Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Blaðsíða 89
Á h r i f E S B -a ð i l d a r á í s l e n s k h e i m i l i
TMM 2013 · 2 89
myndi lækka um 8%, mjólk, ostar og egg um 12%, brauð og kornmeti um
9%, kjöt um 23%, en að drykkjarverð héldist óbreytt.
Í bókinni Hvað með Evruna?, sem út kom árið 2008, taka höfundar heldur
dýpra í árinni en Hagfræðistofnun gerði árið 2004 og áætla að við ESB-aðild
gæti verð á neysluvörum almennt lækkað um 15% og matarverð gæti lækkað
um allt að 25%. Þær tölur voru byggðar á samanburði við Danmörku, Finn-
land og Írland, en bókarhöfundar bentu réttilega á að mikill munur er á
verðlagi innan ESB og því sé óraunhæft að gera ráð fyrir að ESB-aðild Íslands
lækki verðlag neysluvara á Íslandi niður að meðaltali ESB-landanna.8 Höf-
undar bentu líka á að ekki sé líklegt að ESB-aðild Íslands muni breyta miklu
um verð á húsnæði, bifreiðum, orku, áfengi eða tóbaki, sem ræðst fyrst og
fremst af innlendum aðstæðum og innlendri skattlagningu.
Í „The Political Economy of Joining the European Union, Iceland’s Position
at the Beginning of the 21st Century“ (Stjórnmálahagfræðin við að ganga í
ESB, Staða Íslands í byrjun 21. aldar) sem út kom árið 2010, notast höfundur
við tvo möguleika, annars vegar hversu mikið matvara lækkaði í Finnlandi
og Svíþjóð við aðild þeirra að ESB árið 1995, og hins vegar að matvara á
Íslandi lækki niður í það verðlag sem var í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð
Matvælaverð árið 2009 í nokkrum Evrópulöndum –
ESB-meðaltal er 100
Ísland Bretland Danmörk Eistland Finnland Holland Svíþjóð Tékkland
Matur og
drykkjarvörur 104 97 139 80 120 98 104 75
Matur 105 96 134 79 118 98 104 74
Brauð og korn-
vörur 129 84 146 78 128 99 114 69
Kjöt 99 102 131 70 120 115 108 69
Fiskur 80 75 120 77 103 106 99 82
Mjólk, ostar og
egg 91 95 115 86 111 93 90 82
Olíur og feitmeti 90 87 140 100 111 83 104 84
Ávextir og
grænmeti 117 117 134 80 129 104 120 70
Óáfengar
drykkjarvörur 103 102 193 99 132 96 110 93
Áfengi og tóbak 137 138 124 81 138 105 130 80
Heimild: Hagstofan, 2012