Skessuhorn - 17.06.2015, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 201510
Veiðin í Norðurá í Borgarfirði
hefur verið ágæt, en áin hafði um
helgina gefið yfir 60 laxa og fiskur
var að koma á hverri vakt. Vatnið
var mikið í ánni en hefur sjatnað
verulega á ný eftir flóðið mikla að-
fararnótt þriðjudags í liðinni viku.
„Vatnið er frábært þessa dagana
í ánni og smálaxinn er að mæta í
auknum mæli. Staðan er því fín,“
sagði Elvar Örn Friðriksson er við
spurðum um veiðarnar. „Laxarnir
eru flestir á bilinu 70 - 85 cm og
koma vel haldnir úr sjónum,“ sagði
Elvar Örn.
Byrjunin í Þverá og
Kjarará lofar góðu
„Veiðin byrjar bara vel hjá okkur í
Þverá en opnunarhollið veiddi 15
laxa og það verður að teljast ágæt,“
sagði Ingólfur Ásgeirsson er við
spurðum um opnunina í Þverá í
Borgarfirði. Vatnið er mikið í ánni
þessa dagana, svo veiðin í Kjarará
gæti orðið mjög góð. En með-
al þeirra sem opna á fjallinu eru
tannlæknarnir Þórarinn Sigþórs-
son og Egill Guðjohnsen. „Veið-
in í Kjarará fyrsta hálfa daginn var
átta laxar sem fengust víða um ána,
svo þetta lítur vel út hérna við árn-
ar,“ sagði Ingólfur við Kjarará.
Lítið hefur frést úr Straumunum
síðan svæðið var opnað, en lax er
kominn á land. Á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní mun Laxá í Leirársveit
verða opnuð. „Menn eru orðn-
ir verulega spenntir að opna, það
er langt síðan fyrsti fiskurinn sást
í ánni,“ sagði Haukur Geir Garð-
arsson er við spurðum um stöðuna.
Um næstu helgi verður svo opnað í
Langá og Grímsá.
gb
Yfir sextíu laxar
komnir úr Norðurá
Lilja María Sigfúsdóttir með fallegan lax úr Norðurá fyrir fáum dögum.
Ljósm. Elvar Örn.
Við veiðar í Þverá.
Tillaga skipulags- og umhverfisráðs
að reglum um sjóð til styrkveiting-
ar vegna viðhalds á ytra byrði húsa
á ákveðnum svæðum á Akranesi var
samþykkt af bæjarstjórn 24. febrúar
síðastliðinn. Ráðstöfunarfé til styrk-
veitinganna er ákveðið í fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs og árið 2015 var
15 milljónum veitt í þennan nýja
viðhaldssjóð. Miðvikudaginn 10.
júní var styrkjum úr sjóðnum úthlut-
að í fyrsta skipti. Markmiðið bæjar-
yfirvalda með styrkveitingunni er
að bæta ásýnd ákveðinna svæða sem
heyra undir Akraneskaupstað. Það
er skipulags- og umhverfisráð sem
metur hvaða svæði eiga kost á styrk
hverju sinni og leggur tillögur þess
efnis fyrir bæjarráð. Að þessu sinni
var ákveðið að eigendum fasteigna
við Kirkjubraut (frá Merkigerði) og
Skólabraut stæði til boða að sækja
um styrki til viðhalds á þeim hús-
eignum sínum.
Eigendur 14 fasteigna hlutu
styrk að þessu sinni vegna eftir-
talinna húsa:
Skólabraut 20, kr. 600 þúsund: mál-
un húss og lagfæring á þakrennum.
Skólabraut 22, kr. 400 þúsund: mál-
un þaks.
Skólabraut 23, kr. 600 þúsund: skipta
um klæðningu og lagfæra glugga og
þakkant.
Skólabraut 25, kr. 380 þúsund: við-
gerð á þaki og gluggum, málun
glugga og þaks.
Skólabraut 29, kr. 1.200 þúsund:
endurnýjun klæðningar, þakkants
og glugga.
Skólabraut 33, kr.1.200 þúsund:
endurnýjun á ytra byrði húss, klæðn-
ing, gler og gluggar.
Kirkjubraut 2, kr. 455 þúsund: end-
urnýjun glugga á jarðhæð.
Kirkjubraut 6A, kr. 1.200 þúsund:
endurgerð þakkants og glugga.
Kirkjubraut 8, kr. 830 þúsund: mál-
un húss að utan og endurnýjun
glugga.
Kirkjubraut 17, kr. 510 þúsund: lag-
færa skemmda klæðningu og kanta
fyrir ofan útihurðir.
Kirkjubraut 19, kr. 600 þúsund:
steypuviðgerðir og málun húss að
utan.
Kirkjubraut 21, kr. 600 þúsund: end-
urnýjun þaks og renna.
Kirkjubraut 22, kr. 600 þúsund:
endurnýjun á bárujárnsklæðningu
og viðgerð á gluggum.
Kirkjubraut 23, kr. 1.200 þúsund:
járnklæðning tekin, útveggir ein-
angraðir og steinaðir.
(listinn er fenginn af vef Akranes-
kaupstaðar)
Alls námu styrkirnir 10.375.000
krónum og var fasteignunum skip-
að í tvo flokka eftir viðhaldsþörf.
Þar sem mikil þörf var á viðhaldi
gat styrkurinn mest numið 1.200
þúsund krónum og mest 600 þús-
und krónum þar sem þörf var talin
minni. Styrkupphæðir gátu þó aldrei
numið meiru en helmingi af áætluð-
um kostnaði við viðhald og viðgerð-
ir tiltekinna fasteigna. Fjórir hæstu
styrkirnir, 1,2 milljón króna hver,
runnu til eigenda vegna viðhalds
þeirra húsa sem sjá má að meðfylgj-
andi myndum.
kgk
Úthlutað úr viðhaldssjóði í
fyrsta skipti á Akranesi
Fulltrúar Akraneskaupstaðar ásamt styrkþegum.
Skólabraut 29. Skólabraut 33.
Kirkjubraut 23. Kirkjubraut 6A.
Vitakaffi | Stillholti 16-18 | Sími 431 1401
Hamborgararnir okkar hafa slegið í gegn.
Nú höfum við bætt Salsaborgara og
Grænmetisborgara á matseðilinn.
Minnum á að hægt er að hringja og panta
til að taka með, síminn er 431-1401.
• Lifandi tónlist allar helgar.
• Frítt WiFi
Verið velkomin
Úrvals hamborgarar,
samlokur, ka og kökur
Opnunartími til 1. september
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5