Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 120

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 120
120 TMM 2013 · 2 Örn Daníel Jónsson Heiti potturinn – vinsælasti samkomustaður landsins Jarðhitanotkun er afgerandi meiri hérlendis en annars staðar.1 Það er ekki endilega vegna þess hve orkulindin er aðgengileg hér heldur er megin ástæðan fólgin í því hvernig jarðvarminn var nýttur til að vinna á örbirgðinni sem þjóðin mátti búa við allt fram að síðari heimsstyrjöld. Með tímanum hefur heitavatnsnotkun orðið æ stærri þáttur í velsæld daglegs lífs. Á landinu eru 95% húsa hituð með jarðvarma, ylrækt er orðin vaxandi, ábatasöm atvinnugrein og sundlaugar eru orðnar vinsælustu samkomu- staðir landsins.2 Hér verður fjallað um sundið og þá sérstaklega það samfélag sem sund- lauga ferðir hafa myndað og orðið ríkur þáttur í daglegu lífi fjölmargra. Megintilgangur laugaferða er ekki lengur sundsprettur; laugarnar eru orðnar vettvangur félagslífs. Kannanir hafa leitt í ljós að rétt um helmingur gesta nefnir pottinn sem megintilefni heimsóknarinnar. Það er sérkennilegt í ljósi þess að hann á sér aðeins rúmlega fimmtíu ára sögu en fyrstu heitu pott- arnir voru teknir í notkun í Vesturbæjarlauginni í Reykjavík árið 1961.3 Sundlistin Sé hægt að kalla nokkra eina líkams íþrótt, íþrótt iþróttanna, þá er það sundlistin.4 Það að kunna að synda er sjálfgefinn hluti daglegs lífs, en það er í raun ekki svo langt síðan sundkunnátta varð almenn og enn styttra síðan Íslendingar fóru að synda í heitavatnslaugum. Í gegnum aldirnar voru gerðar tilraunir til sundkennslu og einhverjir tugir landsmanna kunnu að synda á hverjum tíma, en það er ekki fyrr en á fyrstu áratugum nítjándu aldar sem sund er iðkað að einhverju mark Fjölnismenn þýddu og staðfærðu Sund-reglur Prófessors Nachtegalls árið 1836 til að hvetja landsmenn til sundiðkunar en þar segir meðal annars: „Víðast hvar um Ísland er hægt að fá sundstæði, og sums staðar svo góð, að varla eru önnur betri í heiminum …“ Vísað er til þess að hægt sé að hlaða grjóti fyrir heitar uppsprettur.5 En jafnvel þó að hægt væri að lauga sig í heitu vatni þá gat það verið varasamt eins og dæmin sanna allt fram á þennan dag.6 Árið 1884 var stofnað Sundfélag Reykjavíkur að frumkvæði Björns L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.