Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 49
veiða innan sinna eigin ...marka,“ segir FBI-lögreglukonan sem leik-
konan Jodie Foster túlkar í myndinni Lömbin þagna og það sama á
við um konur. Það er því ekki óhugsandi að þegar kona segist treysta
annarri konu sé hún í raun að segja að metnaður þeirra skarist ekki,
eða einfaldlega það að hún sé yfir það hafm að óttast samkeppni frá
henni.
RONURONUR OG RARLARONUR
I grein í tímaritinu Esquire um þetta sama efni veltir Elizabeth
Kaye upp þeirri feminísku hugmynd að til séu fyrirbærin konukonur
og karlakonur. Hún segir kvengerðirnar skýra sig svo til sjálfar þar
sem konur stjórnist af eigin hagsmunum fyrst og fremst, hversu tak-
markaður sem skilningur þeirra sjálfra á fyrirbærinu kann að vera.
Konukonur sækja styrk sinn til annarra kvenna meðan karlakonur
sem gefa þó oft af sér ímynd sjálfstæðis sækja styrk sinn til karla.
„Karlakonur eru ekki þær fornminjar sem hægt væri að ímynda sér,“
segir Kaye meðal annars í grein sinni. Hún tiltekur fjórar gerðir slíkra
kvenna: Konur sem óttast að taka ábyrgð á sjálfum sér (og Colette
Dowling gerði ódauðlegar í bók sinni Oskubuskuáráttan); Uppstopp-
aðar eiginkonur sem halla
sér að vandlátu viðhorfi
fyrrverandi feminista sem
er: slípaður demantur varir
að eilífu. Menntakonur á
framabraut sem í hjarta sínu
hafa undirritað yfirlýsingu
þess efnis að velgengni sé
einskis virði ef það sé eng-
inn til að deila henni með;
síðast en ekki síst eru það
konurnar sem enn hafa ekki
losað sig við yfirþyrmandi
viðhorf föðurins. Þessar
konur eru alls staðar úti í
þjóðfélaginu og ein þeirra
gæti verið dragtarklædda
konan sem þú sást í Hag-
kaupum í gær; hún var í
óðaönn að troða fjölskyldu-
stærð af klósettpappír í körf-
una hjá sér og hélt ungbarni
í uppréttri stöðu til að kom-
ast hjá því að það slefaði í
Cartiersilkiblússuna. Þörf
þeirra fyrir hækjur í karl-
mannslíki auðveldar í senn
tilveru þeirra og hún lætur
þær falla auðveldlega í gildr-
ur sem taka á sig hinar ólík-
ustu myndir en meðal þeirra
má líta hvorttveggja örlög
Emmu Bovary og Ivönu
Trump.
Sumar konur dæma sig
sjálfkrafa úr leik, þær konur
eru hvorki sérlega metnað-
argjarnar, afbrýðisamar eða smart. Þessar konur gifta sig ungar og
velja sér heiðarlegt ævistarf, til dæmis kennslu, bókasafnsfræði eða
meðferðarstörf. Slíkar konur ógna engum, krefjast lítillar athygli og
uppskera hana í samræmi við það. Þær kjósa helst að afþakka sam-
kvæmi ef þeim stendur það til boða, en mæti þær eru þær feimnar og
óframfærnar.
„Þetta eru auðvitað öfgafullar skilgreiningar,” segir Kaye, og flestar
konur eru einhverstaðar á miðri leið. „Er hún ekki draumur,” sagði
fimmtugur karlmaður við mig á götu um daginn og kynnti fyrir mér
konuna sem hafði alið honum fimm börn, hugsað um þau svo til ein,
var doktor í sagnfræði og hafði lokið prófi samtímis og hún vann fyr-
ir heimilinu og hafði þó aðeins húshjálp annarrar konu tvisvar í viku,
„Jú,” sagði ég afar fölsk á svipinn en bætti því ekki við að mér fyndist
konan vera vondur draumur, eiginlega martröð í kvenmannsfötum
sem eiginmaðurinn hafði troðið í kökuform og bakað eftir uppskrift
frá tímum þrælahalds. Eiginkonan sem var greinilega sátt við að vera
draumur og vön að vera kynnt sem slík fyrir gestum og gangandi
brosti sínu blíðasta, enda meðvituð kona og að eigin dómi mikil kven-
réttindakona sátt við þá staðreynd að það var réttindabarátta kvenna
sem jók tólf tímum við vinnudag hennar við lestur á sagnfræðibókum,
ritgerðasmíðar og rannsóknir til þess að hún mætti verða slík fyrir-
mynd annarra kvenna. Þessi glansmynd leitaði á hugann þegar ein
konan sem ég talaði við kvaðst ekki þola súperkonur, hún kynni bet-
ur að meta „konur sem létu tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur,
hlutina reka á reiðanum og kæmust samt tiltölulega óskemmdar í
gegnum lífið og næðu árangri fyrir sig og sína. Því breyskari því betri,”
bætti hún við.
Boðin velkomin með kossi
HEIMS
49
MYND