Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 111
„ A ð v e r a m e ð f u l l r i u n d i r m e ð v i t u n d“ : u m M e d ú s u h ó p i n n TMM 2013 · 2 111 í formi gjörninga en þeir félagar komu fram í glæsilegum grímubúningum og stóðu fyrir upplestri, harmoníkuspili og sælgætisáti. Árið 1984 var hljóm- sveitin Kukl stofnuð, sem innihélt meðlimi utan og innan við Medúsu. Sama ár var stærsta verkefni Skruggubúðar, sýningin ,Við étum ekki þetta brauð‘, og var henni stefnt gegn trúarlegri sýningu á Kjarvalsstöðum. Þar komu fram listamenn frá öllum heimshornum, og haldnir voru upp- lestrar, kvikmyndasýningar og tónleikar. Að hætti súrrealista og annarra framúrstefnuhópa döðruðu meðlimir Medúsu við pólitískan áróður, gengust fyrir tveimur herferðum um að skila auðu í kosningum, árið 1982 var plakataherferð og árið eftir tónleikar í Félagsstofnun stúdenta. Eins og áður segir var 1985 síðasta Medúsuárið þótt hópurinn hafi aldrei hætt formlega. Það ár var haldinn ,Dagur ljóðsins‘ í fyrsta sinn á Íslandi og stóðu Medúsulimir fyrir ‚ljóðasprengju‘, ljóðaupplestri eða ljóðagjörningi. Síðasta verkefni hópsins var síðan með Kuklinu og hét Sirkusdútl. Hópurinn rann saman við aðra svipaða og áberandi hópa sem störfuðu þá, eins og Oxsmá og leikhópinn Svart og sykurlaust. Sjón var fjölmiðlafulltrúi Oxsmá um tíma, sumarið 1985, en sá hópur gerði meðal annars kvikmyndina Sjúgðu mig Nína (1985) sem talin er mikilvægur viðburður í gerð tilrauna- kvikmynda. Þrátt fyrir að tími öflugra framúrstefnuhópa hafi í raun verið liðinn þegar Medúsa er stofnuð – ef miðað er við tvö aðalskeið framúrstefnunnar, frá 1910 til seinni heimsstyrjaldar og svo aftur frá eftirstríðsárunum fram undir 197018 – þá var Medúsa langt því frá að vera ein í heiminum. Frá árinu 1981 höfðu Medúsulimir skriflegt samband við ýmsa súrrealistahópa um víðan heim sem þeir að auki heimsóttu á ferðalögum en árangurinn af þessu alþjóðlega samstarfi mátti meðal annars sjá í sýningum í Skruggubúð. Meðal annars voru stofnuð samtök norrænna súrrealista, en frá því segir einmitt í Hinum súrrealíska uppskurði. Aftast í því tímariti er svo að finna póstlista yfir súrrealistahópa, einskonar ‚tenglasíðu‘ þess tíma. Ljóð eftir Medúsu- meðlimi birtust í enskumælandi tímaritinu Dunganon sem Tony Pusey gaf út í Svíþjóð. Segja má að Tony þessi hafi verið einskonar aukameðlimur í Medúsu.19 Árið 1993 var sett upp sýning á verkum og sögu Medúsu í Gerðubergi undir styrkri stjórn Ólafs Jóhanns Engilbertssonar. Jafnframt voru fluttir leikþættir byggðir á sögu Medúsu og haldnir upplestrar, þó kannski ekki með samskonar fyrirgangi og á blómatímanum. Viðtökur Ekki er að sjá að íslenskt bókmenntafólk hafi beinlínis áttað sig á því sem þarna var að gerast, en þrátt fyrir að hópurinn hafi verið duglegur að koma sér á framfæri tóku fjölmiðlar þeim frekar fálega. Það var þó helst Morgun- blaðið sem fjallaði um bækur Medúsu og er ljóst að hópurinn átti góðan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.