Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 94
vala matt
(framhald afrbls. 41) fannst. Öll sköpun og allar nýjungar kalla á
viðbrögð. Og afhverju leyfist fólki ekki að vera einlægt og opið?
Það er allt skárra en þetta leiðinda harðlífi sem einkennir umræð-
una hér og birtist í neikvæðni og dómhörku. Af hverju getum við
ekki sýnt umburðarlyndi. Eg var alin upp í því að dæma ekki fólk.
Okkur var sagt að það væri eins og að kasta steini úr glerhúsi. Það
hefur enginn efni á því að dæma aðra.“
Á borðinu fyrir framan hana liggur vikurit með forsíðumynd af
Woody Allen og stjúpdóttur Miu, sem hann elskar. Hún sýnir
fram á þetta með steininn og glerhúsið þegar hún segist hafa sam-
úð með Woody þótt margir Bandaríkjamenn tali um næstum sifja-
spell í því sambandi. Völu fmnst Woody yndislegur og það hvarfl-
ar ekki annað að henni en að Woody sé að fylgja hjarta sínu því
maður ráði ekki af hverjum maður hrífist. „Unga fólkið er miklu
frjálslegra og opnara en eldri kynslóðirnar,“ segir hún og vísar máli
sínu til stuðnings í einkadótturina Tinnu, sem er að hefja nám í
Verslunarskólanum og Sólveigu Jónsdóttur, sem er tvítug.
„Eg vona að enginn haldi að ég sé beisk. Mér finnst ég betri
manneskja þegar upp er staðið. Ævintýrið og endalokin með Stöð
2 eru engin meiriháttar vonbrigði heldur aðeins kaflaskipti.“
En það er önnur Vala sem blasir við henni ef hún horfir á gamla
upptöku á Stöð 2. „Eg sakna þeirrar glaðværðar og kátínu sem ég
fann svo sterkt til þá. Eg hef þroskast mikið á þessu tímabili og skil
sjálfa mig á allt annan hátt en áður. Auðvitað hafa komið tímabil
þar sem ég var mjög langt niðri, sérstaklega í tengslum við þetta til-
finningasamband. Nú er ég aftur á móti raunverulega sterk í þeim
skilningi að ég þori að koma til dyranna eins og ég er klædd. Á
tímabili var ég farin að efast um eigið ágæti. Eg reyndi meira að
segja að breyta mér í útsendingu, setti á mig dempara og reyndi að
líkja eftir yfirveguðum og alvarlegum fréttakonunum. En ég gafst
fljótlega upp á því og reyndi það aldrei aftur eftir að Ómar Ragn-
arsson kom til mín ogsagði: Vala, ég er búinn að ganga í gegnum
þetta sama ogþú. Reyndu ekki að breyta þér. Vertu þú sjálfr'
Hún segist hafa lært heilmikið á stuttum tíma. „Þegar maður
lendir í krísu fær maður hraðkennslu í þroska og lærir ótrúlega
mikið á skömmum tíma. Eg leyfi mér núorðið að sýna á mér
veiku hliðarnar og burðast ekki lengur við að brynja mig út á við.
Allt frá unga aldri var ég upptekin við að vera sterk og í björgunar-
hlutverki.“
Hún tekur upp lítinn plastpoka sem virðist þjóna því hlutverki
að vera snyrtibudda, setur á sig bleikan varalit eins og henni einni
er lagið, hlær að gagnrýninni sem hún fær fyrir að vera með of klís-
traðan maskara á augnhárunum. „Af því að ég hef áhuga á að líta
vel út hafa margir verið gagnrýnir og smámunasamir í sambandi
við útlit mitt, sérstaklega þegar ég var í sjónvarpinu. Fólk hneyksl-
aðist á skærum litasamsetningum og hárgreiðslunni sem passaði
ekki inn í þá tísku sem var. Sem hönnuður nýt ég þess að horfa á
fallega hluti og ég þekki engan arkitekt sem spáir ekki í það í hverju
hann er. Það á illa við mig að vera sett á bás og fylgja hjörðinni.
Stundum finnst mér þetta samfélag svo lítið að ég er að kafna. Þá
brýst fram í mér andóf og ég reyni að synda gegn straumnum. Mér
ofbýður sá materíalismi sem tröllríður nútímanum. Mér finnst við
öll gegnsýrð af ofneyslu og efnishyggju. Við höfum gengið á um-
hverfi okkar og náttúru. Óttinn við umhverfismengunina er álíka
mikill og kjarnorkuváin var fyrir tíu árum. Hin gegndarlausa efn-
ishyggja sem hefur gegnsýrt vestræna menningu hefur leitt til kol-
brenglaðs gildismats. Ég tek ofan fyrir fólki eins og Paul MacCart-
ney og Lindu konunni hans. Þessi auðugi og heimsfrægi maður
hefur kosið fábreyttan lífsstíl. Þau búa í litlu þorpi og rækta sjálf
sitt grænmeti. Sjálf kysi ég að lifa í þessum dúr. I rauninni á ég mér
draum. Hann er sá að setja upp veitingahús í framtíðinni alveg eft-
ir mínu höfði. Ég er meira að segja farin að safna hugmyndum í
stóra möppu ..." Hún rótar í stórum, svörtum plastpoka merkt-
um Pelsinum en hann virðist þjóna hlutverki hliðartösku, grefur
upp möppuna og í leiðinni lítið Gtrtíír-ilmvatnsglas, skvettir á sig
nokkrum dropum og hverfur á vit framtíðardraumanna.B
RAÐSTEFNUHOTEL
- með áratuga reynslu af alþjóðlegu ráðstefnuhaldi
í boði eru 14 funda- og ráðstefnusalir,
búnir öllum tækjum sem nauðsynleg
eru fyrir fundi og ráðstefnur:
Myndvarpar, myndbandstæki með
risaskjá, vídeótökuvélar,
litskyggnuvélar, kvikmyndavélar,
segulbandstæki, magnarakerfi, túlka-
kerfi, telex, telefax, ljósritunarvélar og
flettitöflur svo nokkuð sé nefnt.
Auk fullkominnar veitingaþjónustu
býður Hótel Loftleiðir fjölbreytta heilsu-
og líkamsræktaraðstöðu og 1. flokks
gistirými sem nýlega hefur verið
endurbætt í hólf og gólf.
FLUGLEIDIR
«
SIMl 91-22322 ■ FAX 91-25320