Heimsmynd - 01.04.1990, Qupperneq 29
bannorð. Spenna er boðorð númer eitt tvö og þrjú og krafan
er spennandi og tilbreytingaríkt líf með kynferðislegum flug-
eldasýningum alla daga ársins. Slík spenna er yfirleitt ekki til
staðar í hjónaböndum sem staðið hafa lengur en eitt til tvö ár
og því er eðlilegt að leitað sé út fyrir veggi heimilisins eftir
fullnægingu spennuþarfarinnar. Hræðslan við alnæmi virðist
ekki hafa nokkur áhrif í þá átt að minnka framhjáhald og ung
stúlka sem fjármagnar eiturlyfjaneyslu sína með vændi segir
að fyrir marga miðaldra menn sé það aðalkikkið að hún skuli
vera dópisti.
Pað þarf ekki að sækja skemmtistaði borgarinnar mikið til
að sannfærast um það að framhjáhald virðist vera regla frekar
en undantekning hjá því gifta fólki sem þá sækir. Yfirleitt
heldur fólk sig þó á mottunni ef makinn er með í för, en ef
eiginkona eða eiginmaður þarf að skreppa til útlanda eða út á
land, er stokkið af stað í leit að spennu. Ung kona sem búin er
að vera fráskilin í tvö ár segist þrisvar hafa stofnað til kynna
við karlmenn sem henni leist á á ákveðnum skemmtistað og í
öllum tilfellum hafi komið í ljós eftir að hún hafði hitt þá í tvö
til þrjú skipti að þeir voru giftir menn, sem leiddist á meðan
konan var í útlöndum. Konur eru ekkert frábrugðnar að þessu
leyti, en annaðhvort eru þær lúmskari eða karlmennirnir sem
þær leggja lag sitt við þagmælskari því slík mál komast mun
sjaldnar í hámæli.
Mörgum finnst tiltölulega saklaust þótt makinn sofi hjá ein-
hverjum öðrum í eitt og eitt skipti, en þó er mun algengara að
fólk brotni saman, finnist sér vera hafnað og leiti orsakanna í
eigin ófullkomleika fremur en makans. Reiðin sem fólk finnur
fyrir beinist yfirleitt ekki að makanum fyrst og fremst heldur
þeim sem hann hefur verið með, sérstaklega hjá konum. Það
er ennþá algeng goðsögn að karlmaður sé varnarlaus gegn
konum sem á hann leita og því ekki við hann að sakast þótt
hann falli fyrir freistingunni. Sumir grípa til þess ráðs að hefna
sín með því að halda framhjá sjálfir og þá er kominn upp víta-
hringur sem oft getur reynst erfitt að rjúfa. Virðingin fyrir
makanum minnkar og oft endar þetta með því að annar hvor
aðilinn verður ástfangin af einhverju viðhaldinu og hjónin
skilja. Á meðan mesti ástarblossinn lifir í nýja sambandinu
leggur fólk allt framhjáhald á hilluna, en svo tekur grámi
hversdagsins við og þá fara augun ósjálfrátt að leita að nýju
viðfangi. . .
SJÖ ÁRA TAUGASPENNA
„Þetta er rosalega erfitt og mikil taugaspenna, en í mínu til-
felli var það þess virði,“ segir rúmlega fertug gift kona sem
nýlega sleit ástarsambandi við giftan mann sem staðið hafði í
sjö ár. „Við byrjuðum að vera saman í ferð sem farin var á
vegum vinnustaðarins og auðvitað stóð ekki til að það yrði
neitt meira. En eftir að við komum heim héldum við áfram að
hittast og þetta þróaðist uppí ástar og vináttusamband sem
stóð í sjö ár. Maðurinn minn er mikið á ferðalögum vegna
vinnunnar og það gerði okkur auðveldara fyrir, því við gátum
hist heima hjá mér. Við elskuðum hvort annað og gerum
kannski enn, en aðstæður okkar eru þannig að það er ekki
hlaupið að því að skilja. Við reyndum auðvitað að leyna
þessu, en það er erfitt að fela neitt í þessu kunningjasamfélagi
og síðustu tvö árin vissi konan hans af þessu. Maðurinn minn
veit held ég ennþá ekki neitt, að minnsta kosti hefur hann
aldrei minnst á það. Börnin mín vissu auðvitað af þessu og
urðu mér mjög reið, en það er bara eitthvað sem maður verð-
ur að taka. Eiginlega var þetta eins og annað hjónaband,
nema hvað við losnuðum við að upplifa alla þessa leiðinlegu
smámuni sem fylgja sambúð. Ég veit að flestir sem vita þetta
eru afskaplega hneykslaðir á okkur, en mér er alveg sama.
Þetta var stóra ástin í mínu lífi og ég sé ekki eftir neinu. Eg
held líka að þrátt fyrir allar þær hörmungar sem það hefði haft
í för með sér hefði hjónaband hans ekki enst svona lengi ef
okkar samband hefði ekki komið til. Konan hans hringdi í mig
fyrir rúmu ári og leitaði ráða hjá mér til að bjarga hjónaband-
inu og ég sagði henni hvað mér fyndist hún gera rangt. Eftir
það hafa þau verið að vinna að því að byggja upp sitt samband
Framhjáhald og
skilnaður
viðskiptajöfursins
Donalds Trump
hafa verið forsíðuefni
erlendra blaða og
tímarita að undanförnu.
Hér er hann með
eiginkonunni Ivönu og
svo ástkonan, fyrirsætan
Marla Maples.
Fjörutíu prósent giftu kvennanna létu
elskhugana koma heim til sín þegar
eiginmaðurinn var ekki heima.
Stolnar stundir
gefa spennu og rómantík sem kannski er ekki lengur til
staðar í hjónabandinu.
HEIMSMYND 29