Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 27
Sögur af meintu símtali Diönu og James Gilbey hafa sett allt á annan endann í Bretlandi. Gilbey
sem er góðvinur Díönu ku hafa mikið aðdráttarafl á konur og því svo sem ekkert skrýtið þó Diana
félli fyrir honum. [ símtalinu tjá þau hvort öðru ást sína og segir hún ástandið óbærilegt án hans.
Hann hvetur hana til þess að bíta á jaxlinn og bera höfuðið hátt. Það var breska slúðurblaðið Sun
sem birti símtalið. Og hringdu þúsundir Breta í ákveðið símanúmer til þess að fá að hlusta.
titrar
egar brúðkaup aldarinnar fór fram í
júlí 1981 stóð heimurinn á öndinni.
Ævintýri eins og þau gerast best var í
gangi, prinsinn og ríkiserfmginn gekk að
eiga feimnu, hlédrægu stúlkuna, sem síðar
átti eftir að vinna hug og hjörtu alheimsins,
hvort sem var fyrir persónutöfra sína eða við-
leitni til hjálpar sjúkum og bágstöddum.
Hann, Karl, var prinsinn af Wales og hún,
lafði Díana Spencer, varð prinsessan af Wa-
les og þar með væntanleg drottning Breta.
Þau eignuðust tvo syni, William 1982,
væntanlegan kóng, og Harry 1984. Kjarna-
fjölskyldan fullkomnuð og þar með áttu þau
að lifa hamingjusöm upp frá því. En ekki fór
allt eins og það átti að fara.
Díana sem hafði hreppt eftirsóttasta pip-
arsvein í heimi naut ekki ástar og athygli eig-
inmannsins og mun hún hafa þjáðst af
Fergie á frönsku rívíerunni með dætrunum
tveim Beatrice og Eugenuie og síðast en ekki
síst fjármálaráðgjafa sínum John Bryan. Hún
er flóttaleg á myndinni þegar hún uppgötvar
að Ijósmyndari hefur fest samband hennar og
ráðgjafans á filmu.
óhamingju allt frá því skömmu eftir trúlofun
þeirra í febrúar 1981, þá nítján ára að aldri.
Frá þessu og mörgum öðrum hamingju-
snauðum árum í lífi íbúanna í Buckingham-
höll greinir breski blaðamaðurinn Andrew
Morton í bók sinni „Díana - Sönn saga“
(Díana, Her Tme Story) sem kom út fyrr á
þessu ári. Bókin varð strax metsölubók í
Bretlandi og í Bandaríkjunum og valdir kafl-
ar hafa verið birtir í London Sunday Times. í
bókinni ljóstrar Morton upp málum sem
þykja áfall fyrir bresku konungsfjölskylduna.
Hann segir frá vinfengi Karl við aðra konu,
fimm misheppnuðum tilraunum Diönu til
þess að svipta sig lífi, veikindum hennar sem
tengjast ofáti og lystarstoli (bulimia) og
óhamingju hennar í konungsfjölskyldunni.
Vangaveltur um hjónaband Karls og
Diönu hafa lengi verið uppi þó svo fáa grun-
aði að ástandið væri jafn slæmt og Morton
talar um í bók sinni. Þau sjást sjaldan saman
og gegna sjaldan sameiginlega opinberum
skyldustörfum. A meðan hún fer ein í opin-
berar heimsóknir eins og fyrr á þessu ári til
Egyptalands fór hann einn til Tyrklands
með teikniblokkina. Það er oft á tíðum eins
og dagskrá þeirra sem tengist opinberum at-
höfnum sé sniðin þannig að þau þurfi ekki
að hittast. Díana er geysilega vinsæl meðal
þjóðarinnar og Bretar vilja fá hana fyrir
drottningu. Hvar sem hún er og fer fyllast
götur og torg og þá sjaldan að þau hjónakorn
eru saman á ferð þá kvarta vegfarendur sem
standa þeim megin götunnar sem Karl geng-
ur. Því auðvitað vilja allir sjá Di.
Bók Mortons hefur valdið miklu
fjaðrafoki jafnt í Bretlandi sem annars stað-
ar. Sérfræðingar í málefnum konungsfjöl-
HEIMS
27
MYND