Heimsmynd - 01.04.1990, Qupperneq 69
Ingileif Bryndís
með börn sín, tengdabörn og barnabörn.
Björn Hallgrímsson
og Sjöfn Kristinsdóttir með börn sín Kristinn,
Áslaugu, Emilíu og Sjöfn.
ans. Börn hans eru Hjörtur Hannesson (f. 1944) deildarstjóri á
Keflavíkurflugvelli, Guðrún Hannesdóttir (f. 1947) félagsfræð-
ingur, gift Vilhjálmi Þ. Kjartanssyni rafmagnsverkfræðingi og
Una Hannesdóttir (f. 1954) flugfreyja, gift Geir Ingimarssyni
flugvirkja.
c) Þorsteinn Þorsteinsson (f. 1920) viðskiptafræðingur, skrif-
stofustjóri hjá Byggingariðjunni sem er nátengd Steypu-
stöðinni og hefur verið að hluta í eigu niðja Hallgríms Bene-
diktssonar. Meðal barna hans er Guðrún Þorsteinsdóttir (f.
1947), gift Friðrik Olgeirssyni kennara og sagnfræðingi.
d) Narfi Þorsteinsson (1922-1989) raffræðingur hjá RARIK.
Meðal barna hans er Guðrún Narfadóttir (f. 1955) líffræðing-
ur.
e) Bryndís Þorsteinsdóttir (f. 1923), gift Helga H. Árnasyni
verkfræðingi, forstjóra Byggingariðjunnar. Börn þeirra eru
Dagný Helgadóttir (f. 1949) þekktur arkitekt í Reykjavík,
Árni Helgason (f. 1952), starfsmaður Veðurstofunnar, Guð-
rún Helgadóttir (f. 1953) líffræðingur og Þorsteinn Helgason
(f. 1958) arkitekt.
4. Sigríður Zoega (1889-1968) ljósmyndari og forstjóri
Ljósprents í Reykjavík var enn ein systir Áslaugar, konu Hall-
gríms Benediktssonar. Hún átti eina dóttur með Jóni Stef-
ánssyni listmálara, einum af stórmeisturum íslenskrar mynd-
listar. Hún er Bryndís Jónsdóttir (f. 1925), kona Snæbjarnar
Jónassonar verkfræðings og vegamálastjóra. Börn þeirra eru
a) Sigríður Snœbjörnsdóttir (f. 1948) hjúkrunarfræðingur,
gift Sigurði Guðmundssyni lækni,
b. Jónas Snæbjörnsson (f. 1951) verkfræðingur hjá Vega-
gerð ríkisins.
c. Herdís Snœbjörnsdóttir (f. 1953) skrifstofumaður hjá
Eimskipafélaginu.
5. Jófríður R. Zoéga (1896-1943).
SAMHENT FJÖLSKYLDA
Börn Áslaugar Zoéga og Hallgríms Benediktssonar voru
þrjú sem upp komust. Þau halda nú utan um ættarveldið sem
ein stór samhent fjölskylda. Eignunum hefur ekki verið skipt
upp heldur er öllu stjórnað með allsherjarsamráði og fjöl-
skyldufundum. Mun það fátítt að slík samheldni haldist í stór-
eignafjölskyldum þegar frumherjarnir eru fallnir frá. Visst lát-
leysi þykir einkenna margt af þessu fólki, það fær ekki orð
fyrir yfirgang og hroka.
Elst barnanna er Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir (f. 1919),
ekkja Gunnars Pálssonar sem lengi var skrifstofustjóri hjá
Fiskimálasjóði. Þó að ekki hafi mikið borið á Ingileifi opin-
berlega í samanburði við bræður hennar þykir hún ekki síst
þeirra systkina. Hún situr í stjórn H. Benediktssonar hf. en
svo heitir fjölskyldufyrirtækið nú. Þá er hún stjórnarformaður
Nóa-Síríusar og situr einnig í stjórn Ræsis og Hreins. Börn
hennar eru:
1. Hallgrímur Gunnarsson (f. 1949) rafmagnsverkfræðingur,
forstjóri Ræsis hf., kvæntur Steinunni H. Jónsdóttur kennara.
2. Páll Gunnarsson (f. 1951) líffræðingur.
3. Gunnar Snorri Gunnarsson (f. 1953) sendifulltrúi í Brús-
sel.
4. Áslaug Gunnarsdóttir (f. 1959) píanókennari, gift Þór
Þorlákssyni hagfræðingi við Landsbankann.
FORSTJÓRINN
Björn Hallgrímsson (f. 1921). Að loknu verslunarskólanámi
og framhaldsnámi í Bandaríkjunum hóf hann störf hjá föður
sínum sem fulltrúi hjá H. Ben. og var jafnframt stjórnarfor-
maður fyrirtækisins frá 1950. Hann var síðan forstjóri Ræsis
hf. á árunum 1952 til 1954 en þegar faðir hans lést 1954 tók
framhatd á bls. 94
Kristinn Björnsson
Börn, tengdabörn
og barnabörn Hallgríms Benediktssonar með
ættmóðurinni Áslaugu á heimilinu á Fjólugötu.
nýráðinn forstjóri Skeljungs og
eiginkona hans Sólveig Pétursdóttir
varaþingmaður Sjálfstæðisflokks.
Emilía Björg Björnsdóttir
yfimaður ljósmyndadeildar
Mnronnhlpftcinc mprS c\/ni cíno