Heimsmynd - 01.03.1986, Page 132

Heimsmynd - 01.03.1986, Page 132
T.S. Eliot þegar hann var við nám á Harvard háskólanum í Boston. Fólki varð tíðrætt um sterkan augnsvip hans. vera alltaf stofudrama, er hvað sem hugs- anlegum leikrænum verðleikum líður og flínkheitum, byggt á einhverjum mis- skilningi á eðli leiklistar annars vegar og eðli sagnfræði hins vegar, muninum þar á. Enda lúta þessi leikrit sjálfstæðum lög- málum og líkjast hvert öðru furðu mikið, sé haft í huga hve ólíkir listamenn verða fyrir barðinu á þessu: T.S. Eliot í þessu leikriti og H.C.Andersen í leikritinu sem hét Nótt ánamaðkanna eða eitthvað svo- leiðis gætu til dæmis verið bræður. Það er komin ágæt reynsla fyrir því að hafa ævisögur á bókum. Bókin hefur það fram yfir leikhúsið sem fróðleiksmiðill að viðtakandi hefur meiri möguleika til þátt- töku, getur rólegur metið það sem fram er borið. Hann er einn. Hann hefur kveikt ljós hjá sér. Ef hann nennir getur hann haft hjá sér blað og blýant og krot- að athugasemdir. Höfundur leggur fram heimildir sínar og lesandi getur ráðið í hvernig úrvinnsla þeirra er. Hann getur skroppið út í búð og hugsað á göngunni um efnið (þetta er mikilvægt: að geta hugsað á göngunni). Hann getur flett upp í öðrum bókum. Hann getur í stuttu máli íhugað efnið. í leikhúsi situr áhorf- andi í myrkrinu og kemst hvergi út og aðstæður hans eru annarlegar: hann svitnar út af kyndingunni, hann andar að sér hárlakki, hann er kannski í einhverj- um fötum sem hann þekkir ekki alveg og kannast því ekki með öllu við sjálfan sig, allt í kringum hann er eitthvað fólk sem sendir frá sér strauma sem stefna allir hratt í sömu átt og athafnirnar á sviðinu espa upp - viðtakandi er orðinn að hóp- Vivien Eliot. T.S.Eliot sem barn. Hann naut mikils ástríkis kvenna í æsku, bæði móður og systra og þjáðist af sektarkennd alla ævi fyrir að hafa slitið naflastrenginn - yfir- gefið móður sína. veru, nautnin sem hafa má af góðri leiksýningu felst í samkenndinni, allt stefnir að sefjun, áhrifin koma úr einni átt, sköpunin er einhliða, þú meðtekur, vitund þín rennur saman við stóra vitund hópsins. Öll góð list sefjar. Hún verður að sefja, viðtakandi á að vera í nokkurs konar öngviti meðan hann nýtur hennar og þess vegna má hún helst ekki fjalla um raunverulegt fólk og alls ekki frægt fólk því hún verður að fá svigrúm til að ljúga til að geta sagt satt. í leikritinu er Eliot að aðalstarfi eigin- maður. Hann Tom hennar Viv. í meðför- um Viðars Eggertssonar er þetta gufu- legur maður sem sífellt er að bæla sjálfan sig, hann tekur lífið mjög alvarlega og er allan tímann hengdur upp á þráð. Mynd Viðars af Eliot er heilleg, hlutverkið gengur upp, það er vandlega unnið og þaulhugsað - vel leikið - en hann er ekki að leika T.S. Eliot heldur hugmynd Hast- ings um hann sem kölluð er Tom. Raun- veruleg persóna Eliots stendur utan við verkið og varpar skugga á það, truflar. í stað þess að áhorfandinn hrífist með og fyllist réttlátri reiði yfir heimsku þeirra lækna sem gerðu Vivien brjálaða með fúski sínu, hugsar hann sífellt: er þetta nú rétt? Var hann virkilega svona? Skyldi hann hafa haft þennan kæk? Var hann svona snöggur að yrkja? - Eliot er að þvælast fyrir raunverulegu umfjöllunar- efni leikritsins, sem er fyrrgreint lækna- klúður. Hafi fólk áhuga á að komast að því hver hann var, maðurinn hennar Vi- vien hans Tom, þarf það að lesa ævisögu Ackroyds. Margir ævisagnaritarar hafa farið flatt á því að reyna um of að lifa sig inn í athafnir og hugarástand þeirra sem skrif- að er um. Þeir reyna að smjúga inn í vitund annars manns, taka sér stöðu í henni miðri og taka að tala tungum og virðast alveg gleyma því að í rauninni er það aðeins þeirra eigin vitund sem starf- ar, þegar best lætur er þetta ágæt heimild um þá sjálfa. Og þegar þetta gerist er önnur hætta á næstu grösum: þeir fara að lesa skáldskapinn sem heimild um ævi viðkomandi höfundar, en ekki öfugt eins og upphaflega var hið yfirlýsta markmið; menn vilja komast að því hvernig skáld- inu hafi liðið eftir að slitnaði upp úr ástarsambandi og fara í ljóðin frá sama tíma og nota þau sem álíka áreiðanlegar heimildir og til dæmis bréf. En þá gleymist að það eru ekki öll skáld haldin Tikkanen-áráttunni, að tala aðeins bert um sjálf sig; meira að segja höfundar eins og Strindberg sem var mjög hugfanginn af sjálfum sér er stórkostlega varasamur í þessu, því um leið og hann var tekinn að skrifa, þó ekki væri nema sendibréf, var hann tekinn að skálda eigið líf - margt sem hann segir í bréfum sínum um líðan sína og athafnir er einfaldlega haugalygi, vegna þess að sá sem er skáld er í öðru sambandi við veruleikann en annað fólk, hlutskipti skáldsins er að skálda, ekki að játa. Einn höfuðkosturinn við bók Ackro- yds um Eliot er að hann gerir sér grein fyrir þessu - skilur að Eliot var sífellt að semja um sjálfan sig upp á nýtt og að allar tilraunir til innlifunar í vitund hins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.