Litli Bergþór - Dec 2017, Page 27
Litli-Bergþór 27
Við Geysi í Haukadal standa nú yfir framkvæmdir
þar sem verið er að reisa glæsilegt hótel sem
áætlað er að opni 2018. Nýbyggingin tengist
núverandi þjónustu á svæðinu og mun gefa því
heildstætt útlit.
Áhersla er lögð á að byggingin sé hógvær í
umhverfi sínu og endurspeglast það í formi hennar
og landslagsmótun en byggingin er formuð
þannig að hún skyggi sem minnst á náttúruperlur
svæðisins. Byggingin er hæst þrjár hæðir auk
kjallara og skiptist í þrjá hluta sem þjóna ólíkum
tilgangi.
Í herbergisálmunni eru 77 herbergi þar af 6 svítur.
Öll herbergin eru með fallegu útsýni yfir sveitina.
Standard herbergin eru af tveimur gerðum
og óvenju rúmgóð miðað við hefðbundin
hótelherbergi. Hluti herbergjanna er með stórum
útkragsglugga sem hægt er að tylla sér í og láta
hugann reika, en hin herbergin eru björt með
stórum opnanlegum gluggaflötum og svölum.
Aðal anddyri hótelsins og móttaka eru á 2. hæð
með tvöfaldri lofthæð. Gluggafletir eru stórir
og háir og ramma inn stórglæsilegt útsýni yfir
Geysi og hverasvæðið. Veitingasalir eru staðsettir
á 1. og 2. hæð byggingarinnar og umlykja út-
veggi gamla íþróttaskólans sem fær nú nýtt
hlutverk. Möguleiki er að opna veitingasalina út í
skjólgóðan hótelgarðinn á góðviðrisdögum.
Frá 3. hæð er aðgengi út á þakverönd þar sem
hægt er að njóta veitinga og útsýnis til allra
átta. Landslagið á svæðinu verður áhugavert og
fjölbreytt, bæði í landmótun og gróðurvali. Góðar
göngutengingar eru til allra átta og hönnun lóðar
býður uppá að vegfarendur staldri við á leið sinni
um svæðið. Mótun landslags myndar notaleg
útisvæði sem snúa vel við sól og nýtast vel til
afslöppunar á góðviðrisdögum.
Mábil Másdóttir:
Nýtt hótel rís
við Geysi
Hótel Geysir og Söluskálinn Geysir fyrir nokkrum árum.
Nýbygging Hótel Geysis og útveggir fyrsta íþróttakóla landsins frá 1927,
Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar.
Starfsmenn við byggingu nýs hótels við Geysi.