Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 28
reska
krúnan
titrar
skyldunnar og í málefnum kóngafólks al-
mennt hafa haft í nógu að snúast við að skil-
greina, útskýra og velta sér upp úr orsök og
afleiðingum hjónabandserfiðleika konungs-
fjölskyldunnar. Og fólkið fær seint nóg. I
Astralíu hringja þúsundir forvitinna manna í
sérstakt símanúmer sem gefur nýjustu fréttir
af hjónabandsmálum konungsfjölskyldunn-
ar eins og um væri að ræða úrslit í mikilvæg-
um kosningum eða fótbohaleik. Og mildð
er rætt um stigann á sveitasetri fjölskyldunn-
ar í Sandringham þar sem sagt er að Díana
hafi kastað sér niður þegar hún var á þriðja
mánuði meðgöngu eldri sonar síns William
1982. Hér er sem sagt komið nýtt aðdráttar-
afl við hlið Tower of London til þess að laða
erlenda ferðamenn til Bretlands. Það má því
með sanni segja að prinsinn og prinsessan í
ævintýrinu sem hófst svo fallega hafi lifað í
ansi stormasömu ævintýri og hver veit nema
ævintýrið sé úti. Morton heldur því fram að
Díana hafi lengi haft fyrirboða um það að
Opinberlega hjón: Karl og Díana á leið í
Whitehall 1991. Upphaflega stóð til að Díana
kæmi ein en rétt áður ákvað Karl að fara með
og virðist það koma flatt upp á skipuleggj-
endur. Þetta var í kjölfarið á miklum vangavelt-
um um hjónaband þeirra og líklega hefur Karli
þótt við hæfi að láta sjá sig með eiginkonunni.
Fergie sem fyrr á þessu ári sleit samvistir við eiginmanninn Andrew var fljót að ná sér í nýjan. Með
háttalagi sínu þykir Fergie hafa beðið mikinn álitshnekki þó svo Bretar hafi aldrei komist að
neinni niðurstöðu hvað þeim ætti að finnast um hana. Fyrst var hún of feit og púkaleg svo varð hún
alltof mjó og eyddi allt of miklu í föt eða hárið var of sítt eða stutt. Hún var alltaf í skugga Di.
hún eigi aldrei eftir að verða drottning og
stuttu eftir útkomu bókarinnar er hún heim-
sótti spítala í Merseyside brast hún í grát
þegar hún fann fyrir samúð fólksins og varð
að aðstoða hana aftur inn í bílinn. Nokkuð
sem ekki hafði komið fyrir hana áður.
Það sem rennir fyrst og fremst stoðum
undir sannleiksgildi bókar Mortons eru til-
vitnanir í nokkra af nánustu vinum Diönu
sem flestir eru nafngreindir. Vinir sem fram
til þessa höfðu neitað að svara blaðamönn-
um spurningum sem tengdust Diönu og
konungsfjölskyldunni. „Prinsessan hefur
augsýnilega veitt þeim leyfi til þess að tala
við Morton og jafnvel stungið upp á því við
þá,“ segir Ingrid Seward ritstjóri Majesty
magazine sem er tímarit hliðhollt konungs-
fjölskyldunni. Góðvinur Diönu, James Gil-
bey, erfingi ginauðæfanna, segir til dæmis frá
tilraunum hennar til þess að svipta sig lífi.
Hann segir tilraunirnar í sjálfu sér kannski
ekki hafa verið mjög hættulegar en prinsess-
an hafi fyrst og fremst verið að kalla á hjálp
og athygli eiginmannsins. Og það er vin-
kona Diönu, Carolyn Bartholomew, sem
segir frá veikindum hennar sem tengjast of-
áti og lystarstoli (bulimia). Stuttu eftir út-
komu bókar Mortons sást Díana koma frá
áðurnefndri vinkonu sinni með grátbólgin
augu en hún heldur sambandi við alla þá
vini sína sem vitnað er í í bókinni. Það er
samt erfitt að ímynda sér að jafn glæsileg
kona og Díana er, skólabókardæmi um heil-
brigt og gott útlit, sé haldin næringarsjúk-
dómi á borð við bulimia. Vinir hennar halda
því fram að hún hugsi mikið um mat og geti
hæglega sporðrennt heilli eplaköku sem fer
svo líklega sömu leið til baka.
Skilnaður Karls og Diönu yrði stærsta
áfall konungdæmisins síðan 1936 þegar Ed-
HEIMS
28
MYND