Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 116
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
116 TMM 2013 · 2
metnaði í bland við ríka leikgleði, sem birtist ákaflega vel í bók Einars Melax
frá árinu 1984 og nefnist Lautinant Tómas trélitabók – og inniheldur myndir
sem eru greinilega vel til þess fallnar að vera litaðar.
Smekkleysa
Eins og áður segir leystist Medúsuhópurinn upp um sama leyti og ljóðasafn
Sjóns, Drengurinn með röntgenaugun, kom út hjá Máli og menningu. Áhrif
hópsins áttu þó eftir að lifa, í breyttu formi og með nokkrum manna-
breytingum, en hluti af Medúsumönnum stofnaði útgáfufyrirtækið Smekk-
leysu árið 1986, og sama ár kom út fræg smáskífa hljómsveitarinnar Sykur-
molarnir, „Ammæli“. Björk hafði verið að nokkru leyti viðloðandi Medúsu,
auk hennar voru Einar Melax og Þór Eldon meðal upphaflegu mol anna.
Aðrir molar voru þeir Bragi Ólafsson, Einar Örn Benediktsson, Friðrik
Erlingsson og Sigtryggur Baldursson, sem allir komu úr pönkinu. Ólafur
Jóhann Engilbertsson var einn af stofnmeðlimum Smekkleysu og hefur
starfað innan vébanda hennar á margvíslegan hátt, meðal annars með því
að setja upp sýningar og koma að ýmsum viðburðum en starfsemi Smekk-
leysu er afar fjölbreytt. Það er því ljóst að tengslin milli hópanna eru mikil
– og er þá ótalinn þáttur Sjóns sjálfs, sem hefur frá upphafi verið virkur í
starfi Smekkleysu. Eins og Ólafur Jóhann Engilbertsson rekur í greininni
„Rætur Smekkleysu þræddar“ (2003) var Smekkleysu ætlað að halda hlut
neðanjarðarmenningar á lofti, bæði í textum og tónlist.42 Þessi fyrstu ár var
meiri kraftur í bókaútgáfu en síðar varð, nokkrar ljóðabækur komu út, þar
á meðal fyrsta ljóðabók Braga Ólafssonar, Dragsúgur (1986), sem þá hafði
spilað meðal annars með pönkhljómsveitinni Purrki Pillnikk auk Kuklsins,
sem var mikilvægur fyrirrennari Sykurmolanna. Einnig má nefna lítið
safnrit sem nefndist Kráarljóð, en þar kom einmitt tenging Medúsunnar og
Smekkleysunnar svo fallega í ljós, því ljóðskáldin voru mörg hver fyrrum
Medúsuliðar. Ólafur Jóhann bendir á að í upphafi hafi áherslan í útgáfu
Smekkleysu verið síst minni á bækur en hljómplötur. Auk bóka má nefna
myndasögutímaritið (gisp!), en Ólafur sá að mestu um útgáfu þess árin
1991–92 undir merkjum Smekkleysu.43
Hljómsveitin Kukl var stofnuð 1983 og er almennt talin hafa innihaldið
rjómann af tónlistarfólki pönkbylgjunnar.44 Ferli hennar, sem einkenndist
af virðingu fremur en vinsældum, lauk árið 1986, sama ár og Smekkleysa er
stofnuð og smáskífan „Ammæli“ kemur út. Eins og frægt er orðið sló lagið í
enskri útgáfu óvænt í gegn í Bretlandi og var smáskífa vikunnar í tímaritinu
Melody Maker þegar það kom út 17. ágúst 1987.45 Með þessu hófst sigurganga
íslenskrar tónlistar í útlöndum, og sér ekki fyrir endann á. Sama ár kom Sjón
fram á tónleikum með Sykurmolunum undir nafninu Johnny Triumph, en
sá birtist svo í skáldsögunni Stálnótt. Lag Johnny, „Lúftgítar“, var gefið út