Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 20
tæki sem annars vegar búa yfir sérþekkingu sem íslenskt hagkerfi er
ríkara af en önnur hagkerfi og hins vegar fyrirtæki á sviði innflutnings
eða þróunar nýrrar framleiðslutækni. Niðurstaðan er fyrirtæki annars
vegar á sviði sjávarútvegs og hins vegar á sviði hátækni, einkum líf- og
tölvutækni. Nýsköpunarvænlegri fyrirtækjatengsl má finna með því að
kanna tengsl sjávarútvegsfyrirtækja og fyrirtækja í eftirtöldum at-
vinnugreinum: rafmagnsvöru- og tækjagerð og viðgerð (370), smíði
og viðgerð vísinda- og mælitækja (391), tölvuþjónustu, forritun og
hugbúnaðarstarfsemi (atvinnugrein númer 848), málmsmíði, málm-
vörugerð og vélsmiðjur (350), skipasmíði og viðgerðir (381), kaðla-,
línu-, færa-, tauma- og netagerð (233) og loks sápugerð, lyfjagerð,
kemísk framleiðsla (319).
I atvinnugreinum 370 og 391 eru aðeins tvö fyrirtæki í rannsókn-
inni, það er D.N.G. og Marel. Marel hefur fleiri tengingar en D.N.G.
Fyrirtækið Marel tengist fyrirtækjunum D.N.G., GKS, Hagvirki,
Miklagarði hf. Samskipum, Sjóvá-Almennum tryggingum og Smjör-
líki. Ekkert þessara fyrirtækja er sjávarútvegsfyrirtæki. D.N.G. hefur
aðeins eina tengingu við sjávarútvegsfyrirtæki þar sem það tengist fisk-
vinnslugeiranum gegnum Granda.
ÁJramhaldandi stöðnun
Niðurstaðan af vangaveltunum hér að ofan um framtíð íslensks
efnahagslífs er því að efnahagsþróunin muni öðru fremur byggjast á
aukinni frystitogara- og djúphafstogaravæðingu. Sú þróun mun að
öllu óbreyttu leiða til vaxandi samfélagslegra átaka. Um leið og fisk-
vinnslan flyst í auknum mæli út á sjó með aukinni sjálfvirkni í vinnslu
fisks eykst atvinnuleysi verulega I sjávarútvegi. Ofan á þennan vanda
bætist að árlega koma 3.000 nýir einstaklingar inn á markaðinn, en á
undanförnum árum hefur störfum fækkað. Vanþróun nýsköpunar-
kerfisins verður til þess að flótti menntafólks úr landi verður viðvar-
andi, en hann er þegar hafinn. Aðild að EES mun skipta miklu máli
fyrir þetta fólk. Hins vegar mun EES-aðild skipta litlu máli fyrir ís-
lenskan iðnað því samkeppnishæfni hans er lítil samanborið við iðnað
nágrannalandanna, sem byggir á öflugum nýsköpunarkerfum.H
í atvinnugrein 350 eru fjögur
fyrirtæki í úrtaki rannsóknarinnar.
Þrjú þeirra tengjast sjávarútvegsfyr-
irtækjum I gegnum aðalstjórnir
þeirra. Þannig tengist Oddi véla-
smiðja Útgerðarfélagi Akureyringa
og Otgerðarfélagi Dalvíkinga. Vél-
smiðja Hornafjarðar tengist út-
gerðarfyrirtækjunum Borgey,
Eskey og Samstöðu. Auk þess teng-
ist hún Kaupfélagi Austur-Skaft-
fellinga sem rekur útgerð og fisk-
vinnslu auk verslunar. Ofnasmiðj-
an tengist fiskvinnslunni Sjófangi.
Fyrirtækið Alpan tengist ekki sjáv-
arútvegsfyrirtækjum með sama
hætti og ofangreindar vélsmiðjur.
Af þremur úrtaksfyrirtækjum í
skipasmíðum og viðgerðum tengist
aðeins eitt aðalstjórnum sjávarút-
vegsfyrirtækja, það er Slippstöðin,
sem tengist fiskvinnslunni Blika og
Otgerðarfélagi Dalvíkinga.
Hampiðjan og Nótastöðin eru
einu úrtaksfyrirtækin í kaðla-
línu-, færa-, tauma- og netagerð. Al
þessum tveimur tengist aðeins
Nótastöðin sjávarútvegsfyrirtæki í
gegnum aðalstjórnir fyrirtækja, það
er fiskvinnslunni Haraldi Böðvars-
syni og Co.
Engin tengsl eru milli aðal-
stjórna fyrirtækja í sápugerð, lyfja-
gerð, kemískri framleiðslu og sjáv-
arútvegi.
Af þessari upptalningu má
draga þá ályktun að nýsköpunarnet
fyrirtækja á Islandi þurfi að b;
upp nánast frá grunni.
Fjölstjórnamenn með yfirráð yfir 100 eða fleiri ársverkum.
Einstaklingur Arsverk í Fjöldi
úrtaks- fyrirttekja
fyrirttekjum
Guðjón B. Ólafsson 181135-3019, Laugarásvegi 20 366,7 8
Indriði Pálsson 4521-2882, Safamýri 16 362,5 5
Halldór H. Jónsson 3589-0718, Ægisíðu 88 331,3 4
Benedikt Sveinsson 310738-3879, Lindarflöt 51 274,4 4
Árni Vilhjálmsson 110532-3509, Hlyngerði 10 214,7 6
Thor Ó. Thors, Lágafelli, Mosfellssv. 199,1 3
Þorvaldur Guðmundsson 091211-4759, Háuhlíð 12 171,5 3
Einar Sveinsson 030448-2789, Bakkaflöt 10 168,4 3
Haraldur Gíslason 250242-3899, Birkihlíð 22 159,9 6
Brynjólfur Bjarnason 180746-3909, Bakkagerði 17 156,5 5
Sigurður Gils Björgvinsson 231143-5649, Keilufelli 22 153,9 3
Haraldur Sumarliðason 020737-2719 150,0 2
Kristján Ragnarsson 220638-4649, Seljugerði 7 108 148,1 3
Gunnar J. Friðriksson 120521-3499, Snekkjuvogi 13 146,7 5
Magnús Gauti Gautason 080850-2989, Suðurbyggð 27 144,3 6
Ásmundur Stefánsson Njörvasundi 38 140,7 2
Hörður Sigurgestsson Skeljatanga 1 140,5 3
Jón Ingvarsson Skildinganesi 38 139,4 2
Grétar B. Kristjánsson 150937-2569, Tungubakka 4 135,8 2
Jóhannes Sigvaldason 260836-2699, Hrafnagilsstræti 22 130,0 2
Hjalti Geir Kristjánsson 4179-5743, Bergstaðastræti 70 128,4 4
Gunnar Sverrir Ragnars 250438-4359, Eikarlundi 26 116,2 3
Jóhann G. Bergþórsson 121243-2299, Vesturvangi 5 113,3 4
Jóhann Óli Guðmundsson 020954-5829, Brekkugerði 6 113,1 2
Sigurður Jóhannesson 021031-2169, Hjarðarlundi 1 109,5 5
Sigurður Markússon 160929-3599, Kjalarlandi 19 108 108,8 3
Valgerður Sverrisdóttir 230350-4939, Lómatjörn 107,3 3
Þórarinn Sigurjónsson 260723-5459, Laugardæium 1 104,0 3
Ragnar Stefán Halldórsson 010929-, Laugarásvegi 12 103,9 2
Þröstur Ólafsson 041039-3109, Bræðraborgarstíg 21B 100,2 3
Arsverk hvers einstaklings eru mœld þannig að upp í fljölda ársverka einstakra fyrirtrekja, sem
þeir eru stjómarmenn í, er deilt með fjölda stjómamianna. Stðan eru þau ársverk sem hverjum
þeirra tilheyra í öllum fyrirtiekjum þeirra lögð saman. Miðað er vt 'ð fyrirtteki sem em 15 ársverk
eða stterri.
HEIMS
20
MYND