Heimsmynd - 01.04.1990, Page 92

Heimsmynd - 01.04.1990, Page 92
Það er kvartað yfir að leikkonur og söngkonur eldist og þær fá ekki hlut- verk. Leikskáldin hafa hingað til yfirleitt ekki skrifað hlutverk fyrir konur sem ekki eru í kynhlutverki. Og leikhúsið endurspeglar viðhorf þjóðfélagsins. Við verðum að rísa upp og snúa þessu við. Konur halda sinni lífsorku lengur en karlar og við höfum í fullu tré við þá ef við bara gefum okkur í það.“ Það er ekki hægt að tala lengi við Þur- íði án þess að listina beri á góma og kemur fljótt í ljós að hún hefur ýmislegt við listastefnu landsmanna að athuga: „Það eru þessar listaklíkur sem ég var að tala um áðan sem hafa brenglað alla heilbrigða umfjöllun um list í landinu. A mínum yngri árum var fólk oft metið meira eftir pólitískum skoðunum þess en gildi þeirrar listar sem það framdi, en það hefur vonandi eitthvað breyst. Það er fáránlegt að einhverjar klíkur úti í bæ skuli ákveða það fyrir þjóðina hvaða listamenn séu góðir og hverjir ekki og halda öðrum úti í kuldanum. Þetta hefur reyndar ekki bitnað mikið á tónlistar- fólki því það kemur fljótlega í ljós hvort það hefur eitthvað til brunns að bera eða ekki og ekkert hægt að fara í kringum það. Annaðhvort getur þú sungið og spilað eða ekki, það er enginn milliveg- ur. Og svo þessi lagasetning um alla skapaða hluti. Mér finnst óeðlilegt að það skuli bundið í lög hvað Þjóðleikhúsi Islendinga beri að sýna og ef þessi nýju lög um Þjóðleikhúsið ná fram að ganga líst mér ekki á blikuna. Það er menning- arlegt stórslys ef á að úthýsa óperum og listdansi af sviði Þjóðleikhússins.“ Þuríður er alin upp innan um lista- menn frá því að hún man eftir sér og seg- ir mikinn mun á viðhorfi listamanna til sjálfra sín þá og nú: „Þá voru menn tón- listarmenn, skáld eða málarar og ég held að orðið listamaður hafi ekki einu sinni verið til. Að minnsta kosti notuðu þessir menn það ekki um sjálfa sig. Nú eru allir listamenn um leið og þeir skríða út úr skóla og krefjast þess að vera settir skör hærra en venjulegt fólk. Pabbi minn, Páll Isólfsson, fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar á sinni tíð, áleit ekki sjálfan sig yfir aðra hafinn. Hann vissi að listin krefst ástundunar og vinnu og æfði sig á hverjum einasta degi í að minnsta kosti fjóra tíma. Hann taldi sig ekki of góðan til þess að vinna. Og ekki voru launa- kröfurnar miklar. Við bjuggum í leigu- íbúð og vorum svo bláfátæk að það trúir því enginn. Ég er ekki fædd með neina silfurskeið í munninum og það sem ég á í dag er þessi íbúð sem við Örn unnum fyrir hörðum höndum.“ Þrátt fyrir árin sextíu og þrjú geislar Þuríður af lífsorku og lætur engan bilbug á sér finna. „Aldurinn er ekki endilega spurning um ár,“ segir hún og vitnar í viðtal við Kristmann Guðmundsson sem var aldraður spurður að því hvort ekki væri erfitt að verða gamall: „Hann svar- aði því til að honum fyndist hann ekki gamall. Hann hefði öðlast mikla reynslu, líkaminn þreyttist og hrörnaði, en inni í sér væri hann alltaf eins. Þessi flokkun eftir aldri er að verða óþolandi. Það er alltaf verið að flokka fólk í þessu þjóðfé- lagi, sérstaklega konur: Einstæðar mæð- ur, ekkjur, konur í atvinnulífinu og hvað þeir nú heita allir þessir stimplar. Og konur um fimmtugt upplifa það margar að þeirra hlutverki sé lokið, þær séu ekki lengur þarfar í þjóðfélaginu. Samt er það heimsþekkt staðreynd að konur á miðj- um aldri halda uppi menningarlífi þjóð- anna. Þær sækja leikhús, fara á mynd- listarsýningar og tónleika og lesa bækur í meira mæli en aðrir þjóðfélagshópar. En þegar þeir sem menningunni stjórna ætla að notfæra sér þetta með því að höfða til þessa hóps ætlar allt vitlaust að verða. Það er sláandi dæmi að þegar bókaútgef- endur fóru að gera sér grein fyrir því að konur eru miklu stærri lesendahópur en karlar og ævisögur kvenna fóru að streyma á markaðinn þá urðu ævisögur allt í einu svo óskaplega ómerkilegar bókmenntir. Enginn hafði minnst á slíkt á meðan ævisögur karla voru einar á markaðnum. En þjóðfélagið er allt að breytast. Fólk verður almennt eldra og heldur heilsu og útliti langt fram eftir aldri. Það er langt bil á milli fimmtugs og sextíu og sjö ára aldurs og þá er fólk yfirleitt enn- þá í fullu fjöri og á skilið að njóta þess æviskeiðs ekki síður en annarra. í Bandaríkjunum og víðar er eldra fólk með öflug baráttusamtök, sem hafa það að markmiði að standa vörð um réttindi sín og auka áhrif aldraðra. Ég tel ekki ólíklegt að hérlendis verði slík samtök með sterk ítök og áhrif fyrr en margan grunar.“D Grasið er..._______________________ framhald af bls. 33 auðvitað getur hann ekki skilið við hana á meðan hún er ófrísk eða nýbúin að eignast barn.“ Vinkonur hennar skilja ekkert í henni að láta fara svona með sig og sjálf segist hún margoft hafa tekið þá ákvörðun að nú væri þessu lokið. Hún hefur reynt að vera með öðrum mönnum en segist ekki fá neitt út úr því, hann sé sá eini sem hún vilji: „Það sem við eigum saman, þótt lítið sé og stolið, er það stórkostleg- asta sem ég hef upplifað. Hann er ofsa- lega blíður, rómantískur og skemmtileg- ur og aðrir menn eru bæði leiðinlegir og ljótir í samanburði við hann. Auðvitað er þetta oft erfitt og oft hef ég reiðst al- veg heiftarlega við hann. Við sækjum sama skemmtistaðinn og ég hef nokkr- um sinnum hitt hann þar með konunni sinni. Þá þekkir hann mig ekki og það er ólýsanlega niðurlægjandi tilfinning að standa við hliðina á honum við barinn og láta hann horfa beint í gegnum sig. Allt- af þegar ég lendi í þeirri aðstöðu verð ég vond og ákveð að nú sé þessu endanlega lokið, en svo hringir hann eða kemur og biður mig fyrirgefningar og ég bráðna alltaf. Sjálfsvirðing mín er farin fyrir lítið og ég er hætt að ímynda mér að ég geti hrist þetta af mér. Ég bara lifi fyrir þess- ar stolnu stundir og þótt ég hafi hræði- legt samviskubit gagnvart konunni hans og börnunum held ég ennþá í vonina um að hann komi alveg til mín.“ VILL HVORUGA MISSA Þrjátíu og níu ára gamall maður hefur unnið á sama vinnustað í fimmtán ár. Hann er búinn að vera giftur sömu kon- unni í sjö ár en þar á undan var hann giftur annarri og á með henni tvö börn. Seinni konan hans á eitt barn, en saman eiga þau ekkert. Hann var tiltölulega sáttur við lífið og ekki í leit að neinum ævintýrum daginn þann fyrir einu og hálfu ári sem ung stúlka, tuttugu og tveggja ára gömul, byrjaði að vinna með honum. En þá fóru hjólin að snúast. „Þetta byrjaði allt með því að ég var að setja hana inn í vinnuna," segir hann, „mér datt ekki ástarsamband í hug og ekki henni heldur. En eftir nokkra mán- uði var komið eitthvert band á milli okk- ar sem hvorugt okkar kunni að skil- greina. Við fórum að fara saman á bar eftir vinnu og töluðum óskaplega mikið saman um alla skapaða hluti. Hún leit upp til mín og fannst ég voðalega lífs- reyndur og ég býst við að ég hafi gengist upp í því. Konan mín er mjög sjálfstæð og hefur ákveðnar skoðanir, sem ég kann vel að meta, en það er líka gott að finna til þess stundum að einhver líti upp til manns. Eitt kvöldið eftir vinnu fórum við heim til hennar og fengum okkur í glas og enduðum með því að sofa saman. Það var ekkert planað, fylgdi bara eðli- lega í kjölfar þess sambands sem við höfðum þróað. Ég hafði til að byrja með óskaplegt samviskubit, bæði gagnvart konunni minni og henni, fannst þetta rangt gagnvart þeim báðum, en einhvern veginn fór þó svo að þetta hélt áfram. Og nú er svo komið að ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Ég elska þær báðar, hvora á sinn hátt og það samband sem ég hef við hvora þeirra um sig er mjög ólíkt. Dóttir konunnar minnar er orðin táningur og við erum mjög frjáls, getum leyft okkur margt sem við gátum ekki áður. Við förum saman í leikhús og á tónleika og getum rætt mikið saman um svoleiðis hluti. Við erum miklir fé- lagar og þótt mesti ástarneistinn sé kann- ski farinn úr sambandinu þykir okkur mjög vænt hvoru um annað. Ég ber mikla virðingu fyrir henni bæði sem konu og manneskju og get alls ekki hugsað mér að missa hana. En mér finnst hún ekki þurfa á mér að halda eins og hin. Hún er svo ung og óviss um sjálfa sig og leitar mikið til mín eftir stuðningi og ráðum og það finnst mér gott. Kynlíf- ið er ekkert aðalatriði, þótt það sé auð- vitað með í dæminu og ég held ekki að karlmenn sem eru með yngri konum séu að leita eftir fjörugra kynlífi fyrst og fremst. Hún bara veitir mér staðfestingu á því að ég sé sterkari aðilinn og ég hef mikla verndarhvöt gagnvart henni. 92 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.