fréttastofa Stöðvarinnar að þegar reynt var að koma
að frétt um að Jón hefði lagt til fé til kaupa á píanói á heimaslóðum sínum á
Suðurnesjum tókst ekki að finna því stað í einum einasta fréttatíma Stöðvar
2 og Bylgjunnar þótt svipaðar sögur rötuðu stundum inn í fréttir.
Jón virðist núna öllum gleymdur og eiginlega finnst manni skondið til
þess að hugsa að hann sitji útvatnaður á friðarstóli eftir að hafa verið útmál-
aður sem skrattinn sjálfur árum saman, og tekið við hlutverki Sovétríkjanna
í kaldastríðsheimsmynd Sjálfstæðismanna, þangað til Jón Ásgeir tók við
kaleiknum.
Skífu-Jón keypti fyrirtækið í samvinnu við Sigurjón Sighvatsson, kvik-
mynda framleiðanda með skuldsettri yfirtöku. Þetta var snilldarflétta hjá
Jóni því hann var langstærsti umboðsmaður kvikmynda og tónlistar og
því sat hann í ákveðnum skilningi beggja megin borðsins. Sigurjón var svo
góður tengiliður í Hollywood. Báðir borguðu sjálfum sér himinháar fjár-
hæðir í „ráðgjöf“ – Jón hefur þá væntanlega gefið ráð um hvaða kvikmyndir
ætti að kaupa af Skífunni og hvaða tónlist fyrirtækisins ætti að spila. Svo
séður var Jón að Stöð 2 leigði íbúð af honum í Cannes þegar kaupstefnur þar
stóðu yfir og þótti sumum starfsmönnum það ill vist að kúra á gólfinu hjá
Skífu-Jóni á meðan aðrir hrutu á Grandhótelum á la Croisette.
Það er gömul saga og ný að maður sem skuldar bankanum þúsund kalla á
ekki roð við honum, en allt annað er upp á teningnum ef þú skuldar bank-
anum þúsund milljónir.
Þrátt fyrir góðan hagnað af Stöð 2 og miklar greiðslur til eigenda fyrir-
tækisins, beinar jafnt sem óbeinar, stóð fyrirtækið ekki undir afborgunum
af lánum sem tekin voru til að kaupa sjálft fyrirtækið! Af ástæðum sem engar
skýringar hafa fengist á, taldi Kaupþing sér það í hag að kaupa með afföllum
stóran hluta skulda Stöðvarinnar (eða Norðurljósa).
Skuldamál Stöðvar 2 voru orðin svo miðlæg í starfseminni að það þótti
sjálfsagt að lögmaður fyrirtækisins tæki við sem forstjóri. Sigurður G. Guð-
jónsson hafði enga reynslu af stjórn fyrirtækja, hvað þá fjölmiðla og eina
sjáanlega stjórnunarreynsla hans var að hafa leikið lykilhlutverk í kjöri
sveitunga síns, Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetakosningunum 1996.