Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 5
Litli-Bergþór 5
Í byrjun október fór starf félagsins í
gang og mun verða með svipuðu sniði
og undanfarna vetur. Fyrsta fimmtudag
hvers mánaðar er samkoma í kjallaranum
í Bergholti, sem hefst kl. 14:00. Þá er
reynt að hafa eitthvað til skemmtunar
eða fróðleiks, upplestur eða annað sem
rekur á fjörurnar, í um eina og hálfa
klukkustund. Þá hefst sameiginlegt kaffi
með rjómatertu og öðru fíneríi.
Aðra fimmtudaga er húsið opnað kl. 13
og þá fara sumir að spila. Aðrir eru með
ýmsa handavinnu, ef eitthvað og sumir
kasta boccia kúlum. Auðvitað er svo rætt
um það sem er efst á baugi í samfélaginu.
Um kl. 15:30 er svo drukkið saman kaffi
með góðu meðlæti.
Leikfimi hefur verið í íþróttahúsinu á
þriðjudögum frá kl. 16 – 17. Þar hefur
verið boccia æfing og sund eða heitur
pottur, valfrjálst. Þetta kemst vonandi í
gang upp úr miðjum nóvember, þegar
endurbótum á sundlaug og íþróttahúsi
lýkur.
Allir íbúar Biskupstungna, 60 ára plús,
eru hvattir til að taka þátt í starfi félagsins.
Kveðja, Guðni Lýðsson formaður.----
Myndirnar sem fylgja eru teknar í
ferð sem kvenfélagið bauð íbúum í
Biskupstungum, 60 ára og eldri til, en
leiðin lá í ullarvinnsluna Uppspuna að
Lækjartúni og Eldfjallamiðstöðina Lava
Center á Hvolsvelli í nóvember.
Frá Félagi eldri borgara
í Biskupstungum
Ketilbjörn ehf.
Vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum
Grímur Þór - Sími 892 3444Gleðileg jól
F.v. Oddný Kr. Jósefsdóttir, Hulda Brynjólfsdóttir, Haraldur Kristjánsson, Ólafur Jónasson,
Bragi Finnbogason, Þorfinnur Þórarinsson, Guðmundur Ingólfsson.
F.v. Þorfinnur Þórarinsson, Sigurður Erlendsson, Sigurjón Kristinsson og Áslaug
Jóhannesdóttir.