Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 62

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Qupperneq 62
Þ ó r u n n E r l u o g Va l d i m a r s d ó t t i r 62 TMM 2013 · 2 götustráksleg fyrir mig. Þetta er úr heimi frekra karla og yfirgangs þeirra. Að rúlla yfir, meiða og skíta út lifandi menn og dýr. Dætur, vini og skyldmenni Brynhildar. Það er skáldskaparvíddin sem ég á erfitt með, að telja sig hafa leyfi til að skrifa handrit að sögulegri kvikmynd eða bók vísvitandi bullandi um helga persónu – og allar persónur eru helgar. Sagnfræðilegur skáldskapur á ekki að vera til, bara sögulegur og þá eiga persónurnar að vera skáldaðar. Basta. Jón Arason biskup ætti þá að heita Jóhannes Arason, til dæmis, svo að hver sem les muni allan tímann að skáldið skrifar. En svona er frelsið. Laxness gerir virðulegan átjándu aldar mann eins og Arnæus að hálfgerðum pedófíl, með hjálp handritafræðings. Almenningur greinir ekki á milli. Þegar skáldað er eigum við öll að vita að verið er að bulla, en það vill í mörgum höfðum gleymast. Mynd Íslandsklukkunnar af átjándu öldinni er dásemd. Bókstafstrúar sagnfræðingar leiðinda fýlupúkar. Clíó minnar kynslóðar Ég hef þjónað ólíkum gyðjum til skiptis allt lífið, sem sagnfræðingur og rithöfundur. Hef rafmagnsgirðingu milli héraða sagnfræðinnar og skáld- skaparins, tek ekki í mál að blanda þessu saman. Ýmsir halda að ég hafi misst múrinn niður í Snorra á Húsafelli en svo er þó ekki, ég bara nýtti það sem ég lærði af annalskólanum franska um notkun heimilda til hversdags- sögu og færði niður til einstaklingsins, skrifaði svo bókmenntalegan texta á köflum án þess að brjóta siðareglur sagnfræðingsins. Lipur, innblásinn og vel skrifaður texti er alveg jafn mikið sagnfræðinnar og skáldskaparins. Verandi menntaður sagnfræðingur, alinn upp af nokkurn veginn sómakæru fólki, gerir manni tvennt ókleift: ritstuld eða plagiarisma og það að ljúga upp á fólk. Ég get hvorugt. Codex Ethicus Sagnfræðingafélags Íslands er til í fimm köflum, tiltölulega nýlega til kominn og er að finna á heimasíðu félagsins. Í Bandaríkjunum finnast margar útgáfur af slíkum siðareglum. Kjarni íslensku siðareglanna vísar beint í Ara fróða: „Allir sagnfræðingar eiga í starfi sínu að leggja áherslu á að hafa það sem sannara reynist …“ og sagnfræðingurinn má ekki skemma heimildir „ekki búa til upplýsingar sem engar heimildir eru fyrir; falsa heimildir; stela úr ritverkum, hugmyndum eða kenningum annarra; né velja úr heimildum aðeins það sem hentar niðurstöðum þeirra en sleppa að geta þess sem mælir á móti; og misnota upplýsingar til stuðnings niðurstöðum sínum […] Þeir sem þurfa að leggja mat á verk, umsóknir eða feril sagnfræðings [þarna hljóta ritdómar að teljast með] skulu ávallt gæta fyllstu óhlutdrægni en aldrei láta persónulega velvild eða óvild, hagsmunatengsl eða hagsmunaárekstra hafa áhrif á mat sitt. Sé hætta á hlutdrægni skulu þeir skilyrðislaust víkja sæti.“ Og að lokum þetta sem er svo erfitt: „Höfundar ritverka bera ábyrgð á orðum sínum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.