Heimsmynd - 01.03.1986, Page 60

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 60
Sækir Hrólfur sinfóníutónleika að staðaldri vegna áhuga á klassískri tónlist eða sækir hann tónleikana vegna þess að það þykir menningarlegt (smáborgaraháttur)? sannfæring leiðir hegðun þína ertu örugg- ur með sjálfan þig. Þér finnst þú ef til vill vera öðruvísi en aðrir, en hvorki meiri né minni. Þegar hegðun þína mótast af löngun til að verða hátt metinn, þá ertu óöruggur með sjálfan þig og hefur stöðugt á tilfinningunni að þú sért annað- hvort meiri eða minni en aðrir. Lífs- brautin verður þyrnum stráð. Sárs- aukinn, niðurlægingin og vonbrigðin verða óhjákvæmileg vegna þess að okkar innri maður setur okkur mörk, sem koma í veg fyrir að við náum því há- stemmda marki að vera alltaf á toppnum. Þeir sem sáu kvikmyndina Amadeus, sem sýnd var hér á landi síðastliðið haust, muna eflaust eftir tveimur aðal- persónum myndarinnar, Mozart og Sa- liéri. Þeir eru ágæt dæmi um menn, sem sömdu tónlist af ólíkum ástæðum; Saliéri til þess að verða hátt metinn og Mozart af innri nauðsyn. Seinni skilgreiningin á smáborgurum gerir ekki ráð fyrir að einhver ákveðinn hópur manna í þjóðfélaginu sé óhjá- kvæmilega smáborgarar á öllum sviðum, heldur að það leynist vottur af smáborg- ara í okkur öllum, óháð því hversu miklir háborgarar sumir kunni að vera. Eða með öðrum orðum að allir falli í þá gryfju einhvern tíma á lífsleiðinni, að leyfa sjálfum sér og öðrum að ákvarða verðgildi sitt og staðsetja sig á mæli- kvarða. Það skiptir engu máli hvort nið- urstöður slíkrar mælingar eru hagstæðar fyrir viðkomandi eða ekki. Hagstæð mæl- ing leiðir til þess að sá hinn sami er ósköp sæll með sig og tekst að blekkja sig í lengri eða skemmri tíma. Síðan kemur efinn um eigið ágæti og viðkomandi fer að ókyrrast, en venjulega gerist ekki ann- að en að einstaklingurinn reynir að stað- festa stöðu sína með einhverjum ráðum, fer til dæmis í bókmenntir í háskólanum því hann er svo ungur og efnilegur eða byggir tvíbýli í Arnarnesinu því hann er svo ríkur og duglegur. Síðan gengur allt vel þangað til næsta tímabil efasemda skellur yfir og þá þarf eitthvað nýtt til staðfestingar á eigin stöðu. Afleiðingin er vítahringur, sem leiðir til þess að menn sökkva dýpra og dýpra í eigin smá- borgarahátt eftir því sem tímar líða. OFT LEYNIST SMÁBORGARI í HÁ- BORGARA Margir eru sáttir við þá hugmynd að hægt sé að stimpla einstakling sem annað hvort smáborgara eða háborgara út frá því hversu verðmæt ytri einkenni hans eru. Hugmyndin um verðmæti ytri ein- kenna gefur okkur áþreifanlega viðmið- un um hvernig beri að flokka fólk og umgangast það. Auk þess er hægt að afgreiða lífsmáta sinn og stöðu í samfé- laginu með því að verða sér úti um þau ytri tákn sem eftirsóknarverð þykja. Sækir Hrólfur sinfóníutónleika að stað- aldri vegna áhuga á klassískri tónlist eða sækir hann tónleikana vegna þess að það þykir menningarlegt (smáborgarahátt- ur)? Enda þótt ytri einkenni eins og lífs- stíll eða veraldleg gæði séu einatt lögð á mælistiku og notuð til sjálfsupphafningar eða minnkunnar, bæði af okkur sjálfum og öðrum, er ekki öll sagan sögð. Sjálfsvirð- ing, sátt við sjálfan sig og sálarró, byggja ekki á mældum gæðum heldur hversu trúverðug og sönn við erum í því sem við gerum, bæði háu sem smáu. Þótt einstaklingur fengi tiltölulega lága einkunn út úr prófinu hér að framan fengi hann virðingu sína og annarra væri hann sjálfum sér samkvæmur. Annar ein- staklingur með svipaða prófeinkunn og sá fyrri en sem ekki stendur undir sjálf- um sér og sveiflast á milli upphafningar og minnkunnar, fengi líklega stimpilinn smáborgari . Sá sem fengi háa einkunn aftur á móti en væri samt ekki sáttur við sjálfan sig, slyppi ef til vill undan smá- borgarastimplinum en fengi háborgara- stimpil í staðinn. Slíkur einstaklingur byggi við stöðugt samviskubit og efa- semdir um það að eiga slíkan heiður skilið. Hann byggi ekki við sjálfsvirðingu og vissi innst inni að virðing annarra fyrir honum væri byggð á fölskum forsendum. Annar einstaklingur með háa próf- einkunn, sem er trúr sjálfum sér, hefur bæði sjálfsvirðingu og virðingu annarra og er ekki í þeirri hættu að vera stimplað- ur sem smáborgari eða háborgari. Það er erfitt að stimpla fólk sem vitað er að lifir eftir innri sannfæringu og að því er virðist í sátt við sjálft sig, Hegðun þess er aldrei nógu áþreifanleg til þess að hægt sé að fella viðkomandi undir þennan eða hinn hattinn, til dæmis þegar einstaklingur sem vitað er að tekur gjarnan málefna- lega afstöðu í stjórnmálum án þess að vera flokksbundinn og aðrir velta vöng- um yfir því hvar honum verði í flokk skipað. Sálarró slíks fólks truflar oft vana- bundna hugsun og hegðun annarra, set- ur hana úr skorðum og gerir kröfu um ný viðhorf. Hins vegar er auðvelt að stimpla fólk, sem metur sjálft sig út frá ytri einkenn- um. Sh'kt fólk fær viðurnefni eins og smá- borgari, uppskafningur, snobbari, kom- mi, kapítalisti, uppi, (það er sá sem er á uppleið), góður, slæmur ,gáfnaljós og svo mætti áfram telja. Sá einstaklingur, sem fær á sig einhvern svona stimpil get- ur á vissan hátt sjálfum sér um kennt ef atorka hans fer í það að sannfæra sjálfan sig og aðra um að hann sé einmitt svona en ekki hinsegin. ERU ÍSLENDINGAR MEIRI SMÁ- BORGARAR EN AÐRIRI Þessari spurningu skulum við svara með skilgreiningarnar tvær í huga. Eins og áður hefur komið fram hafa allir menn, burtséð frá þjóðerni, stétt, félags- legri stöðu, kynþætti eða kyni, tilhneig- ingu til þess að gera sig háa eða smáa. Hjá sumum einstaklingum er þessi til- hneiging meira allsráðandi en hjá öðrum. Persónur slíkra manna fá á sig blæ óör- yggis og þær sveiflast á milli lítils álits á sjálfum sér og oftrúar. Þegar einstakl- ingur er á valdi smáborgaraháttar (öll upplifum við slíkt einhvern tíma á lífs- leiðinni), er hegðun viðkomandi ótrú- verðug og skortir innri sannfæringu. Ef smáborgaraháttur er allsráðandi í lífi ein- hvers skapast vandamál, sem leiða alltaf til óhamingju þes sem á í hlut. Óhamingj- an birtist í mörgum myndum, til dæmis alkóhólisma, og smitar út frá sér til ná- 60 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.