Heimsmynd - 01.07.1990, Blaðsíða 99
JOHN HARRIS / IMPACT VISUALS
A special section
on global affairs prepared for
Heimsmynd
Átök um skatta í Bretlandi og Japan.
Eftir SeRGIO SaRMIENTO í Mexíkóborg, Mexíkó
Mexíkóskt dagblað gerði dæmi konunnar að sérstöku umfjöllunarefni, en
hún seldi happdrættismiða sér til lífsframfæris. Eins og flestir Mexíkómenn
hafði hún um árabil starfað utan hins opinbera efnahagskerfis. En í fyrra
gengu nýjar skattareglur í gildi, sem sérstaklega var ætlað að knýja fram
greiðslu ótaldra milljóna frá íbúum, sem aldrei áður höfðu greitt skatta.
Samfara nýju reglunum var efnt til víðtækrar herferðar til áminningar
borgurunum um fjárhagslegar skyldur þeirra gagnvart samfélaginu - og um
þau viðurlög sem við skattsvikum lægju. Ýmsar vel þekktar persónur, eins
og rokkstjarnan Angel Bruzzuela, gistu fangelsi fyrir skattsvikaákærur.
Kona við aldur, sennilega
nokkuð yfir sjötugt, í
ódýrum kjólgopa, virtist
miður sín þegar hún gekk inn í
húsakynni Fjármálaskrifstofunnar,
gjaldheimtu þeirra Mexíkómanna.
Hún stóð í biðröð í hálftíma
áður en hún komst að
afgreiðsluglugganum og náði tali af
gjaldkeranum. Par var henni sagt
að fara að öðrum glugga og svo að
öðrum og enn öðrum. Um það
leyti sem fréttamaður dagblaðs
nokkurs kom auga á hana sat hún
flötum beinum á gólfinu, gráti nær.
„Eg vil ekki fara í tukthúsið,“
sagði hún, „Eg vil borga mína
skatta, en ég veit ekki hvar á að
byrja.“
Skattar:
að borga eða
ekki borga
HEIMSMYND 99