Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 27

Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 27
Litli-Bergþór 27 Við Geysi í Haukadal standa nú yfir framkvæmdir þar sem verið er að reisa glæsilegt hótel sem áætlað er að opni 2018. Nýbyggingin tengist núverandi þjónustu á svæðinu og mun gefa því heildstætt útlit. Áhersla er lögð á að byggingin sé hógvær í umhverfi sínu og endurspeglast það í formi hennar og landslagsmótun en byggingin er formuð þannig að hún skyggi sem minnst á náttúruperlur svæðisins. Byggingin er hæst þrjár hæðir auk kjallara og skiptist í þrjá hluta sem þjóna ólíkum tilgangi. Í herbergisálmunni eru 77 herbergi þar af 6 svítur. Öll herbergin eru með fallegu útsýni yfir sveitina. Standard herbergin eru af tveimur gerðum og óvenju rúmgóð miðað við hefðbundin hótelherbergi. Hluti herbergjanna er með stórum útkragsglugga sem hægt er að tylla sér í og láta hugann reika, en hin herbergin eru björt með stórum opnanlegum gluggaflötum og svölum. Aðal anddyri hótelsins og móttaka eru á 2. hæð með tvöfaldri lofthæð. Gluggafletir eru stórir og háir og ramma inn stórglæsilegt útsýni yfir Geysi og hverasvæðið. Veitingasalir eru staðsettir á 1. og 2. hæð byggingarinnar og umlykja út- veggi gamla íþróttaskólans sem fær nú nýtt hlutverk. Möguleiki er að opna veitingasalina út í skjólgóðan hótelgarðinn á góðviðrisdögum. Frá 3. hæð er aðgengi út á þakverönd þar sem hægt er að njóta veitinga og útsýnis til allra átta. Landslagið á svæðinu verður áhugavert og fjölbreytt, bæði í landmótun og gróðurvali. Góðar göngutengingar eru til allra átta og hönnun lóðar býður uppá að vegfarendur staldri við á leið sinni um svæðið. Mótun landslags myndar notaleg útisvæði sem snúa vel við sól og nýtast vel til afslöppunar á góðviðrisdögum. Mábil Másdóttir: Nýtt hótel rís við Geysi Hótel Geysir og Söluskálinn Geysir fyrir nokkrum árum. Nýbygging Hótel Geysis og útveggir fyrsta íþróttakóla landsins frá 1927, Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar. Starfsmenn við byggingu nýs hótels við Geysi.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.