Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Side 24
Á r n i S n æ va r r
24 TMM 2013 · 2
hjá fjölmiðlum. Engin mótmæli. Á sömu síðu sagði Sigurður G. Guðjónsson
að samið hefði verið upp á nýtt um kaup og kjör við aðra starfsmenn og
væri mikil sátt um þessi málalok enda gerð í samráði við alla hlutaðeigandi.
Myndi þetta bæta fréttirnar til muna. Sjaldan hefur sést jafn fullkominn
samhljómur á milli vinnuveitanda og verkalýðsfélags.
Það er reiðarslag að missa vinnuna en hvernig ætli sé að lesa það í blaði
sem berst inn á hvert heimili, að það bæti vinnustað þinn að þú sért rekinn?
Svo notuð sé líking úr knattspyrnu, þá hafirðu leikið svo illa að ákveðið
hafi verið að taka þig út af í miðjum leik og enginn settur inn á í staðinn, og
við þetta myndi leikur liðsins batna til muna. Og félagi þinn og formaður
verkalýðsfélagsins þíns mótmæli ekki þessum skilningi. Því miður hreyfði
ég hvorki legg né lið, en leitaði sáluhjálpar á botninum á stórum bjór: ég
skammast mín enn í dag fyrir að hafa ekki mótmælt og sýnt vinkonum
mínum að minnsta kosti opinbera samstöðu.
Sumarið 2003 var eins og líf á dauðadeild. Dead man walking. Fólk með
tár í augunum að safna saman dótinu sínu og öllum var gert að yfirgefa
vinnustaðinn á stundinni – merkilegt nokk var enginn beðinn um að vinna
uppsagnarfrestinn. Þegar kom fram í ágúst leið ekki sú vika að ekki væri ein-
hver rekinn, og í hvert skipti virtist allt gert svo að viðskilnaðurinn væri sem
erfiðastur. Engu líkara en verið væri viljandi að skaða orðspor fyrirtækisins
og burtrekinna starfsmanna.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson var á þessum tíma einn vinsælasti sjónvarps-
maður landsins, ekki bara annar helmingur tvíeykisins í Íslandi í dag, heldur
líka stjórnandi vinsælasta þáttar Stöðvar 2: Viltu vinna milljón.
Hið fornkveðna sannaðist að maður getur alltaf á sig blómum bætt því
þrátt fyrir vinsældir Þorsteins Joð var hann kallaður úr sumarfríi og rekinn
til að rýma fyrir fornvini annars eigandans og hafði sá hinn sami þó ekki
komið nálægt fjölmiðlum um ára- eða áratugaskeið.
Níu mánuðum fyrr höfðum við gömlu félagarnir af DV, Bylgjunni og
Stöð 2 staðið saman á sviði í Þjóðleikhúsinu, þegar Þorsteinn J. afhenti mér
viðurkenningu á Eddu-hátíðinni í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins sem
fréttamanni ársins. Árið áður hafði ég verið tilnefndur en sigraði í þetta
skipti og tileinkaði ég verðlaunin vinnufélögum mínum og baráttu okkar í
þágu sjálfstæðrar fréttamennsku.
Fjármálaráðherra fiskar í boði Kaupþings
Í byrjun ágúst bárust fréttastofunni njósnir af því að Geir H. Haarde, fjár-
málaráðherra væri við laxveiðar í Grímsá í boði Kaupþings-Búnaðarbanka.
Ekki held ég að við höfum lagt trúnað á þetta í byrjun því Kaupþing var ekki
í miklum metum hjá Sjálfstæðismönnum og auðvitað leit það ekki vel út að
fjármálaráðherra landsins þæði rándýra laxveiðiferð af stórfyrirtæki.
Inga Lind Karlsdóttir, fréttamaður „landaði“ hins vegar fréttinni. Geir