Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 29
JSU.
krúnan
titrar
ward VIII afsalaði sér krúnunni og kvæntist
Wallis Simpson, sem var tvífráskilin. Það
hefði líka mikil áhrif á leið Karls að krún-
unni þar sem hann er æðsti yfirmaður bresku
kirkjunnar og hefur því ekki leyfi til þess að
kvænast aftur. Allt frá því að Karl var krýnd-
ur prinsinn af Wales af móður sinni hefur
hann verið í undirbúningsþjálfun undir
konungsembættið. Leit að drottningarefni
og brúðkaup aldarinnar 1981 voru aðeins
nokkur skref á leið hans að embættinu. Ást-
in var aukaatriði, umfram allt varð kvon-
fangið að vera efnilegt. Anothony Holden
einn af þeim sem ritað hafa ævisögu Karls
segir að staðreyndin sé sú að það voru ekki
mörg ákjósanleg drottningarefni eftir í Evr-
ópu. Díana mótmælendatrúar og hrein mey
passaði einfaldlega frábærlega vel inn í
myndina enda Karl orðinn nokkuð örvænt-
ingarfullur í leit sinni.
Karl kynntist Diönu þegar hún var sextán
ára og hann tuttugu og átta. Því hefur oft
verið haldið fram að þau eigi fátt sameigin-
legt svo hjónabandið hafi ekki verið byggt á
traustum grunni. Hins vegar hafa menn
frekar efast um tilfinningar Karls í garð
Díönu en öfugt og samkvæmt bók Mortons
hafa þau ekki deilt svefnherbergi í mörg ár.
Þessu til sönnunar vegur þungt samband
Karls við Camillu Parker Bowles sem hann
kynntist árið 1972. Þau voru þá bæði tutt-
ugu og þriggja ára og ólofuð og höfðu svip-
uð áhugamál ólíkt Díönu og Karli. Parker
Bowles er gift Andrew Parker Bowles hers-
höfðingja sem vinnur fyrir drottninguna.
Morton segir að skömmu fyrir brúðkaup
aldarinnar hafi Díana fundið armband sem
Þau sjást sjaldan kyssast prinsinn og prinsessan af Wales eða að þau láti tilfinningar sínar á ein-
hvern hátt í Ijós. Oft finnst Ijósmyndurum frekar eins og þau vilji að eitthvað allt annað komi fram.
29
Karl ætlaði að senda Parker Bowles og hafi
Díana íhugað að aflýsa brúðkaupinu. Sam-
band Karls við Parker Bowles telur Morton
vera ástæðuna fyrir því að Díana greip til
þess örþrifaráðs að reyna að svipta sig lífi.
Við megum heldur ekki gleyma því að
Mönnum er tíðrætt um áhugamál Karls og
Díönu sem þykja afar ólík. Hann hefur gaman
af glæfralegum íþróttum sem eru henni mjög á
móti skapi. í pólóleik handleggsbrotnaði
ríkiserfinginn og þurfti að gangast undir upp-
skurð. I kjölfarið á brotinu greip prinsinn þung-
lyndi og höfðu Bretar á tímabili miklar áhyggjur
af honum. Myndin sýnir Díönu ná í Karl af
sjúkrahúsinu í Nottingham.
ímynd bresku konungsfjölskyldunnar selur.
Hún færir bresku þjóðinni miklar tekjur ár
hvert en vinsælasti meðlimur konungsfjöl-
skyldunnar í dag er Díana. Hún var feimna
hlédræga stúlkan í byrjun, smátt og smátt óx
sjálfstraustið og á skömmum tíma vann hún
hug og hjörtu allrar þjóðarinnar með fram-
kornu sinni og persónutöfrum. Karl þykir
afkasta miklu í starfi sínu en enginn þykir
komast með tærnar þar sem Díana hefur
hælana þegar talað er um lengd vinnudags.
Hún fer á einum degi landshorna á milli,
sinnir sonum sínum og fríum og fer í opin-
berar heimsóknir. Hún leggur sig fram um
að læra tungumál þeirra þjóða sem hún
heimsækir og setja sig inn í atburði líðandi
stundar. I ofanálag er hún undir smásjá fjöl-
miðla sem gera strangar kröfur um að útlitið
sé óaðfmnanlegt. Það þarf sterkar taugar til
þess að standa undir öllu þessu, aldrei í
afslöppun. Óhjákvæmilega hefur öll sú ást
og athygli sem Díana nýtur kallað á afbrýði-
semi af hálfu Karls. Hann sem hafði verið
eftirsóttasti piparsveinn í heimi og hafði
HEIMS
MYND