Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 50
YÆMNAR, RISPAÐAR,
OFSPUAÐAR KARLAHELLINGAR
„Farðu út og fáðu þér eplakinnar. Segja þær og mörg konubönk á
bossann minn og í bakið, mörg mörg konubönk.
Farðu nú út góða. Ut með þig.
Mörg lauflétt konubönk á allt bakið útum allt.
Uss. Sussususs. Fuss. Og út núna. Segja þær.
Frussutussur og flösukussur. Hugsa ég og skríð undan borðinu.“
Lítil stelpa í sögunni
Margar konur eftir Kristinu Ómarsdóttur.
„Jóna: Æ, góða dinglaðu þér
þú ert farin að hringja í hann
sífrandi og suðandi
það eina sem þið þráið þessar gellur
er að vera lamdar að þvottabrettunum aftur
og þú dauðhlakkar til að láta hann nauðga þér“
Úr ljóðabók Ninu Bjarkar Arnadóttur,
Svartur hestur í myrkrinu.
DAR fannst standa upp úr á blað. Karlarnir sem einnig voru beðnir
um að tilnefna tíu konur sem þeim fannst standa upp úr í þjóðfélag-
inu voru meira samhljóma í áliti sínu hvað varðaði efstu sætin, þar
tróndu ungar fallegar konur í öllum tilfellum, fegurðardrottningar og
fyrirsætur þó svo að þeim væri gerð rækileg grein fyrir því að ekki
væri um fegurðarsamkeppni að ræða.B
„...í húsi því þar sem hún átti heima í kjallara og í vondri kompu
sem áður var kolakompa og mátti sjá móta fyrir kolum, bjó uppi á
háalofti trúuð kona með sjal, og mætti ætla að Tötru þessu dáindi til-
verunnar sem Tötra er (því hún lifir enn) hafi staðið á sama um svo-
leiðis kvennaval, en svo var ekki, og nú skuluð þér heyra:“
Úr sögunni Frumástir Tötru eíitir Málfríði Einarsdóttur.
Ljósmyndir úr samkvamislíjinu _
HEIMS 50 MYND
Um daginn sat ég úti í glugga og hlustaði á tónlist og horfði á fólk-
ið í götunni ganga framhjá. Það kom mér á óvart að sjá sömu konun-
um bregða fyrir æ ofan í æ, og þegar
þetta endurtók sig í sífellu fór ég að
setja þetta í samband við tónlistina sem
ég spilaði. Eg flýtti mér að rífa plötuna
af fóninum og pakka henni ásamt öðr-
um væmnum, rispuðum, ofspiluðum
plötum ofan í kassa. Það var fjarri mér
að hafa konur á öllum aldri, með
barnavagna og annað hafurtask mars-
erandi framhjá glugganum mínum
nema þá helst til að stefna þeim út í
orrustu. Ég setti þess í stað Rapparann
Ice T á fóninn, hækkaði í botn og sá í
iljarnar á öllum kellingunum burt úr
götunni og skömmu seinna stillti sér
upp unglingagengi á gangstéttinni og
stóð þar íbyggið og púaði sígarettur í
óða önn. Ég fór þá að hugsa sem svo
undir áhrifum Esquiere hvort gömlu
lögin hefðu verið sungin af konukon-
um eða karlakonum og fann fljótlega
út að það væru hinar síðarnefndu.
Enda voru textarnir ámátlegt ákall til
karlþjóðarinnar um ásjá með róman-
tísku gítarívafi.
Hvaða íslenskar konur skyldu vera
konukonur og hverjar karlakonur. HEIMSMYND leitaði álits sextíu
aðila jafnmargra kvenna og karla. Konurnar tilnefndu allt í allt mjög
mörg nöfn kvenna sem þeim fundust athyglisverðar og komust aðeins
fáeinar þeirra kvenna sem kvenkyns viðmælendum HEIMSMYN-
„Klukkan átta að morgni þyrptist út í norðangarrann hópur lítilla
kellinga, sæmilegar eftirlíkingar af Kim Novak og stöllum þeirra.
Eini munurinn var sá að þær sáust trítla um í þessum lögboðna
skrúða undir kalifornískum pálmum. Við klöngruðumst yfir skafla og
íshellur undir íslenskum grýlukertum.“
Auður í Hvunndagshetju Auðar Haralds.